Heimilisritið - 01.07.1947, Blaðsíða 58
um, þegar hann myrti manninn
yðar? Og gleymdi hann henni og
skiidi hana eftir í herberginu? Sá-
uð þér hana, þegar þér komuð að
Ivan deyjandi og létuð hana inn í
skápinn, til þess að bjarga Rob,
áður en þér fóruð að stumra yfir
manni yðar?“
„Nei, nei — það var allt eins og
ég hef skýrt yður frá —“
„Og um nóttina, þegar þér kom-
uð niður til þess að leita að bréf-
inu, sáuð þér arsenikið?“
„Ja — að minnsta kosti —“
„Búðarmaðurinn, sem afg'reiddi
það, hefur lýst arsenikpakkanum
þannig: lítill poki úr þykkum
pappír, vel innpakkaður og bund-
ið utan um hann. Hann sást í
skápnum, kvöldið. sem morðið var
framið, en við vorum ekki að leita
að arseniki og vissum ekkert um
það. Skammt þaðan var bréfið,
sem þér fenguð frá Rob — og hníf-
urinn. Beatrice fann umsiagið ut-
an af bréfinu og lét mig síðar fá
það í hendur. Og þar hefur bréfið
einnig verið“.
Marcia heyrði blóðið hamra fyr-
ir hlustum sér. Auðvitað hafði
hann komizt að þessu — það hefðu
þau alltaf mátt vita.
Wait var orðinn ákafur og beið
'ekki eftir svari hennar. „Við telj-
um áreiðanlegt, að hún muni hafa
haft það með höndum, þangað til
það barst okkur og við sáum hvers
efnis það var. Regar hún fekk mér
56 '
umslagið, kvaðst hún hafa fundið
það hér í húsinu, en ekki hafa hug-
rnynd um bréfið, sem í því hefði
verið. Hún þóttist ekki heldur
þekkja rithöndina. Líklega hefur
hún fyrst og fremst verið að leiða
gruninn af sér á yður. Svo, þegar
við vissum, að þér hefðuð verið
að leita að einhverju í bókastof-
unni, fórum við sjálfir að leita bet-
ur. En arsenikpakkinn hafði þá
þegar verið tekinn, áður en við
höfðum veitt honum sérstaka at-
hy.gli. Ég skil ekki, hvers vegna
hann var hirtur og honum kastað
í garðtjörnina, nema morðinginn
hafi af einhverjum ástæðum viljað
losnað við hann. En hvað um það,
við voruiíi auðvitað ekbert hissa,
þegar okkur barst bréf Robs til
yðar. Við höfðum gert ráð fyrdr
einhverju slíku. En það, að Bea-
trice hefur sennilega haft bréfið
með höndum, er eitt atriðið í máis-
höfðun okkar gegn Rob. Hann
hafði þa.r með ástæðu til að myrða
hana“. #
Og þau höfðu ætlað að reyna að
láta hann ekki komast að þessu.
Hvaða fleiri glappaskot höfðu þau
gert ?
Hann leit snögglega á armbands-
úr sitt og sagði hvatlega: „Ef Bea-
trice hafði bréfið, en afhenti mér
það þó ekki, þá var einhver ástæða
til þess. Og — þér vissuð að hún
hafði það og Rob vissi það líka —.
Og því myrti hann hana —“.
HEIMILISRITIÐ