Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Side 29
heldur slök þar sem fundinn bar upp á sama tíma og frændur okkar Danir kepptu við
Itali í Evrópukeppni landsliða í fótbolta.
Stjórnin skipti með sér verkum og er Sverrir Sigurðsson formaður, Kristján Vilhelm
Rúriksson varaformaður, Gísli Pálsson gjaldkeri og Þórarinn Bjarnason ritari.
Farið var í skoðunarferð í prentsmiðju Morgunblaðsins að Hádegismóum í maí 2004.
Verktaki að þeirri framkvæmd er Þ.G. verktakar ehf. Eftir stutta kynningu á fram-
kvæmdinni var gengið um húsið. Þátttaka var ágæt enda áhugaverð framkvæmd, t.d. er
prentvélin á sérstöku gólfi sem er einangrað frá burðarvirki hússins til þess að geta betur
staðist álag frá jarðskjálfta.
Þessar skoðunarferðir hafa mælst vel fyrir hjá félagsmönnum og sérstaklega vegna
tímasetningar í upphafi dags. Stefnt var að ferðum á vormánuðum 2005 í íþrótta- og
sýningarhöllina í Laugardal og einnig að skoða framkvæmd við færslu Hringbrautar urn
Hlíðarenda og Vatnsmýri.
Orðanefnd BVFÍ
Innan BVFI er starfrækt orðanefnd sem unnið hefur mikið starf síðastliðin 19 ár við gerð
íðorðabókar um umhverfistækni þar sem skýrð eru hugtök sem tengjast efnafræði, eðlis-
fræði, náttúrufræði og ýmis tæknihugtök svo og orð sem tengjast umhverfinu, fráveitum,
leiðslum, dælingu, sjávarföllum og mengun svo fátt eitt sé nefnt. Formaður nefndarinnar
frá upphafi hefur verið Einar B. Pálsson. Iðorðabókin er tilbúin að öllu leyti og verður
gefin út af Háskólaútgáfunni í 500 eintökum.
Fyrir utan að stuðla að almennri varðveislu íslenskrar tungu er bókin nauðsynleg verk-
fræðingum, tæknifræðingum, iðnaðarmönnum og öðrurn sem daglega fjalla um um-
hverfis- og fráveitumál. Bókin mun einnig nýtast vel í kennslu.
Kvennanefnd VFÍ
Starfsárið 2004-2005 var kvennanefnd VFI skipuð eftirtöldum: Asdísi Guðmundsdóttur,
Fjólu Jónsdóttur, Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur, Jóhönnu Hörpu Arnadóttur og Kolbrúnu
Reinholdsdóttur. Kvennanefndin á fulltrúa í jafnræðisnefnd VFÍ.
Stjórn kvennanefndar veltir reglulega fyrir sér hlutverki nefndarinnar og áhrifum.
Upphaflega var hún stofnuð til að hvetja konur til þátttöku í félagsstarfi VFI og til að
mynda tengslanet kvenna í stétt verkfræðinga. Nú fimm árum eftir stofnun hennar
teljum við að konur hafi orðið meira áberandi meðal verkfræðinga en áður var. Nefna má
t.d. að í stjórn VFI eru nú tvær konur í stað einnar og í stjórn Stéttarfélagsins eru nú þrjár
konur og kona er formaður félagsins.
I febrúar 2004 var enn á ný blásið til sóknar í jafnréttismálum og efndi kvennanefndin,
ásamt Félagi kvenna í lögmennsku, Félagi kvenna í endurskoðun og Félagi kvenna í
læknastétt, til blaðamannafundar þar sem félög og lífeyrissjóðir voru hvött til að auka
hlut kvenna í röðum stjórnarmanna. Sá fundur var haldinn þann 8. febrúar 2005 og fékk
mjög góða og ítarlega umfjöllun í fjölmiðlum. Greinilegt er að þarna var skriðu ýtt af stað
og sér ekki fyrir endann á heimi. Kvennanefndin ásamt félögum kvenna í lögmennsku,
endurskoðun og læknastétt var beðin um að styðja við verkefnið kvennaslóðir.is, sem er
gagnagrunnur um konur í sérfræðigreinum sem hefur verið að byggjast upp og til stend-
ur að styrkja og kynna.
Haldnir voru fjórir fundir á síðasta starfsári: Þann 17. mars 2004 var farið í heimsókn til
Össurar, þar sem á móti okkur tóku kvenverkfræðingar og kventæknifræðingar sem þar
starfa. Þann 14. október 2004 var haldinn sameiginlegur fundur með Félagi kvenna í lög-
mennsku og Félagi kvenna í læknastétt, sem fjallaði um tengslanet. Gestur fundarins var
Félagsmál Vfl/TFl