Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 39
heilsa
LAUGARDAGUR 7. janúar 2012
Kynningarblað
Margt í boði fyrir börn
Góð ráð gegn streitu
heilsurækt á vinnustaðnum
hressandi drykkir
Tækninýjungar
hollt og gott í gogginn
Í Baðhúsinu er notaleg aðstaða fyrir konur til að rækta líkama og sál. „Við erum með fjölbreytt úrval af tímum
sem henta konum sem eru að stíga sín
fyrstu skref inn á líkamsræktarstöð og líka
þeim sem eru lengra komnar. Við leggj-
um ríka áherslu á persónulega, góða þjón-
ustu þannig að viðskiptavinum okkar
líði vel og finnist notalegt að koma,“ segir
Linda Pétursdóttir, eigandi Baðhússins.
„Við erum líka alltaf að betrumbæta með
það að leiðarljósi að Baðhúsið sé ekki stað-
ur fyrir stutt stopp. Konur koma hing-
að til að stunda líkamsrækt en þetta er
líka klúbburinn þeirra þar sem þær geta
slakað á, farið í pottinn, gufurnar og í
hvíldarhreiðrið. Þær geta fengið sér vatn,
te og kaffi, kíkt í blöðin og sumar koma
jafnvel til að leggja sig og fá þannig hvíld
frá amstri dagsins. Þá erum með frábæra
barnagæslu fyrir þær sem það þurfa.“
Linda stofnaði Baðhúsið árið 1994 og nú
var enn einu metári að ljúka. „Fjölmargir
viðskiptavinir hafa verið hér svo árum
skiptir og er viðkoma í Baðhúsinu partur
af þeirra lífsstíl.“
Með því að skrá sig í KK klúbbinn
fá viðskiptavinir hagstæðustu kjörin
en innan hans eru fjórar mismunandi
áskriftarleiðir. Þrjár eru með tíu til tólf
mánaða binditíma en ein er án binditíma.
„Þannig teljum við okkur koma til móts
við þarfir flestra en auk þess erum við
með staka tíma, mánaðarkort og ýmsa
fleiri möguleika. Hér er því eitthvað fyrir
alla, óháð aldri og getu.“
Á nýju ári verður áfram fjölbreytt
tímaúrval og verður enn meiri áhersla
lögð á Zumba sem hefur notið sérstakra
vinsælda á undanförnum misserum.
„Zumba fitness verður á sínum
stað en svo erum við að bæta
við stelpu Zumba fyrir stelp-
ur á aldrinum fimm til átta ára
og níu til tólf ára og Zumba gold
fyrir byrjendur og konur á besta
aldri. Þá erum við með margar jógakon-
ur og bjóðum bæði almennt jóga og hot
jóga sex daga vikunnar. Um miðjan mán-
uðinn hefst svo sex vikna námskeið í jóga
gegn kvíða.
Linda segir konur eiga gæðastund-
ir í Baðhúsinu og að mörgum hafi
tekist að gera líkamsrækt að lífs-
stíl. Hún vísar í ummæli Hrafn-
hildar Pétursdóttur 72 ára tann-
fræðings sem hefur verið í
Baðhúsinu frá árinu 1998.
„Baðhúsið er aðgengilegt og
þægilegt og umgengni frá-
bær. Það er alltaf verið að
laga og gera Baðhúsið betra.
Ég var staðráðin í því þegar
ég kom fyrst í Baðhús-
ið árið 1998 og skráði
mig í KK klúbbinn að
það væri fyrir lífs-
tíð. Ég ætla mér að
standa við það.“
NýjuNgar og tilboð
Boðið er upp á tvo nýja Zumbatíma í Baðhúsinu; stelpu-Zumba og Zumba
Gold. „Zumbakennarinn okkar, Hjördís Zebitz, hefur verið dugleg að sækja
sér ný Zumbaréttindi og ég hef ekki séð þetta annars staðar,“ segir Kristjana
Þorgeirsdóttir, verkefnastjóri líkamsræktar hjá Baðhúsinu.
stelpu-Zumbað er tvískipt. Það er annars vegar hugsað fyrir fimm til átta
ára og hins vegar níu til tólf ára. „Þarna geta þær fengið útrás fyrir dansgleðina
við skemmtilega tónlist án þess að vera beinlínis í
ströngu dansnámi. Við höfum áður boðið upp á
stelpujóga en þetta er í takt við það að viðskipta-
vinir okkar eru alltaf að yngjast og koma jafnvel
með mæðrum sínum á stöðina. Þörf barna fyrir
hreyfingu með tilliti til holdafars hefur sömuleiðis
aukist og stundum dugar skólaleikfimin ekki til,“ segir
Kristjana.
Zumba Gold eru hægari Zumba-tímar fyrir þær sem treysta sér ekki í
Zumba fitness. „Þar er kominn þéttur kjarni sem getur verið fráhrindandi
fyrir þær sem hafa aldrei prófað. Þetta geta verið konur sem eru komnar á
efri ár en líka konur sem eru að byrja og langar að dansa.“
Meðlimir KK klúbbsins fá ókeypis aðgang í öll heilsuátök
í Baðhúsinu. Þetta geta verið tabata námskeið, hot
jóga námskeið, fit pilates námskeið og fleira í þeim
dúr. Því er ljóst að KK klúbburinn margborgar sig.
Þessa daga er sérstakt inngöngutilboð í KK klúbb-
inn en allar sem skrá sig fram til 10. Janúar fá frítt
nudd. Einnig er tilboð á sex mánaða kortum og er
boðið upp á frían prufutíma til 10. janúar.
Enn einu metárinu lokið
Baðhúsið er meira en líkamsræktarstöð. „Þetta er líka klúbbur fyrir konur sem vilja gera sér gott í amstri dagsins. Hér
geta þær slakað á, farið í gufu og pott, gluggað í blöð og látið líða úr sér,“ segir eigandinn Linda Pétursdóttir.