Fréttablaðið - 31.03.2012, Blaðsíða 36
31. mars 2012 LAUGARDAGUR36
1. Hvert verður þitt fyrsta verk til
breytinga verðir þú kjörinn biskup?
2. Hvernig hefði kirkjan átt að
bregðast við í máli kvennanna sem
ásökuðu Ólaf Skúlason biskup um
kynferðisbrot árið 1996?
3. Hefur þú og/eða myndir þú
gefa saman samkynhneigð pör?
Vinsamlegast rökstyddu svar þitt.
4. Telur þú að allir félagar í þjóð-
kirkjunni eigi að hafa kosningarétt í
biskupskosningum?
5. Finnst þér afstaða kirkjunnar til
mála hafa byggst um of á bók-
stafstrú?
SPURNINGAR FRÉTTABLAÐSINS TIL BISKUPSEFNA
S igurður Árni Þórðarson er fæddur árið 1953 og býr í Reykjavík. Sigurður Árni er giftur Elínu Sigrúnu Jónsdóttur og á fimm börn, þar af þrjú af fyrra hjónabandi.
Hann starfar nú sem prestur í Neskirkju í Reykjavík.
1979: Cand. theol. frá guðfræðideild Háskóla Íslands.
1989: Doktorspróf í guðfræði- og heimspekisögu við Vanderbilt háskóla í Tennessee.
1986 - 1991: Rektor í Skálholtsskóla.
1992 - 1995: Fræðslustjóri Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
1995 - 2004: Verkefnisstjóri á Biskupsstofu.
Hefur starfað sem prestur í Ásaprestakalli í Skaftafellsprófastsdæmi, Staðarfellsprestakalli í
Þingeyjarprófastsdæmi, við Hallgrímskirkju í Reykjavík og Neskirkju. Sigurður Árni er kirkjuþings-
maður og varamaður í kirkjuráði, situr í samkirkjunefnd kirkjunnar og er formaður framtíðar-
nefndar kirkjuþings. www.prestar.is
■ SIGURÐUR ÁRNI ÞÓRÐARSON
Agnes M. Sigurðardóttir er fædd árið 1954 og býr í Bolungarvík. Agnes á þrjú upp-komin börn og býr einsömul. Agnes starfar nú sem prófastur á Vestfjörðum og
sóknarprestur í Bolungarvíkurprestakalli.
1981: Cand. theol. frá guðfræðideild Háskóla Íslands. Vígðist sem æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar.
1986 - 1994: Sóknarprestur í Hvanneyrarprestakalli.
1994 - 2012: Sóknarprestur í Bolungarvíkurprestakalli.
1997: Nám í prédikunarfræði í Uppsala í Svíþjóð.
2006 - 2007: Skrifaði meistararitgerð um félagsmótun prestsbarna.
1999 - 2012: Prófastur á Vestfjörðum. www.prestar.is
■ AGNES M. SIGURÐARDÓTTIR
Lítið umburðarlyndi í bókstafstrú gagnvart breytingum í samfélaginu
5. Biblían skiptir kirkjuna höfuðmáli, hefur haft áhrif á menningarsögu heimsins og umbreytt
lífi milljóna. Ekki bara kristnir menn lesa Biblíuna. Gyðingar nota stóran hluta hennar og mús-
limar virða biblíuefnið mikils. Nútímamenning okkar verður ekki skilin vel nema kunna nokkuð
fyrir sér í Biblíunni og hvernig hún hefur verið túlkuð. Bókstafstrúin hefur lítinn áhuga á túlkun
og táknrænum boðskap og leitar fremur að óskeikulli leiðsögn. Bókstafstrú hefur ekki mikið
umburðarlyndi gagnvart því að samfélag og gildi hafa breyst og sér í siðfræði fornaldar boð um
líferni og skyldur kristins manns í nútíma. Kirkja okkar og aðrar lútherskar kirkjur hafa þegið í arf
að Biblían skuli lesin út frá persónu Jesú Krists og boðskapur hennar sé túlkaður í ljósi reynslu
manneskjunnar. Þannig þjónar Guðs orð velferð og frelsi manneskjunnar í heimi, sem kreppir og
dæmir. Afstaða kirkjunnar á að mótast af því.
Afstaða kirkjunnar ekki byggð á bókstafstrú
5. Því fer fjarri. Bókstafstrú hefur engan veginn verið í forgrunni í kirkjustarfi á Íslandi. Kirkjan
hvílir á ríkri og dýrmætri hefð og þegar taka þarf afstöðu til mála sem snerta kenningu hennar,
boðun og helgihald þarf að taka ákvörðun sem byggist á rannsókn ritninganna og kirkjulegrar
hefðar. Ef með spurningunni er átt við afstöðuna til samkynhneigðar þá var vel og faglega unnið
í því máli innan þjóðkirkjunnar í því skyni að ná niðurstöðu. Það tókst og skilaði að minni hyggju
mjög farsælli niðurstöðu. Hlutverk kirkjunnar er og verður ætíð að boða trú á Jesú Krist. Undan
því hlutverki getur hún ekki vikist og sú trú verður að móta alla breytni hennar.
