Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 8
Langt í fjarska mátti greina
lítinn bát. Luke bölvaði í hljóði.
Heimsóknir voru fágætar.
Hvers vegna voru þau ónáðuð
nú, þegar áætlunarbáturinn
myndi ekki sýna sig í þrjá mán-
uði?
„Það er bátur lögreglustjór-
ans,“ sá^ði hann. „Það er undar-
legt, að hann skuli koma hing-
að, því það er stutt síðan hann
kom síðast.“
Hann sneri sér að Annabellu.
sem stóð og starði á bátinn. Hún
setti höndina fyrir munninn til
að bæla niður óp.
„Lögreglan? Þú mátt ekki láta
þá taka mig?“
„Þvættingur,“ sagði hann æst-
ur, „ef þú vilt vera hér, og guð
veit að það myndi gleðja mig,
þá geta þeir ekki farið burt með
þig. Við biðjum bara Brownhill
að hypja sig.“
Það var tæpast að hún hlust-
aði á hann. Allt í einu hafði hún
tekið ákvörðun, hún hafði fund-
ið ráð, og nú sneri hún sér að
honum með framréttar hendur.
„Luke,“ sagði hún, „ég fer aldrei
frá Faraniki, ef þú vilt hafa mig
hér. Aldrei! Því, skilurðu — ég
elska þig!“
„Annabel!“ Hún hjóp í faðm
hans og þrýsti sér að honum.
Kossar hennar voru unaðslegir.
„Heyrðu, elskan mín,“ sagði
hún, „ef einhver vill taka mig
burt frá þér verð ég að fela mig.
Þú skilur það ekki. Ég hef
skrökvað að þér og gabbað þig,
en ég held þér hafi verið það
fyrir beztu. Ég vissi ekki, að ég
myndi elska þig. Ég skal útskýra
allt seinna, nú er ekki tími til
þess.“
Þetta nýja viðhorf gerði hann
ringlaðan, og áður en hann skildi
upp eða niður, hafði hún hlaup-
ið inn, og kom brátt aftur með
töskuna sína.
„Taktu hana,“ skipaði hún.
„Hún er læst. Gerðu alveg eins
og ég segi. Hvort sem hann spyr
eftir henni eða ekki, þá fáðu
honum hana. Segðu, að henni
hafi skolað á land. Þú séi'ð að
það eru saltvatnsblettir á henni.
Spyrji hann um mig eða ein-
hvern frá „Orinoco“, þá hefurðu
ekki séð nokkra lifandi mann-
eskju. Ef þú elskar mig, gerirðu
eins og ég segi.“ Þar með hljóp
hún burt.
Báturinn var nú kominn, og
Brownhill sté á land. Hann var
rösklegur og igervilegur náungi.
„Halló, Luke,“ sagði hann —
„hvað hefur komið fyrir þig?“'
Luke áttaði sig, hann mátti ekki
láta á neinu bera. Þó var eins
og skörp augu hins hefðu séð í
gegnum hann.
„Hvernig þá Bill? Þú getur
6
HEIMILISRITIÐ