Fréttablaðið - 31.03.2012, Page 52
Árlega leitar fjölbreyttur hóps fólks eftir aðstoð hjá
Hjálparstarfi kirkjunnar. Vandi þeirra er fjölþættur og
margháttaðar orsakir liggja að baki stöðu þeirra.
Margir búa við sára fátækt, hafa litla menntun, lítinn
félagslegan stuðning og þó nokkrir hafa einangrast
félagslega vegna aðstæðna sinna. Þjónusta Hjálparstarfs
kirkjunnar felst meðal annars í því að veita þessum hópi
fólks mataraðstoð, fataúthlutun, styrki til lyfjakaupa
og félagslega ráðgjöf. Mikilvægur þáttur í starfinu er
stuðningur við efnalítil börn og unglinga til að gera
þeim kleift að stunda nám og taka þátt í tómstundum og
öðru félagslífi.
Aukin þörf eftir hrun
Efnahagshrunið haustið 2OO8 hafði í för með sér
breytingar á fjárhagsstöðu margra. Aukin þörf skapaðist
fyrir aðstoð hjá hjálparstofnunum og fjöldi sem til þeirra
leitaði jókst verulega. Til Hjálparstarfs kirkjunnar leitaði
nýr hópur fólks sem aldrei hafði sótt um aðstoð áður.
Jafnframt lækkaði meðalaldur þeirra einstaklinga sem
óskuðu eftir aðstoð og hópur yngsta fólksins sem voru
á aldrinum 18–22 ára stækkaði nokkuð. Innanlands aðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar margfaldaðist eftir efnahagshrunið.
Valdefling og notendasamráð
Starfsfólk og sjálfboðaliðar Hjálparstarfs kirkjunnar
skynjuðu þörf fyrir aukna og breytta aðstoð og brugðust
fljótt og faglega við til að mæta þörfum fólksins. Þegar
verið er að vinna með félagsleg vandamál og aðstæður
í lífi fólks er ekki hægt að gefa ákveðna forskrift
hvernig bregðast eigi við vandanum. Mikilvægt er þó
að fagfólk beiti faglegri þekkingu og geti fært rök fyrir
aðferðum sínum og nálgunum. Hjá Hjálparstarfi
kirkjunnar starfa félagsráðgjafar sem nýttu faglega
þekkingu sína til að koma á breytingum við matar-
úthlutun og aðra aðstoð. Leiðarljós breytinganna var
hugmyndafræði valdeflingar og notendasamráðs til að
mæta þörfum notenda þjónustunnar. Markmiðið með
valdeflingu er að bæta félagslega stöðu og almenn
lífsgæði fólks. Með valdeflingu er verið að gera fólki
kleift að breyta aðstæðum sínum sér í hag og draga
fram þarfir sínar með þroska og eflingu á sjálfsmynd,
sjálfsvirðingu og lífsgæðum. Með valdeflingu er lögð
áhersla á val, vald og ákvörðunarrétt þeirra sem á
þjónustu þurfa að halda. Notendur þjónustunnar eru
gerðir meðvitaðir um að þeir hafi rétt til að hafa áhrif
á þjónustuna sem þeim er veitt, þeir eru sérfræðingar
í eigin lífi og hafa upplifað þær aðstæður sem verið er
að reyna að breyta. Hugtakið notendasamráð er
nátengt valdeflingu. Þar sem notendasamráði er beitt
er áhersla lögð á lýðræðislega nálgun, samvinnu,
samráð og þátttöku notandans svo hann stýri sjálfur
þeirri þjónustu sem hann fær. Með notendasamráði er
hægt að bregðast fljótt við þeim óskum sem fram
koma. Notandinn þekkir aðstæður sínar og getur gefið
mikilvægar upplýsingar um hvernig þjónusta hentar
honum til að mæta þörfum sínum. Hugtökin valdefling
og notendasamráð tengjast bæði lífsgæðum og
almennum mannréttindum, þau eru ekki íhlutun eða
stjórnunaraðferðir heldur hugmyndafræði sem unnið
er eftir til að efla fólk til sjálfshjálpar.
Inneignarkort tekin upp og ráðgjöf aukin
Ákvarðanir um breytingar á þjónustu Hjálparstarfs
kirkjunnar voru teknar á grunni þess hver þörfin var
fyrir aðstoð eins og hún birtist í viðtölum við notendur
þjónustunnar. Breytingar voru gerðar á framkvæmd
mataraðstoðar, starf sjálfboðaliða var aukið og skipulagt
af fagfólki stofnunarinnar til að gera vinnuna árangursríkari.
Breytingarnar fólu í sér að notendur þjónustunnar fengu
inneignarkort í matvöru verslanir í stað matargjafa í poka.