Ætti að leyfa fleirum innan þjóðkirkjunnar að kjósa biskup
4. Ég vil auka áhrif kirkjufólksins á stjórn þjóðkirkjunnar. Það verður til að efla kirkjustarfið en
ekki minnka völd og virkni prestanna. Kosningaþátttaka í fyrri hluta biskupskjörsins var framúr-
skarandi. Nú var kosið eftir nýjum reglum, sem fjölga kjörmönnum mjög. Í fyrsta sinn eru prestar
ekki í meirihluta þeirra sem kjósa biskup, heldur leikmenn sem gegna trúnaðarstörfum í þjóð-
kirkjunni. Ég hef sannfærst um að þetta var gæfuspor. Taka á örugg en markviss skref í þessum
efnum og mér sýnist að ganga megi lengra og fjölga kjörmönnum. Þjóðkirkjan má njóta hinnar
merkilegu og öflugu hugmyndar um hinn almenna prestdóm – sem færir ábyrgð og myndug-
leika til allra sem eru skírðir. Biskupinn er kallaður af söfnuðunum í landinu og þau, sem hafa
köllun til að þjóna kirkjunni sinni og taka virkan þátt í starfi hennar, eru að sjálfsögðu hæf til að
velja biskup.
Nauðsynlegt að meta reynsluna
áður en breytingar verði gerðar
4. Það er kirkjuþing sem setur starfsreglur
um biskupskosningu. Þær reglur sem nú er
kosið eftir eru nýjar af nálinni og sjálfsagt að
meta reynsluna af fyrirkomulaginu áður en
ráðist verður í frekari breytingar.
Mun halda áfram að gifta samkynhneigð pör
3. Já. Ég mun næst þjóna við slíka athöfn í Dómkirkjunni 30. júní. Þjóðkirkjan var samstíga
löggjafanum þegar ný hjúskaparlög tóku gildi 27. júní árið 2010. Þann dag tók einnig gildi nýtt
hjónavígsluform í kirkjunni, fyrir alla sem gifta sig í kirkju, samkynhneigða og gagnkynhneigða.
Samkynhneigðir njóta fullra réttinda í samfélagi okkar og líka í þjóðkirkjunni. Bæn fyrir hjóna-
efnum lýtur ætíð að því sama, að þeim auðnist að elska, treysta og vera trú á lífsgöngunni.
Þjóðkirkjan lítur hjónaband samkynhneigðra sömu augum og hjónaband karls og konu. Sömu
áskoranir og gleðiefni mæta þeim og kirkjan býður samfylgd og samtal í gegnum lífsgönguna.
Ætti ekki að þvinga presta til
verka sem samviskan leyfir ekki
3. Ég hef ekki verið beðin um að gefa saman
samkynhneigð pör en ég gerði það, væri ég
beðin. Kirkjan náði farsælli niðurstöðu í því
máli og var mjög framarlega í því sambandi
miðað við kirkjur í nágrannalöndunum. Mér
finnst líka mjög mikilvægt að samviskufrelsi
presta sé virt og prestar séu ekki þvingaðir til
að vinna verk sem samviska þeirra leyfir ekki.
Ólafur Skúlason hefði átt að víkja á meðan málið væri kannað
2. Fagfólk um eðli og afleiðingar kynferðisbrota hefur kennt okkur, að þegar mál af þessu tagi
koma upp, hefur fólk innan viðkomandi stofnunar tilhneigingu til að slá vörð um stofnunina
sjálfa fremur en að koma þolanda ofbeldisins til hjálpar. Þetta kom í ljós þegar ásakanir gegn
Ólafi komu fram árið 1996. Stjórnkerfi og stjórnunarmenning kirkjunnar á þeim tíma var til
hindrunar að ásakanir væru kannaðar á faglegan hátt. Þetta leiddi skýrsla rannsóknarnefndar
kirkjuþings í ljós. Eðlilegra hefði verið að mæta konunum, sem stigu fram, og leyfa þeim að segja
sögu sína og trúa þeim. Sá, sem borinn var sökum, hefði átt að víkja á meðan kannað væri hvað
væri hæft í ásökunarefnum. Kirkjan hefur lært af reynslunni og tileinkað sér ný vinnubrögð í
meðferð kynferðisbrota síðustu árin. Þjóðkirkjan hefur nú verkferla og kunnáttu til að bregðast
við kynferðisbrotamálum. Starf Fagráðs um meðferð kynferðisbrota er gott og til fyrirmyndar.
