Heimilisritið - 01.07.1947, Side 61

Heimilisritið - 01.07.1947, Side 61
Hún reis á fætur og gekk fram, hálfstirð í fótleggjunum. Henni fannst hið lága fótatak sitt láta hátt í eyrum í ömurlegri þögn hússins. Það var Ijós í anddyrinu og hvorki heyrðist né sást til nokkurs manns. Delia og Emma Beek voru víst gengnar til náða fyrir góðri stund Hún gekk inn í borðstofuna og kveikti. Svo fór hún inn í setustofu og kveikti þar líka. Enginn var sjáaniegur. Hún gekk aftur inn í bókastof- una og furðaði sig á því, að hjúkr- unarkonan skyldi ekki koma. Lík- Lega væri ekki vert að bíða lengur eftir henni. í bókastofunni heyrðist meira á en ajinars staðar. Regnhijóðið varð háværara. Allt í einu tók hún eftir því, að gluggadyrnar opnuðust. XIX. KAPÍTULI. HENNI BRÁ ónotalega. Eftir andartak kom Blakie læknir í ijós í dyragættinni, utan úr rigningunni og mvrkrinu, og dustaði bleytuna af regnkápu sinni. Hún rak upp ofurlágt hræðsluóp. Ilann leit fljótlega upp og flýtti sér að segja: ..Ó, vina mín. ég ætlaði sízt af öllu að hræða þig“. Hann lagði káp- una á stólbak og kom tii hennar. „Mér þykir þetta ieitt“. „Það er allt í lagi. Ég var alein og dálítið taugaóstyrk“. Hún lét sig falla niður í stóra stólinn og tókst að brosa lítið eitt. „Ég hringdi forstofumegin“, sagði hann í afsökunartón. „En það anzaði enginn, svo að þegar ég 'gekk hér fram hjá og sá Ijós, opn- aði ég gluggadyrnar. Það er ekki rétt að skilja þig svona eina eftir hér. Hvar er hjúkrunarkonan, sem ég sendi þér?“ „Hún fór heim með Verity. Gally fór út að ganga. Ég heyrði þig ekki hringja og ég býst við að Delia sé háttuð“. „Jæja“. Hann leit til hennar með áhyggjusvip. „Það er víst bezt að ég bíði hérna, þangað til einhver kemur. Mig langar líka til að tala dálítið við þig. Þess vegna kom ég. Hugsar ungfrú Wurlitz ekki vel um þig. Hún er bezta hjúkrunar- konan mín og því sendi ég hana til þín. En hún ætti ekki að hlaupa svona frá þér. Og þér hlýtur að hafa brugðið illa, þegar ég kom inn í húsið á þennan hátt“. Hann tók um púls hennar, og greip svo um báðar hendur henn- ar og horfði sífellt í augu hennar, með hinum sterku, gráu augum sín- um. „Mér þykir það mjög leiðin- legt. Vertu ekki hrædd, vina mín“. Henni hafði vissulega brugðið. Hún var enn með hjartslátt. „Það eru taugarnar“, sagði hún. ..Gerðu svo ve'l að fá þér sæti, Blakie“. Eftir andartak settist hann á stól rétt hjá henni, andvarpaði og hélt áfram að horfa á hana, með HEIMILISRITIÐ 59

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.