Heimilisritið - 15.06.1952, Page 6

Heimilisritið - 15.06.1952, Page 6
„Þér voruð þá ekki skilin eft- ir af tilviljun?" „Ég strauk af skipinu. Ég hafði andstyggð á „Orinoco“.“ „Það myndi hjálpa mér að skilja atvikin, ef þér segðuð mér, hver þér eruð, og hvað kom yður til að verða eftir hér.“ „Vesalings þér,“ sagði hún hlæjandi. „Ég sé, að þér bíðið eftir, að ég leysist sundur og hverfi út í loftið, en það geri ég ekki. Ég heiti Annabel Leigh og er bara ósköp umkomulaus, rík stúlka. Það eru margar eins og ég. Þér vitið ekki, hvernig er að vera innilokaður um borð í stóru skipi mánuð eftir mánuð og vera neydd til að gera allt, sem manni er þvert um geð.“ „Og það er?“ „Að giftast manni, sem ég elska ekki. Ekki að hlæja, því það var ekki ólíkt helvíti um borð í „Orinoco.“ Ég ferðaðist með frænku minni, lady Tutton- Finch, skiljið þér. Hún er fjár- haldsmaður minn. Hún er tatari, með augu og nef eins og róm- verskur keisari, og hjartalaus. Að hafa slíka frænku á hælum sér, og auk þess ágengan biðil með fágaða framkomu, en sál eins og blóðsuga og brennandi ást til peninga, þá getið þér skil- ið, ástandið til fulls. Það var vegna þessa, að vesalings Anna- bella litla framdi sjálfsmorð.“ „Afsakið?“ Luke laut fram með höndina við eyrað eins og hann væri hálf heyrnarlaus. „Ég stökk fyrir borð,“ útskýrði hún og fékk sér sígarettu. „Þér meinið, að þér hafið hætt yður í sjóinn, fullan af hákörl- um?“ Hún leit á hann. „Nei, nei, ég er engin hetja! Ég sagði frænku og Rodney, að ég hefði höfuð- verk og vildi ekki fara í land og bað um að verða ekki ónáðuð fyrr en snemma í fyrramálið. Ég hef gert það áður, þegar mig hefur langað til að hafa frið. Þegar þau voru farin, fór ég í land með einum af hinum bát- unum. Enginn tók eftir mér. í töskunni hef ég peninga, gim- steina, dálítið af fötum og öðru nauðsynlegu. Þegar ég kom í land, læddist ég burt og faldi mig. Þegar brytinn opnar læstu hurðina mína í fyrramálið, mun hann finna bréf, sem skýrir frá því, að Annabella hafi gert enda á öllu saman með því að stinga sér út um kýraugað. Aumingja maðurinn!“ Hún hallaði sér aft- ur á bak, ánægð með sjálfa sig. Luke var gramur og vonsvik- inn. Hún var ekki annað en spillt barn. Það voru takmörk fyrir, hvað maður gat leyft sér, án þess að taka tillit til annarra 4 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.