Engir verkferlar voru til þegar biskupsmálið kom upp fyrir 16 árum
2. Umrætt mál hefur verið mörgum afar erfitt, ekki síst konunum sem brotið var á. Aðalatriðið
er að nú er hægt að takast á við mál strax og þau koma upp, hvar svo sem meintur gerandi er
staddur í valdastiganum. Það er í sjálfu sér auðvelt nú 16 árum eftir atburði að segja eitthvað
í viðtengingarhætti um hvernig hefði átt að bregðast við og það vil ég síður gera. Þegar þessi
mál komu upp á sínum tíma voru engir þeir verkferlar til sem hægt var að vinna eftir. Og það
gilti ekki aðeins um þjóðkirkjuna heldur aðrar stofnanir þjóðfélagsins líka. Fljótlega hóf þjóð-
kirkjan mikla vinnu í sambandi við að móta verkferla til þess að vinna út frá ef mál hliðstæð
þessu kæmu upp. Og þjóðkirkjan hefur síðan verið framarlega í sambandi við vinnu af þessu
tagi miðað við aðrar stofnanir. Í rannsóknarskýrslu Kirkjuþings sem út kom í fyrra er komið inn á
hvernig við var brugðist og hvað bar út af.
Málefni barnafjölskyldna og fjármálin mest aðkallandi verkefnin
1. Fólk og fjármál eru fyrstu viðfangsefnin og fólkið er í forgangi. Mitt fyrsta verk verður að
kalla barnafræðara kirkjunnar til átaks í þágu barna og barnafjölskyldna. Börnin eru dýrmæti
og framtíð þjóðarinnar og kirkjunnar. Svo vil ég hefja virkt samtal og samfylgd með prestum,
djáknum og sjálfboðaliðum í þjóðkirkjunni. Í starfsfólki kirkjunnar er mannauður. Biskupinn á
að fylgjast með, uppörva og leiðbeina, samgleðjast þegar vel gengur og benda á það sem betur
má fara. Við þurfum að breyta sinnuleysi og kulda í athygli og umhyggju því glatt fólk vinnur vel.
Varðandi fjármál er knýjandi að leiðrétta skerðingar á trúfélagsgjöldum, sem hafa þrengt mjög
að kirkjustarfi um allt land. Biskup á að beita sér fyrir að endurheimta félagsgjöldin. Það er mikil-
vægara en nokkru sinni fyrr að kirkjan sé virk og haldi sjó í þeim erfiðleikum sem eru þaulsetnir í
íslensku samfélagi.
Mun fyrst kynna sér málin og fá yfirsýn
1. Ef ég verð kjörin biskup mun ég fyrst og fremst vinna að því að kynna mér málin og fá yfirsýn.
Það þarf ugglaust að breyta ýmsu í stjórn og starfsháttum kirkjunnar en biskupinn er engan
veginn sá aðili sem hefur eitthvert allsherjarvald. Önnur kirkjuleg stjórnvöld eru kirkjuþing og
kirkjuráð, auk prestastefnu og biskupafundar. Kirkjuþing hefur æðsta vald í málefnum kirkjunnar
og engar breytingar geta orðið nema kirkjuþing samþykki þær. Frá árinu 1998 eða í nær 15 ár
hefur þjóðkirkjan verið sjálfstæð stofnun með frelsi í bæði ytri og innri málum sínum innan
lögmæltra marka. Það þarf að meta þá reynslu sem fengist hefur af því fyrirkomulagi og út frá
því byggja endurskoðað skipulag.
Kirkjan fær brátt nýjan leiðtoga
Tveir prestar urðu efstir í fyrri umferð biskupskosninga; kona og karl. Þau sammælast um að mörgu verði að breyta innan kirkj-
unnar þó afstaða þeirra til aðferðanna sé um margt ólík. Biskupsefnin svöruðu spurningum Sunnu Valgerðardóttur um fyrstu
verkefni sín sem biskup, viðbrögð kirkjunnar í máli Ólafs Skúlasonar, hjónabönd samkynhneigðra, kosningar og bókstafstrú.
Talið var í fyrri umferð biskupskjörsins þann 23. mars síðastliðnum. Á kjörskrá voru 502 manns
og 95 prósenta þátttaka var í kosningunni.
Agnes fékk flest atkvæði, eða 131 og 27,5 prósent allra atkvæða. Sigurður Árni fékk næstflest
atkvæði, eða 120 og 25,2 prósent heildarfjöldans. Í þriðja sæti var Sigríður Guðmarsdóttir með
76 atkvæði.
Í síðari umferð kosninganna stendur valið á milli Agnesar og Sigurðar Árna. Frestur til að skila
atkvæðum og yfirlýsingu um að viðkomandi hafi kosið á Biskupsstofu rennur út mánudaginn 16.
apríl næstkomandi.
AGNES FÉKK FLEST ATKVÆÐI Í FYRRI UMFERÐ