Fréttablaðið - 07.01.2012, Blaðsíða 110
7. janúar 2012 LAUGARDAGUR66
sport@frettabladid.is
FótboLti Undanfarin misseri hefur
lítið borið á Hafnfirðingnum
Arnari Þór Viðarssyni í íslenskum
fjölmiðlum þrátt fyrir að hann
sé enn að spila af fullum krafti
í sterkri atvinnumannadeild í
Evrópu. Fimmtánda ár hans í
atvinnumennskunni er nýhafið
en hann segir við Fréttablaðið að
árið 2011 hafi verið hans besta á
ferlinum. Arnar lék síðast með
íslenska landsliðinu árið 2007.
Arnar samdi fyrst við belgíska
liðið Lokeren árið 1997, en hann
hefur lengst af haldið sig þar í
landi og er nú á sínu fjórða tíma-
bili hjá Cercle Brugge.
Hann er uppalinn FH-ingur
enda af mikilli FH-ætt. Faðir
Arnars, Viðar Halldórsson, er for-
maður félagsins og föðurbróðirinn
Jón Rúnar formaður knattspyrnu-
deildar. Bræður hans, Davíð Þór
og Bjarni Þór, eru báðir atvinnu-
menn í knattspyrnu.
Sáttir við stöðuna í deildinni
Óhætt er að fullyrða að Arnar
Þór sé í hópi leikreyndustu knatt-
spyrnumanna Íslands í dag, en
hann hefur síðustu ár verið lykil-
maður í uppgangi Cercle Brugge.
„Við erum nú í sjöunda sæti
deildarinnar eftir nítján leiki og
erum bara mjög sáttir við það,“
segir Arnar. „Við erum enn í
baráttunni um að komast í umspil
efstu sex liðanna um meistara-
titilinn í vor. Þangað stefnum við.“
Arnar var alls hjá Lokeren
í sjö ár eftir að hann fékk
langtímasamning hjá liðinu árið
1998. Hann stoppaði svo í Hollandi
í þrjú ár áður en hann samdi við
Cercle Brugge.
Spilar hverja einustu mínútu
„Það gekk á ýmsu fyrsta tíma-
bilið hjá Cercle og ég náði ekki
að mynda nógu gott sam band við
þjálfarann. Svo kom nýr þjálfari og
síðan þá hef ég verið fasta maður í
liðinu.“ Til marks um það má nefna
að Arnar hefur spilað í 90 mínútur
í öllum nítján deildar leikjum
liðsins til þessa á tímabilinu.
„Árið 2011 var það besta á ferli
mínum hingað til,“ segir hann.
„Reynslan kemur með aldrinum og
þá verður auðveldara að takast á
við þær aðstæður sem geta komið
upp í leikjum. Maður þekkir þetta
orðið allt. Líkaminn er líka góður
og mér líður vel. Með aldrinum
áttar maður sig á því að ferlinum
gæti lokið hvenær sem er – þá er
um að gera að njóta þess að spila á
meðan maður getur.“
Útskrifast sem þjálfari í vor
Arnar skrifaði undir nýjan
tveggja ára samning í vor en ef
líkaminn verður enn í fínu standi
að þeim tíma loknum mun hann
spila áfram. Ef ekki mun hann
líklega hefja störf sem þjálfari
hjá liðinu. „Ég hef verið að
sækja þjálfara nám hér í Belgíu
og mun útskrifast með UEFA-A
þjálfaragráðu í vor,“ segir hann,
en það er næsthæsta stig þjálfara-
menntunar hjá Knattspyrnu-
sambandi Evrópu. Þrátt fyrir það
var hann ekki harðákveðinn í að
fara út í þjálfun.
„Ég ætlaði bara að fara í námið
og sjá svo til. Staðan er þannig
núna að mér líður mjög vel hjá
Cercle og það er einnig ánægja
með störf mín hjá félaginu. Það er
litið á mig sem framtíðarmann
í þjálfarateymi félagsins, fyrst
um sinn sem aðstoðarmaður.“
Ekkert ritað í stein
Hann tekur þó öllu með hæfi-
legum fyrirvara. „Maður veit
aldrei. Kannski gerir maður eitt-
hvað af sér í næstu viku og verður
umsvifa laust sparkað út,“ sagði
hann í léttum dúr. „Það er ekkert
ritað í stein.“
Arnar er fjölskyldu maður.
Hann á eigin konu og tvö börn, sjö
ára stelpu og fjögurra ára strák,
og líður mjög vel í Belgíu. „Ég er
hamingju samur ungur maður og
okkur líður mjög vel. Við erum ekki
á heimleið í bráð, sérstaklega ef
maður fengi tækifæri í þjálfuninni
hér úti. Það eru örugglega margir
sem myndu borga góðan pening
fyrir slíkt tækifæri.“
eirikur@frettabladid.is
Árið 2011 var mitt besta á ferlinum
Arnar Þór Viðarsson er lykilmaður hjá Cercle Brugge í Belgíu og hefur spilað hverja einustu mínútu á
tímabilinu. Hann mun sennilega hefja störf hjá félaginu sem þjálfari að leikmannaferlinum loknum.
