Fréttablaðið - 07.01.2012, Side 18
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR
Öflugt æskulýðsstarf fer fram í félagsmiðstöðvum
Reykjavíkurborgar. Félags
miðstöðvarnar eru nú 23 talsins
og þar til nú hefur ÍTR annast
rekstur þeirra. Allir á aldrinum
1015 ára eru velkomnir í
félagsmiðstöðvarnar og þar
er m.a. leitast við að gefa þeim
einstaklingum kost á heilbrigðum
og uppbyggilegum frístundum,
sem ekki taka þátt í íþróttastarfi
félaga eða félagsstarfi í skólum.
ÍTR stendur fyrir ýmsu öðru
æskulýðs starfi og má þar nefna
Hitt húsið, sem nýtt er af ung
mennum á aldrinum 1625 ára,
Ungmenna ráð fyrir 1318 ára,
Skrekk, hæfileika keppni grunns
kólanna og siglinga klúbbinn
Siglunes í Nauthólsvík.
Öflugt æskulýðs- og frístund-
astarf
Í Reykjavík eru starfræktar sex
frístunda miðstöðvar, 34 frístunda
heimili og fjórir frístunda klúbbar
fyrir fötluð börn. 69 ára börn fara
í frístunda heimili að loknum hefð
bundnum skóladegi og á síðustu
ellefu árum hefur ÍTR unnið
sleitu laust að upp byggingu og
þróun þessa frístunda starfs með
góðum árangri.
Farsæl starfsemi ÍTR
Stjór nmá la menn koma og
fara. Í 25 ára sögu Íþrótta og
tómstundaráðs Reykjavíkur
hafa sjö einstaklingar gegnt þar
formennsku. Allir hafa þeir haft
ríkan metnað fyrir hönd ráðsins
og komið mörgu góðu til leiðar.
Ekki er hægt að fjalla um stjórnun
málaflokksins án þess að víkja
að Ómari Einarssyni, sem verið
hefur framkvæmda stjóri ÍTR frá
upphafi. Hefur Ómar gegnt því
starfi allan tímann af miklum
krafti og einurð með vaskan hóp
starfsmanna sér við hlið. Eru
fáir embættis menn ef nokkrir,
sem gera sér jafn góða grein fyrir
því að þeir eru fyrst og fremst í
þjónustu fólksins í borginni og
leggja sig fram við að leysa af
lipurð mörg að steðjandi vanda
mál en láta þó ekki undan ósann
gjörnum kröfum og heimtufrekju
gagnvart skattgreiðendum, sem
embættismenn borgarinnar standa
einnig frammi fyrir í ríkum mæli.
Í aldarfjórðung hafa Reyk
víkingar verið afar ánægðir með
starfsemi ÍTR. Í viðhorfs og
þjónustu könnunum hefur ÍTR
ætíð verið í fremstu röð og oftast
verið sú borgar stofnun, sem hæstu
ánægju einkunn hefur fengið
meðal borgarbúa. Á starfstíma
ÍTR hafa starfsmenn þess hvað
eftir annað gripið tæki færið til að
bæta starfsemina og náð miklum
árangri á því sviði. Það hefur
ekki verið á forsendum þess að
breyta þurfi breytinganna vegna,
heldur á grundvelli vandaðra
vinnu bragða og viðurkenndrar
breytinga stjórnunar.
Undarleg afmælisgjöf
Það olli því furðu og vonbrigðum
þegar núverandi meiri hluti
Sam fylkingarinnar og Besta
flokksins ákvað á afmælis árinu,
án haldbærra skýringa, að kljúfa
starfsemi ÍTR, þar sem borgar
fulltrúi Besta flokksins fer með
formennsku, í herðar niður og
færa stóran hluta starfseminnar
til annars ráðs borgarinnar, þar
sem Samfylkingin heldur um
stjórnartauma. Um er að ræða
sex frístunda miðstöðvar, 23
félags miðstöðvar, 34 frístunda
heimili og fjóra frístundaklúbba
fyrir fötluð börn. Voru þessar
breytingar unnar með ótrúlega
óvönduðum hætti af hálfu meiri
hlutans. Var þeim síðan hrint í
framkvæmd í andstöðu við vilja
mikils meirihluta starfs manna
og án þess að þeir eða notendur
þjónustunnar fengju á því
skýringar eða væri gefinn tími
til að tjá sig um breytingarnar
með eðlilegum hætti. Ráðist
var í breytingarnar án þess að
stefnu mörkun eða framtíðar sýn
lægi fyrir eða að sýnt væri fram
á með nokkrum hætti að þær
skiluðu hag ræðingu. Lét meiri
hlutinn sjálf sagðar ábendingar
starfs manna og annarra fag
aðila um mikil vægi eðli legrar
undirbúnings vinnu, áður en
ákvarðanir um breytingar yrðu
teknar, sem vind um eyru þjóta.
