Heimilisritið - 15.06.1952, Page 7

Heimilisritið - 15.06.1952, Page 7
— þótt hún væri bæði ung og falleg. Hann sá fyrir sér gaura- ganginn um borð í skipinu. „Mér finnst þér hafið breytt illa, hugsunarlaust og eigin- gjarnt. Þér eigið skilið hýðingu. Frænka yðar hefur einungis vilj- að yður vel, og nú valdið þér henni sorg og óhamingju, og öll- um öðrum um borð, frá skip- stjóra og niður úr. Og vinir yð- ar? Ég held Rodney, eða hvað hann nú heitir, hafi verið hepp- inn að losna við yður. Takið þér ekkert tillit til annarra?" Hún yppti öxlum og sagði: „Haldið bara áfram, ég þoli það.“ Hann hélt áfram að ávíta hana, en hún hélt því fram, að hún ætlaði ekki að dvelja á eynni degi lengur en þörf gerð- ist. Hvenær gæti hún komizt burt? Luke sagði henni, að skútan, sem kom með póst og hálfsárs- birgðir, hefði einmitt nýskeð komið og myndi ekki koma aft- ur fyrr en eftir fimm mánuði. Hann fullyrti, að eftir fáeina daga myndi hún óska sér langt í burtu, og að hún þyrfti ekki að ímynda sér, að hann yrði ást- fanginn af fyrsta laglega andlit- inu, sem hann sæi. Hann yrði að sætta sig við að hafa hana, þang- að til áætlunarbáturinn kæmi. Hún gæti gert húsverkin, en hann tæki ekki í mál að vera barnfóstra fyrir spilltan stelpu- bjálfa. Luke fannst allt mjög breytt síðan hún kom. Hvorki lónið né pálmarnir voru eins og áður, allt var næstum eins og umgerð um hana. Hann igat ekki haft hugann af henni, og að lokum varð hann að viðurkenna fyrir sjálfum sér, að hann væri ást- fanginn af henni. Hún vann af dugnaði, var félagsleg og við- felldin og tók öllu, sem að hönd- um bar, með ró og skynsemi. Luke kenndi næstum í brjósti um sjálfan sig. Þetta gat ekki gengið svona til lengdar. Hún var ekki annað en barn, en hann fjörutíu og fimm ára. Hún var miljónaeigandi, en hann átti rétt til hnífs og skeiðar. Þegar bát- urinn kæmi, yrði hún að fara aftur til síns eigin heims. Hann var enginn maður handa henni. En hvernig myndi verða á eynni, þegar hún væri farin? Hann var- aði sjálfan sig yið að i’eyna að mála hana. En hann gat ekki staðið við þá ákvöi’ðun. Hann vann hratt og örugglega, meðan hún sat fyrir úti í sólbyrginu. Dag einn hróp- aði hún allt í einu og benti út á sjóinn: „Luke, hvað er þetta?“ SUMARHEFTI, 1952 5

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.