Heimilisritið - 01.07.1947, Blaðsíða 45
Framhaldsgrein eftir JOHN
MASEFHELD - fimmti hluti
Flóttinn frá Dunkirk
Eftir John Masefield
Sjúkraflutningaskip höfðu þeg-
ar orðið fyrir allmiklu tjóni, enda
þótt þau bæru upplýstan Rauða-
kross og hefðu uppi Rauðakross
fána. í leiðarbókum þeirra stend-
ur: „Skipið varð fyrir hörðum loft-
árásum. — Atta skipverjar hafa
fengið taugaáfall af fallbyssuskot-
um. Arásirnar á þessi spítalaskip
voru gerðar að yfirlögðu ráði“.
„Eitt skipti, kl. 8.15 þann 31.
varð skipið fyrir sjö mismunandi
loftárásum. Segulmagnað tundur-
dufl féll svo nærri okkur, að við
urðum að snúa við til að sleppa
við það. Tuttugu mínútum seinna
sprakk annað tundurdufl tæpa
hundrað metra framundan. Spreng-
ingin lyfti skipinu að nokkru leyti
upp úr sjónum. Annað féll aðeins
fet frá framstafni, en sprakk ekki.
Við höfðum sífelldar áhj7ggjur
vegna árásarflugvéla“.
Eftir að áskoruninni hafði verið
útvarpað, voru tvö spítalaskip,
Paris og Worthing, send á vett-
vang til þess að flytja á brott hina
særðu menn. Worthing varð fyrir
árás tólf sprengjuflugvéla og
neyddist til að snúa aftur. Kl. 7.15
e. h. tilkynnti París, að það hefði
orðið fyrir sprengjuárás. Dráttar-
bátar voru sendir því til aðstoð-
ar, en skipið var að farast, og sökk
loks rétt eftir miðnætti. Þessi loft-
árás á Paris var gerð í fullri dags-
birtu, nálægt kl. 7 síðdegis. Ahöfn
á skipi skammt aftur af'París, „sá
þýzkar flugvélar gera vélbyssuá-
rásir á báta frá skipinu, en í þeim
voru hjúkrunarkonur og læknar“.
Foringi úr landgönguliðinu, sem
tók þátt í björgun af skipinu, segir:
„Við höfðum ærið að starfa við
spítalaskipin. Þeir, sem komust af
á Paris höfðu bæði orð'ið fyrir
sprengju- og vélbyssuárásum. Að-
stoð veitt níutíu og tveim manns,
þar á meðal fimm hjúkrunarkon-
um, hættulega særðum“. Hann
bætir við: „Flest af skipunum, sem
sigldu til Dunkirk, urðu fyrir
HEIMILISRITIÐ
43