Fréttablaðið - 31.03.2012, Síða 110
31. mars 2012 LAUGARDAGUR70
B
ankið á hurðina er
veikt. Dágóð stund
líður áður en tekið er
í húninn og krúnu-
rökuðu höfði stung-
ið hikandi inn um
gættina á litlu hótelherbergi Soho
Hótelsins í Lundúnum. Andlitið er
mjóslegið og á nefinu hvíla silfruð
spangargleraugu. Búkurinn sem
fylgir höfðinu inn um dyrnar full-
komnar staðalímyndina sem flestir
hafa af ungum karlmönnum sem
hafa gaman af fantasíum; mjósleg-
inn, klæddur sniðlitlum gallabuxum
og stuttermabol með mynd af pixl-
uðum tölvuleikjafígúrum að slást.
Dan Weiss er annar tveggja
framleiðenda og handritshöfunda
fantasíu þáttanna Game of Thrones
sem byggðir eru á bókum rit-
höfundarins George R. R. Martin.
Ekki hefðbundin fantasía
Þættirnir, sem gerast í skálduðum
miðaldaheimi þar sem sjö fjölskyld-
ur heyja blóðuga baráttu um völd
og járnhásæti, eru í aðra röndina
hefðbundin fantasía. Um moldugar
götur innan borgarveggja arka
brúnaþungir, hár fagrir karlmenn
sveipaðir efnis miklum skikkjum
og úfnum gærum sem líkjast
helst aftur göngum úr búninga-
safni Hrafns Gunnlaugssonar.
Um grænar gresjur ríða hestum
vöðva stælt tröllmenni með augn-
farða í fylgd fáklæddra kvenna
með hár niður á mjaðmir. En varast
skal að láta loðið yfirborðið, eld-
spúandi drekana og yfirnáttúru-
legar óvættirnar blekkja. Game
of Thrones er langt frá því að vera
venjuleg fantasía.
Á hæla Weiss inn í herbergið
fylgir hinn helmingur tvíeykisins
bak við verðlaunaþættina.
Ef Dan Weiss er hold gervingur
þeirra gilda sem virðast á yfir-
borðinu liggja til grundvallar
Game of Thrones er David Benioff
lifandi líkneski alls þess sem flest-
ir töldu ómögulegt að fantasíu-
sjónvarpsþáttur gæti nokkru sinni
verið uns Game of Thrones tók að
birtast á skjáum um heim allan:
Fágaður, svalur og fjöldanum að
skapi. Klæddur óaðfinnanlega
pressaðri bláköflóttri skyrtu undir
að sniðnum bleiserjakka geislar af
honum áreynslulaus Hollywood-
„glamúr“. Og gljáinn er ekta. Til
margra ára hefur Benioff starfað
farsællega sem handritshöfundur
í borg englanna. Eftir hann liggja
myndir á borð við Troy og The 25th
Hour. Og til að fullkomna pakkann:
Benioff er kvæntur Hollywood leik-
konunni Amöndu Peet sem margir
þekkja úr kvikmyndinni The Whole
Nine Yards.
Þar sem við sitjum undir rauð-
rósóttum rúmgafli sem áfastur
er veggnum – rúmið hefur verið
fjarlægt og í þess stað er komið
dúkalagt borð – gera samstarfs-
mennirnir og vinirnir til fjölda ára
tilraun til að greina hvernig Game
of Thrones tókst hið ómögulega; að
endurheimta fantasíu-greinina úr
greipum nördanna og fanga áhuga
hins almenna manns.
Höfða til breiðs hóps
Weiss segir það eðli sögunnar
sem veldur því til hve breiðs hóps
þættirnir ná. Þungamiðja hennar
sé ekki drekarnir eða seið konurnar
– í henni sé mun minni áhersla lögð
á galdra og hið yfirnáttúrulega
en venjan er í fantasíum – heldur
alvöru fólk sem tekst á við alvöru
vandamál. „Sögusvið þáttanna er
vissulega fantasíuheimur,“ segir
hann og liggur lágt rómur. „En
þegar alls er gætt fjalla þættirnir
einfaldlega um venjulegt fólk með
venjulega drauma, vonir og þrár.
Baráttan um völd er eins alls
staðar; ást sem fólk ber til fjöl-
skyldu sinnar er eins alls staðar; og
átökin milli þessara tveggja þátta
– hvernig þeir orka hvor á annan
– er eins alls staðar. Von okkar er
að Game of Thrones séu fantasíu-
þættir eins og Sópranó-fjölskyldan
er mafíósa-þættir; helgaðir ákveð-
inni kvikmyndagrein og tilheyra
sem slíkir ákveðnum flokki en taka
jafnframt á almennum mannlegum
málefnum sem varða okkur öll.“
Er þeir Weiss og Benioff hófu
fyrst vinnu við þættina lifðu þeir
í stöðugum ótta við að sverð-
sveiflandi lávarðar og kjaftforir
dvergar myndu í besta falli trekkja
að dyggan en óhjákvæmilega lítinn
hóp fantasíu-aðdáenda. Raunin
varð önnur útskýrir hinn prúðbúni
Benioff og leggur svo fagmannlega
Úr greipum nördanna
Aðstandendur sjónvarpsþáttanna Game of Thrones óttuðust að sverð-sveiflandi lávarðar og eldspúandi drekar myndu aðeins
höfða til lítils hóps fantasíu-nörda. Raunin varð önnur. Undir rauðrósóttum rúmgafli tók Sif Sigmarsdóttir tali tvíeykið á bak við
þættina og fór vel á með þeim er þau ræddu um væntingarnar og velgengnina. En skyndilega skipaðist veður í lofti.