í baráttunni Arnar Þór Viðarsson er hér til vinstri í búningi Cercle Brugge í leik gegn erkifjendunum og grönnunum í Club
Brugge. Leikurinn fór fram í nóvember og hafði Club Brugge betur, 1-0. nordiC photos/getty
Arnar Þór Viðarsson er í fámennum hópi en aðeins 21
leikmaður á meira en 50 landsleiki að baki. Arnar hefur
spilað 52 landsleiki á ferlinum en á þó ekki sérstaklega góðar
minningar frá síðasta landsleik, en þá tapaði Ísland fyrir
Liechtenstein ytra, 3-0. eyjólfur sverrisson hætti sem
landsliðsþjálfari eftir leikinn og Arnar hlaut aldrei náð
fyrir augum Ólafs Jóhannessonar, sem tók við.
„Ég sé ekki eftir neinu og er mjög sáttur við
minn feril,“ segir Arnar. „Það hefur aldrei skipt
mig máli hvað öðrum finnst um mig – bara
að fólkið sem þekkir mig og hefur unnið
með mér sé sátt við mig.“
Lars Lagerbäck er nýtekinn við íslenska
landsliðinu og með nýjum þjálfara koma ný
tækifæri fyrir leikmenn. „hver þjálfari velur sitt sterkasta
lið hverju sinni. ef ég er ekki hluti af því þá er það bara
þannig,“ segir Arnar, sem hefur þó auðvitað sínar skoðanir á
þessum málum. „Ég teldi það eðlilegt ef leikmaður sem væri
búinn að vera í atvinnumennsku í öll þessi ár og enn að spila í
hverri viku teldi sig nógu góðan fyrir landsliðið. en staðreyndin
er sú að það eru 3-4 ár síðan ég talaði við landsliðsþjálfara síðast
og ef kallið kæmi nú myndi ég bara skoða það. Ég hef ekki verið
að velta þessum málum fyrir mér. Kannski hefur það hjálpað mér
hjá mínu félagsliði að hafa ekki verið að spila og ferðast með
landsliðinu á sama tíma.“
Hefur ekkert hugsað um landsliðið
Snobbi eins og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Róbert Gunnarsson hafa stundum kallað sig eru
báðir að fara að taka þátt í sínu tíunda stórmóti á EM í Serbíu. Snorri Steinn var fyrst með á HM í Portú-
gal 2003 og hefur verið á öllum stórmótum síðan nema á HM í Túnis 2005. Róbert var fyrst með á EM í
Slóveníu 2004 og hefur ekki misst úr stórmót síðan. Þeir eru á leiðinni á sitt fimmta Evrópumót saman.
EM
í handbolta
2012
9
dagar
FótboLti Þriðja umferð ensku
bikarkeppninnar fer að mestu
leyti fram um helgina en hennar
er ávallt beðið með mikilli
eftirvæntingu af áhugamönnum
um enska boltann. Liðin í efstu
tveimur deildum Englands koma
nú inn í keppnina og mæta mörg
hver liðum úr neðri deildunum
og jafnvel utandeildum sem hafa
komist í gegnum langa og stranga
undankeppni sem hófst um
miðjan ágúst.
Alls voru 759 lið skráð til þátt
töku í þessari fornfrægu keppni
sem er elsta bikar keppni heims.
Lægst skrifaða liðið sem enn er
með í keppninni er Salisbury City
úr sjöttu efstu deild Englands
en liðið mætir Cdeildarliðniu
Sheffield United á útivelli.
Augu flestra munu þó beinast
að viðureign Manchester liðanna
City og United á morgun. Þó svo
að 64 lið hafi verið í pottinum
drógust þessir erkifjendur saman
en þau sitja nú í efstu tveimur
sætum ensku úrvalsdeildarinnar.
Heiðar Helguson, nýkrýndur
íþróttamaður ársins, og félagar í
QPR mæta MK Dons, sem leikur
í Cdeildinni, á útivelli klukkan
15.00 í dag. - esá
Fjörug bikarhelgi á Englandi:
Stórslagur í
Manchester
Helstu leikir helgarinnar
Laugardagur:
12.30 Birmingham - Wolves Stöð 2 Sport
15.00 Barnsley - Swansea
15.00 Everton - Tamworth
15.00 Fulham - Charlton
15.00 Gillingham - Stoke
15.00 Hull - Ipswich
15.00 MK Dons - QPR
15.00 Macclesfield - Bolton Stöð 2 Sport
15.00 Newcastle - Blackburn
15.00 Reading - Stevenage
15.00 Swindon - Wigan
15.00 Tottenham - Cheltenham
15.00 Watford - Bradford
15.00 West Brom - Cardiff
17.30 Bristol R. - Aston Villa Stöð 2 Sport
Sunnudagur:
13.00 Man. City - Man. Utd. Stöð 2 Sport
15.00 Chelsea - Portsmouth
15.30 Peterb. - Sunderland Stöð 2 Sport
koLLEgar sir Alex Ferguson heilsar
roberto Mancini. nordiC photos/getty
kostir til bættrar
munnhirðu