Ríkti lítil afmælisstemmning hjá
starfsfólki ÍTR á afmælisárinu
vegna þessa, en sem fyrr lagði það
sig þó allt fram í störfum sínum.
Vil ég af heilum hug þakka
öflugu starfs liði ÍTR undan
farinn aldar fjórðung fyrir gott
starf að íþrótta, æskulýðs og
tómstunda málum, í þágu upp
vaxandi kynslóðar borgarbúa, og
vona að framtíð mála flokksins sé
björt. Landsmönnum öllum óska
ég gleðilegs árs og friðar.
Íþrótta- og tómstundaráð
25 ár í fararbroddi
Það er mikil áskorun að efla opinberan rekstur á tímum
niðurskurðar. Þó má ekki láta
deigan síga því rangar ákvarðanir
valda tjóni. Við þurfum að leita
allra leiða til að fara betur með
opinbert fjármagn og gera
stjórnun ríkisins skilvirkari. Með
því að sameina ráðuneyti úr tíu í
fimm værum við einu skrefi nær
þessu markmiði.
Stjórnarráð Íslands er veik
burða. Ráðuneytin eiga fullt í
fangi með að afgreiða erindi
og kærur innan lögbundinna
fresta, stefnumótun takmarkast
við einstök svið, algengt er að
starfsmenn fái verkefni sem henta
þeim illa, sérhæfingu skortir víða
og lykilþekking er því oft bundin
við fámennan hóp starfsmanna –
stundum aðeins einn starfskraft.
Vandi okkar stjórnsýslu er
að stjórna tiltölulega fáum
einstaklingum, sem oft eru hlaðnir
verkefnum. Raunveruleg yfirsýn
verður því afar takmörkuð. Orðið
„forgangsröðun“ verður hjóm
eitt, þar sem ekkert annað er í
„forgangi“ en hefðbundin (dagleg)
verkefni. Á meðan er erfitt að líta
til framtíðar og ákveða hvernig
verja má opinberu fjármagni á
sem bestan hátt.
Það er engin töfralausn að
fækka ráðuneytum. Þó er ljóst að
um leið og ráðu neytin yrðu fimm
talsins snar breyttist allt samhengi
Stjórnar ráðsins og ákvarðana taka
yrði vandaðri. Einingar Stjórnar
ráðsins yrðu stærri og hægt væri
að setja á stofn fleiri og fjölmennari
vinnu hópa um til greind verkefni,
sam eining stofnana yrði mark
vissari, allsherjar stefnumótun
væri möguleg enda allt ákvarðana
ferli heild stæðara, mun auðveldara
væri að ljúka eigin legum forgangs
verkefnum, einfaldara yrði að
skipuleggja átaks verkefni, frí
og veikindi starfs manna hefðu
minni áhrif á verkefna stöðu,
þekkingu mætti miðla betur milli
starfs manna og jafnframt yrði
auðveldara að finna starfs mönnum
verkefni sem hæfa menntun þeirra
og reynslu.
Enginn vafi er á því að
starfsmenn Stjórnarráðsins gera
sitt besta í öllu sem þeir takast
á hendur. Ábyrgð hins opinbera
eykst hins vegar dag frá degi,
breidd verkefna er meiri en áður
og kröfur um bætt eftirlit verða
æ háværari. Sameining ráðu neyta
ásamt innri skipulags breytingum,
s.s. gjör breyttri umgjörð kæru
mála (þ.m.t. kærunefnda), er leið
sem við verðum að skoða betur.