ÞRÍR VINIR Mennirnir á
bak við Game of Thrones,
handritshöfundarnir og
framleiðendurnir David
Benioff og Dan Weiss
ásamt höfundi bókanna
George R.R. Martin, til
hægri.
Baráttan um völdin heldur áfram í annarri þáttaröð Game of Thrones.
Barátta Lannister og Stark fjölskyldnanna leikur sem fyrr lykilhlutverk í
þáttunum. Á myndunum má sjá Joffrey Baratheon sem tilheyrir Lannister-
ættinni og situr á valdastóli í Vesturási. Robb Stark (til hægri) hefur hins
vegar ekki mikinn áhuga á að lúta hans stjórn.
Sýningar á þáttunum hefjast á mánudag á Stöð 2 en þættirnir verða sýndir
á stöðinni sólarhring á eftir að þeir eru frumsýndir í Bandaríkjunum.
SLEGIST UM VÖLDIN Í ÆVINTÝRAHEIMI GAME OF THRONES
NORDICPHOTO/GETTY
snyrtar hendur á borðið að ólíklegt
verður að teljast að þær hafi gert
mikið af því að fletta blaðsíðum lítt
þekktra fantasíuskáldsagna eða fitla
við tölvuleikjafjarstýringar. „Ein
algengustu og ánægjulegustu við-
brögðin sem við fengum við fyrstu
seríunni voru: „Ég er ekki hrifinn af
fantasíum og þegar ég heyrði fyrst
um þáttinn – að í honum væru drek-
ar og slíkt – vissi ég að ég hefði ekki
áhuga. En svo horfði ég á einn þátt,
féll samstundis fyrir karakterunum
og nú er ég húkkaður.“ Það var
mesta hrós sem við gátum fengið.“
13 Emmy-tilnefningar
Rétt eins og formúlukenndur
Hollywood-„glamúr“ Benioff er
ekta eru vinsældir þáttanna ekta.
Þeir teljast nú fimmtu vinsælustu
þættir í sögu kapalstöðvarinnar
HBO sem framleiðir þá og fylgja
þeir fast á hæla Sex and the City.
Þættirnir hlutu 13 tilnefningar til
Emmy verðlaunanna og tvær til
Golden Globe verðlaunanna. Samn-
ingar voru gerðir um framleiðslu
annarrar seríu aðeins tveimur
dögum eftir að fyrsti þátturinn
var sýndur í sjónvarpi og er frum-
sýningar hennar í apríl beðið með
eftirvæntingu.
En þrátt fyrir velgengni eru
Weiss og Benioff lítillátir. Þeir eru
yfirvegaðir í fasi, ef ekki feimnir.
Nafnið George ber ítrekað á góma
en félögunum er mikið í mun að
deila heiðrinum með höfundi bók-
anna sem þættirnir eru byggðir á.
„George hefur tekið töluverðan
þátt í öllu ferlinu,“ segir Benioff
og útlistar aðkomu rit höfundarins
að framleiðslu þáttanna: Hann
skrifaði handrit að einum þætti í
hvorri seríu, hann tók þátt í að velja
leikarana auk þess sem hann er sér-
legur ráðgjafi þegar kemur að því
að skapa heim bókanna.
Rætt um rétt útlit dreka
„George hafði til að mynda mjög
ákveðnar skoðanir á því hvernig
drekarnir líta út,“ segir Benioff
og strýkur lófanum yfir þykkt,
dökkt hárið sem nemur við sterk-
legan kjálka settum grófum skegg-
broddum. „Hann vildi tryggja að
drekarnir hefðu tvo fætur – ekki
fjóra fætur og vængi. Tvo fætur
og vængi.“ Benioff glottir. „George
hefur hugsað um dreka mun lengur
en við.“ Í sömu andrá hallar Weiss
sér fram og grípur orðið: „Ég eyddi
reyndar löngum stundum í að velta
fyrir mér útliti dreka þegar ég var
tólf ára.“ Hann hlær hikstakenndum
hlátri. Játningin kemur ekki á óvart.
Fæstir almennir lesendur höfðu
heyrt rithöfundarins George R.
R. Martin getið fyrr en sjónvarps-
þættir Benioff og Weiss komust í
hámæli. Árum saman hafði hann
hins vegar getið sér gott orð meðal
svokallaðra fantasíu-nörda. Innan
þeirrar kreðsu breiddist orðspor
hans út er meðmæli gengu frá
manni til manns með bókaflokki
hans sem ber heitið A Song of Ice
and Fire og þættirnir Game of
Thrones eru byggðir á. Fljótt fundu
aðdáendur bókanna, sem nú eru
orðnar fimm að tölu, sér vettvang
á veraldarvefnum til að eiga sam-
skipti sín á milli. Fjöldi aðdáenda-
síðna og vef-spjallsvæða spratt upp
tileinkaður epískri sögunni. En ást
aðdáenda er hverful. Hluti þeirra
snerist nýverið gegn höfundinum
í óþreyju sinni eftir að fá að vita