Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 26
1.2.2 Skýrslur deilda, faghópa og nefnda VFÍ
starfsárið 2004-2005
Menntamálanefnd
Skipan nefndarinnar og fundir
Menntamálanefnd VFI var á starfsárinu skipuð eftirtöldum mönnum: Steindór
Guðmundsson formaður, Gunnar Guðni Tómasson ritari, Björn Karlsson, Einar
Matthíasson, Pétur K. Maack, Ragnhildur Geirsdóttir, Sigurður M. Garðarsson, Þórður
Helgason, Sigurður M. Garðarsson, formaður ENSÍM-nefndar VFÍ, TFÍ og SV, situr jafn-
framt í menntamálanefndinni. Sigurður situr einnig í stjórn Endurmenntunarstofnunar
HI sem fulltrúi VFÍ. Menntamálanefnd hélt alls tíu fundi á starfsárinu, fundir nr. 246-255.
Venjulegur fundartími er annar fimmtudagur hvers mánaðar.
Umsóknir til félagsins
Umsóknir um inngöngu í félagið og leyfi til að kalla sig verk-
fræðing voru sem hér segir á starfsárinu: Af 42 umsóknum um
inngöngu í félagið voru 38 umsóknir samþykktar. Einni umsókn
var hafnað og umfjöllun um þrjár er ekki lokið. Ein umsókn um
ungfélagaaðiid var samþykkt. Af 59 umsóknum um starfsheitið
voru 53 umsóknir samþykktar, tveimur var hafnað og umfjöllun
um fjórar er ekki lokið. Þeir einstaklingar sem mælt var með að fái
leyfi til að kalla sig verkfræðing og/eða fengu samþykkta inn-
göngu í félagið voru alls 67 talsins. Heildarfjöldi umsókna síðustu
fimm starfsár hefur verið mun meiri en næstu ár þar á undan.
Fyrirspurnir um viðurkennda skóla og/eða námsbrautir
Auk þessara formlegu umsókna um inngöngu í félagið og leyfi til að nota starfsheitið
verkfræðingur bárust menntamálanefnd VFÍ allmargar fyrirspurnir um það hvort tiltek-
ið nám myndi verða viðurkennt sem fullnægjandi til þess að fá að nota starfsheitið verk-
fræðingur. I langflestum tilvikum var um að ræða fólk í BS-námi í verkfræði við Háskóla
íslands sem var að velta fyrir sér framhaldsnámi í ýmsum löndum. Alls fjallaði nefndin
formlega um 18 slíkar fyrirspurnir á starfsárinu. Nokkrum fyrirspurnum til viðbótar, sem
ekki voru eins ítarlegar, var svarað beint með tilvísun í auglýstar reglur um starfsheitið.
Ályktun um sjálfstæðan Verkfræðiháskóla
Nefndin fjallaði um framtíðarstefnu VFI í menntamálum. Var m.a. fjallað um tillögu
Verkfræðideildar HI, Verkfræðiháskóli - Framtíðarsýn, og sendi menntamálanefndin frá
sér ályktun í mars 2004 þar sem lýst var stuðningi við sjálfstæðan verkfræðiháskóla, þar
sem öll tæknimenntun á háskólastigi væri sameinuð í einum skóla í náinni samvinnu við
rannsóknastofnanir atvinnuveganna:
2 4 | Á r b ó k VFl/TFl 2005