Þeir sem fá inneignar kort þurfa að koma með gögn um
tekjur sínar og gjöld til að sýna fram á þörfina fyrir
aðstoð. Samfara breytingum á mataraðstoð var bæði
félagsleg- og fjármálaráðgjöf aukin verulega og komið
var á lífsleikni námskeiðum fyrir fullorðna. Starfsfólk
Hjálparstarfsins taldi að með aukinni faglegri ráðgjöf
og stuðningi gæti fólk náð skrefinu lengra í lífi sínu
með því að hafa heildarsýn yfir aðstæður sínar. Lögð
var áhersla á að finna úrræði og úrlausn á stöðu hvers
og eins. Fólk var stutt til sjálfshjálpar til að stuðla að
því að það þyrfti ekki að reiða sig eingöngu á utanað-
komandi aðstoð hjálparstofnana.
Rannsókn leiðir í ljós ánægju með breyttar áherslur
Haustið 2O11 gerði undirrituð rannsókn á upplifun
notenda þjónustu Hjálparstarfs kirkjunnar af breyttum
áherslum á mataraðstoð og starfsaðferðum. Niðurstöður
þeirrar rannsóknar benda til að notendum þjónustunnar
sem rætt var við líkaði þjónustan betur eftir breyting-
arnar og auðveldaði þeim margt. Með inneignarkortum
gátu viðmælendur í rannsókninni skipulagt innkaup sín
og valið og keypt það sem þeir vildu borða. Einnig kom
fram í niðurstöðunum að fólkið gat ekki alltaf nýtt sér
það sem var í matarpokunum af ólíkum ástæðum.
Mikilvægur þáttur var einnig sá að notendur þjónust-
unnar upplifðu sig sem þátttakendur í daglegu lífi
samfélagsins í stað þess að upplifa niður lægingu við að
bíða eftir mat í biðröð. Viðmælendum fannst flestum
alveg sjálfsagt að koma með gögn um tekjur sínar og
gjöld til að sýna fram á þörf sína fyrir aðstoð. Mörgum
fannst það jafnvel gott því að á þann hátt lá það ljóst
fyrir að þau þurftu á aðstoðinni að halda í raun.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að allir viðmælendur
voru ánægðir með breytt fyrirkomulag og telja sig
hafa aukið val í annars erfiðum aðstæðum sínum. Það
kom líka fram í svörum þeirra að þeir hefðu ekkert val
um það hvort þeir leituðu til hjálparstofnana eða ekki,
staða þeirra væri þannig og þörfin brýn.
Fræðimenn hafa bent á að val og þátttaka er nauðsynleg
og ein af grunnþörfum mannsins. Fram kom hjá
við mælendum að þeir vildu aukið sjálfstæði og ekki þurfa
að vera í þeirri stöðu að vera bara þiggjendur. Þeir
töldu ráðgjöfina mikilvæga þar sem hún gæti dregið úr
einangrun og aukið sjálftraust og virkni þeirra. Allir
viðmælendur sögðust þakklátir fyrir það að geta lagt
sitt af mörkum með því að taka þátt í rannsókninni.
Ölmusuhugsun verði útrýmt
Í ljósi þessara niðurstaðna má hvetja velferðarkerfið
og hjálparstofnanir til að gera notendum það kleift að
hafa áhrif á stöðu sína í samfélaginu. Þátttaka getur
falist í ólíkum verkum og framkvæmdum. Mikilvægt er
að vinna í samvinnu við notendur þjónustunnar og þeir
sjálfir komi með hugmyndir að framtíðaráætlunum sem
hæfa getu þeirra og óskum. Í þeirri vinnu verður að
tryggja að mannréttindahugsun verði höfð að leiðarljósi
og ölmusuhugsun verði útrýmd til að tryggja gagnkvæma
virðingu og skilning allra aðila. Það verður að skapa
þær aðstæður í samfélaginu að allir eigi möguleika á
að bæta aðstæður sínar og ná skrefi lengra í lífinu.
Það verður ekki gert fyrir hvern og einn, hver einstak-
lingur ber ábyrgð á sjálfum sér og sinni velferð. Hins
vegar er hægt að skapa aðstæður sem auka velferð
sem flestra og gera öllum kleift að vera þátttakendur
í samfélaginu á einn eða annan hátt. Það er verkefni
framtíðarinnar að finna leiðir til að hámarka hagnað
íbúanna sem eru bestu lífsgæði öllum til handa.
Katrín G. Alfreðsdóttir
meistaranemi í félagsráðgjöf
Fagleg rök ráða starfsaðferðum
49,2
47,3
44,2
43,4
41,4
4O
42
44
46
48
5O
2OO7 2OO8 2OO9 2O1O 2O11
6 – Margt smátt ...
Meðalaldur þeirra sem fá aðstoð