Tímarit Þjóðræknisfélags Íslendinga - 01.01.1956, Síða 84
HJÁLMUR F. DANIELSON:
Kynning Gullaldarrita íslendinga
út á við
I.
Nú á tímum er það viðurkennt á
meðal allra þjóða hins siðaða heims,
að á íslandi var tendrað það blys
sem lýsti upp bókmenntalegt mið-
aldamyrkur Evrópu þjóða. Það er
því vel viðeigandi að staldra við og
gera sér grein fyrir því hvernig það
atvikaðist að fornbókmenntir ís-
lendinga voru gerðar kunnar öðrum
þjóðum. Það er á vitund allra manna
er nokkur kynni hafa af sögu ís-
lenzku þjóðarinnar, að maðurinn
sem kom þessu kynningarstarfi af
stað var síra Arngrímur Jónsson
lærði. Á meðal erlendra, menntaðra
manna er Arngrími skipað á bekk
með frægustu íslendingum á sviði
bókmenntanna. Kynningarstarf hans
á fornritum íslendinga leiddi til
þess, að fornritasöfnun byrjaði fyrr
en ella hefði verið, en það mátti ekki
seinna vera; það voru síðustu for-
vöð til að bjarga handritunum áður
en mikið af þeim eyðilagðist af van-
hirðingu á heimilum, eða var af
ásettu ráði þröngsýnna kennimanna
kirkjunnar brent fyrir þá sök, að
það væru heiðnar bókmenntir. Sem
dæmi má geta þess að laust eftir
árið 1600 var hrúga af fornritum
brend á Helgafelli.
„í bókum býr sál allra liðinna alda<
alskýr rödd foriíðarinnar."
—'Thomas Carlyle
Um þriggja alda bil frá því er
fyrstu landnemarnir komu til ís-
lands árið 874, var fornfræði geymd
í minni manna frá einni kynslóð til
annarrar, en síðan skráð í skinn-
bækur, á tólftu og þrettándu öld.
Þessar skinnbækur voru síðan af-
ritaðar bæði í klaustrum og á sveita-
heimilum, um land allt. Þannig urðu
þessi fornrit eign æðri sem lægrh
ríkra sem fátækra. Þessi handrit og
hin afar mörgu afrit af þeim, voru
almennt lesin af ólærðum sem lærð-
um á öllu landinu um aldaraðir. Það
var þessum bókmenntum að þakka,
ásamt legu landsins, að gamla
norska tungumálið var varðveitt að-
eins á íslandi, og að það varð ekk1
dautt tungumál eins og sanskrú,
gríska, latína og önnur tungumál,
sem heimsins merkustu fornaldar
bókmenntir eru skráðar á.
Arngrímur var afkomandi mikd'
hæfra manna. Hann og Guðbrandur
biskup voru náfrændur; þeir voru
tvívegis að öðrum og þriðja, bæði 1
föður- og móðurætt Arngríms. For-
eldrar hans voru Jón Jónsson, °$
kona hans Ingibjörg Loftsdóttir, sem
bjuggu á Auðunnarstöðum í Víðida •
Margir af afkomendum Arngrúns