Margir álíta vafa laust að
hugmynd um fimm ráðu neyti sé
óraun hæf. Ríkið er hins vegar
nánast lamað vegna fjárhags
þrenginga og bætt stjórnun
er lykil atriði allrar endur
uppbyggingar.
Það er enn fremur ekkert
lögmál að ráðuneyti verði að vera
fleiri heldur en færri.
Sameining
ráðuneyta í fimm
Stjórnmál
Ólafur Reynir
Guðmundsson
lögfræðingur
Íþrótta- og
æskulýðsstarf
Kjartan
Magnússon
borgarfulltrúi og fv.
formaður ÍTR
Það olli því furðu og vonbrigðum þegar
núverandi meirihluti Samfylkingarinnar
og Besta flokksins ákvað á afmælisárinu,
án haldbærra skýringa, að kljúfa starfsemi ÍTR...
Viltu
vinna við
hjálparstörf
erlendis?
Rauði kross Íslands auglýsir eftir umsóknum á sendifulltrúanámskeið sem haldið
verður vikuna 18. – 23. mars 2012. Þátttaka á sendifulltrúanámskeiði er forsenda
þess að fá starf á vegum Rauða kross Íslands á alþjóðavettvangi.
Þátttökuskilyrði eru m.a. fagmenntun og minnst þriggja til mm ára starfsreynsla
í viðkomandi fagi eftir nám. Mjög góð enskukunnátta er skilyrði og færni í frönsku,
arabísku, rússnesku eða spænsku er mikill kostur. Sérstaklega hvetjum við ljósmæður
og kvensjúkdómalækna til að sækja um.
Umsóknir berist með tölvupósti til Gunnhildar Sveinsdóttur verkefnisstjóra hjá
Rauða krossinum (gunnhildur@redcross.is) fyrir 22. janúar næstkomandi.
Umsóknareyðublað má nna á heimasíðu félagsins www.raudikrossinn.is auk nánari
upplýsingar um námskeiðið og þátttökuskilyrði.
Öllum umsóknum verður svarað.
Orlofshúsnæði sumarið 2012
Frá Orlofssjóði KÍ
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar eftir að taka á leigu vandað
húsnæði til endurleigu sumarið 2012 fyrir félagsmenn. Bæði íbúðarhúsnæði
og orlofshús koma til greina.
Húsnæðið þarf að vera vel búið húsgögnum og uppfylla kröfur um góðan
húsbúnað. Leigusali þarf að hafa reglulegt eftirlit með húsnæðinu á leigutí-
manum. Fastur leigutími eru 8 vikur á tímabilinu 8. júní til 17. ágúst 2012.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja: Lýsing á eign og því sem henni
fylgir, ástand hennar, staðsetning, stærð, aldur og fjöldi svefnplássa. Einnig er
nauðsynlegt að senda góðar myndir. Tilboð berist til skrifstofu Orlofs sjóðs KÍ
Laufásvegi 81 og á netfangið orlof@ki.is fyrir 20. janúar n.k.
Öllum tilboðum verður svarað.
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands,
Laufásvegi 81
101 Reykjavík
Nánari upplýsingar veitir Hanna Dóra Þórisdóttir í síma 595-1111,
netfang: orlof@ki.is , fax: 595-1112.
Mánudagar og fimmtudagar frá 20:00 til 21:45 auk eftirfylgdartíma, alls 16 klst.
Kennarar: Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdóttir
sérfræðingar í klínískri sálfræði
Verð kr. 54.000.
Niðurgreiðsla möguleg hjá sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 23. janúar 2012.
Skráning og fyrirspurnir í símum 5340110, 8220043 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is
N á n a r i u p p l ýs i n g a r : w w w . k m s . i s
Kennsludagar:
Vellíðan án lyfja
með verkfærum sálfræðinnar
Fjögurra vikna árangursmælt nám-
skeið Kvíðameðferðarstöðvarinnar
til að takast á við vanlíðan, álag og
spennu. Kenndar leiðir hugrænnar
atferlismeðferðar til að skoða og
breyta hugsunum og viðbrögðum
sem viðhalda kvíða og depurð.
Öflugar slökunar- og hugleiðslu-
aðferðir jafnframt kenndar. Námskeiðið
nýtist vel samhliða annarri meðferð.