Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 30
Þórdís Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnendaskóla Háskólans í Reykjavík. Þann
23. nóvember 2004 var farið í heimsókn til ÍSAL þar sem á móti okkur tóku kvenverk-
fræðingar og kventæknifræðingar sem starfa hjá ÍSAL. Þann 2. febrúar 2005 var
Verkfræðistofan Línuhönnun heimsótt þar sem á móti okkur tóku kvenverkfræðingar og
kventæknifræðingar sem þar starfa.
Kolbrún Reinholdsdóttir
Norðurlandsdeild VFÍ
Þriðja ferðin á jafnmörgum árum var farin á framkvæmdasvæðið við Kárahnjúka og í
Fljótsdal 18. september 2004. Hópurinn varð samferða félögum úr VFÍ og TFÍ, sem komu
með flugi frá Reykjavík til Egilsstaða. Hrönn Pétursdóttir frá Landsvirkjun var leiðsögu-
maður um svæðið. í upphafi var upplýsingamiðstöðin á Végeirsstöðum skoðuð og eftir
skoðunarferð um framkvæmdasvæðið og hádegismat í boði Landsvirkjunar var hópnum
boðið að þiggja veitingar að Skriðuklaustri í boði félagartna.
Aðalfundur NVFI var haldinn 4. mars 2004 í Gamla Lundi á Akureyri. Ný stjórn var
kosin. í hana koma ný inn: Kristinn Magnússon formaður, Oddný Snorradóttir og Pétur
Bjarnason. Afram sitja í stjórn Bjarni Hjarðar og Jón Magnússon. Ur stjórn gengu Bergur
Steingrímsson, Sigurjón Jóhannesson og Þórhallur Hjartarson. Að aðalfundinum loknum
var félagsfundur með forsvarsmönnum VFÍ og SV annars vegar og sameiginlegur fundur
með NTFI og forsvarsmönnum VFÍ, TFI og hins vegar. Um kvöldið var „síldarkvöld".
Ræðumaður kvöldsins var Asgeir Magnússon, tæknifræðingur og starfsmaður skrifstofu
Samtaka atvinnulífsins á Norðurlandi.
Eins og fyrri ár var góð samvinna á milli Norðurlandsdeilda verkfræðinga og
tæknifræðinga.
Efnaverkfræðideild
Unnið var að undirbúningi ráðstefnu efna- og efnaverkfræðinga með Efnafræðifélagi
íslands frá vori 2004. Ráðstefnan var síðan haldin á Nesjavöllum 18.-19. september 2004
og sóttu hana um 50 manns þá tvo daga sem hún stóð. Fjallað var um þrjú meginefni:
Lyfjaþróun, efnagreiningar og þátt efnafræðinnar í framþróun og nýsköpun á Islandi.
Alls voru haldin um 15 erindi um þessi efni af, m.a. af Sigríði Ólafsdóttur hjá Lyfjaþróun
hf., Sigurði Reyni Gíslasyni hjá Raunvísindastofnun og Freygarði Þorsteinssyni hjá
Ossuri hf., svo einhverjir sé nefndir. Fjölmörg rannsóknaverkefni voru kynnt á vegg-
spjöldum og orkuverið á Nesjavöllum skoðað.
Rafmagnsverkfræðideild
í stjórn RVFÍ starfsárið 2004—2005 sátu Guðlaug Sigurðardóttir formaður, Þorvarður
Sveinsson stallari, Þorsteinn Jóhannesson ritari og Ragnar Jónsson gjaldkeri. Aðalfundur
RVFÍ var haldinn í Verkfræðingahúsi í lok maí 2004. Að loknum aðalfundarstörfum var
opinn fundur fyrir alla félaga VFI og TFI þar sem Aðalsteinn Bjarnason stofnandi og einn
aðaleigandi Fallorku hf. kynnti framkvæmdir við Djúpadalsvirkjun í Eyjafirði, stærstu
vatnsaflsvirkjun í einkaeign. Þessi fundur var einkar vel sóttur og þótti mjög
áhugaverður.
Þorvaldur Einarsson var skipaður fulltrúi í undirbúningsnefnd Tæknidaga. Þorvaldur
tók í þeim undirbúningi að sér að vera tæknistjóri sýningarinnar „Orkan okkar - Heimili
morgundagsins".
28 | Arbók VFl/TFl 2005