Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 12
námi þannig að nemendur gætu tekið það sem B.Sc. nám í verkfræði. Rök skólans eru því
sannfærandi og í samræmi við það að tæknifræði eigi að byggja ofan á verklega þekkingu
nemenda.
Á árinu var áfram unnið að því að kanna möguleika á því að sameina TFÍ, VFÍ og SV.
Stýrihópur sem skipaður var formönnum og varaformönnum allra félaganna lét vinna
drög að lögum fyrir sameinað félag ásamt drögum að stofnsamningi og tímaáætlun fyrir
samrunann. Að lokinni kynningu á þessum drögum eða tillögu stýrihópsins er stefnt að
því að gefa félagsmönnum kost á að kjósa um það hvort þeir séu hlynntir sameiningu eða
ekki. Auk fulltrúa í stýrihóp hafa fjölmargir félagsmenn komið að því að undirbúa stofn-
un nýs félags og ber að þakka það. Verði af sameiningu er mikilvægt að undirbúningur
sé sem allra bestur, að sjónarmið sem flestra hafi komið fram, þau hafi fengið faglega
umfjöllun og að fullt tillit hafi verið tekið til þeirra. Mikilvægt er að allir finni sér stað £
nýju félagi, hvort sem þeir eru launþegar, stjórnendur eða sjálfstætt starfandi. Félagið
þarf að þjóna öllum þessum hópum jafnvel og helst betur en gert er í dag.
Ég vil að lokum þakka framkvæmdastjóra og öðru starfsfólki á skrifstofu fyrir góð störf
í þágu félagsins. Þeim fjölmörgu félagsmönnum sem vinna ómælt sjálfboðaliðastarf fyrir
félagið, þakka ég þeirra framlag til að viðhalda öflugu starfi innan raða okkar tækni-
fræðinga. Án þess væri félagið ekki það afl sem það er í dag.
Einar H. Jónsson
INNGANGUR RITSTJÓRA
■ Ragnar Ragnarsson
ritstjóri ÁrbókarVFÍ/TFÍ
Kaflaskiptingin í þessari árbók er óbreytt frá fyrra ári. í fyrsta kafla
bókarinnar er greint frá félagsstörfum innan VFI og TFI og í
öðrum kafla, tækniannálnum, er farið vítt og breitt yfir tækni-
sviðið. I þriðja kafla er fyrirtækjum gefinn kostur á að kynna starf-
semi sína með því að segja frá því markverðasta eða birta tækni-
greinar er varða fyrirtækið. í fjórða kafla eru birtar ritrýndar
vísindagreinar en þeim fimmta almennar tækni- og vísinda-
greinar.
Öll vinna við gerð bókarinnar gekk snurðulaust fyrir sig. Að þessu
sinni bárust reyndar fleiri greinar en í fyrra en þá voru þær frekar
fáar.
Steinari Friðgeirssyni, formanni VFÍ, og Einari H. Jónssyni, formanni TFÍ, ásamt öðrum
félagsmönnum sem lögðu hönd á plóginn, er hér þakkað fyrir gott samstarf við gerð
árbókarinnar. Logi Kristjánsson framkvæmdastjóri og allt starfsfólk á skrifstofu félag-
anna fá þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á árinu, svo og Pétur Ástvaldsson sem annaðist
allan prófarkalestur bókarinnar.
Höfundum vísinda- og tæknigreina er þakkað fyrir vandaðar greinar og enn fremur rit-
rýnendum vísindagreina. Loks eru fyrirtækjum og stofnunum færðar þakkir fyrir fróð-
legar kynningar- og tæknigreinar og fjárframlög til gerðar bókarinnar.
Það er von mín að félagsmenn hafi ánægju og fróðleik af lestri árbókarinnar og óska ég
félagsmönnum velfarnaðar á nýju ári.
Arbók VFl/TFl 2005