Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Page 194
Alcoa og flugiðnaður
Mikilvægan hluta af sögu Alcoa má rekja í
gegnum helstu viðburði flugsögunnar. Hinir
einstöku eiginleikar áls gerðu þróun vélflugs
mögulega og þar hefur hlutur Alcoa alla tíð
verið stór. Hægt er að breyta eiginleikum áls
með því að blanda það ýmsum málmum í
tiltölulega litlu magni. Alcoa hefur þróað
stóran hluta af þeim álblöndum sem notaðar
eru í flugvélum, hreyflum, geimförum og
gervihnöttum. Álið er ýmist steypt, þrýsti-
mótað eða valsað. Alcoa hannar og framleiðir
burðargrindur, klæðningar, hjólabúnað, fest-
ingar, hólf og gólf í flugvélar. Alcoa smíðar
einnig margvíslega hluti í hreyfla úr ýmsum
málmum. Meðal helstu viðskiptavina Alcoa
eru allir stærstu framleiðendur flugvéla og
flugvélahreyfla í heiminum.
Wright-bræður
Þátttaka Alcoa í flugvélaframleiðslu byrjaði
þegar reiðhjólasmiðirnir Orville og Wilbur
Wright leituðu til fyrirtækisins árið 1903. Þeir
höfðu þá hannað flugvél, sem þeir kölluðu
Flyer, en hvergi fundið nógu léttan og öfl-
ugan hreyfil til að koma henni á loft. Bræð-
urnir fengu sjálfmenntaðan snilling, Charlie
Taylor, til að smíða fyrir sig hreyfil úr áli frá
Alcoa. Hreyfillinn vó aðeins 80 kíló en skilaði
þó 13 hestöflum sem var fimm hestöflum
meira en bræðurnir höfðu vonast eftir. Saga
vélflugs hófst svo formlega 17. desember 1903
þegar Orville Wright flaug vél þeirra bræðra í
fyrsta skipti, 37 metra vegalengd.
Charles Lindbergh
Snemma morguns, þann 20. maí 1927, lagði
Charles Lindbergh upp í flugferð frá New
York, með fimm samlokur og tvo vatnsbrúsa
í nesti. Nærri 33 tímum síðar lenti hann í
París, eftir að hafa sigrast á þoku, ísingu,
stormi og þreytu. Fyrir að verða fyrstur til að
fljúga einn síns liðs yfir Atlantshafið vann
þessi fyrrverandi póstflugmaður til 25.000
dollara verðlauna og öðlaðist um leið heims-
frægð. Hreyfilspaðinn á flugvél hans, Spirit
of St. Louis, var úr álblöndu frá Alcoa.
Lindbergh tók sjálfur þátt í að þróa og smíða
spaðann.
1 9 21 Arbók VFl/TFl 2005