Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 18
fyrir mig gátu?“ spurði Brad.
„Nei, en það er stúlka þarna
inni, sem hefur hleypt ólgu í
blóð mitt, lagsmaður. Hún á
heima á búgarði og talar ekki
um annað en hesta og folöld og
ættartölur ferfætlinga. Eigi mér
að verða eitthvað ágengt við'
hana, er ég hræddur um að ég
verði að kynnast dálítið nánar
þeirri eðlu skepnu, hestinum“.
Brad gretti sig.
„Heyj’ðu nú, þú bílstjóri á
flugvél. Eg get kynnt þig flug-
þernu frá Las Vegas, og hún
mun hjálpa þér til’að gleyma
því, að þú hafir nokkru sinni
séð hest. Forðastu hina sem
mest; þú munt ekki græða ann-
að' á þeim kunningsskap en rass-
særi“.
„Hvað veizt þú um það?“
„Jú, ég lét einu sinni telja mig
á að dvelja í sumarleyfinu á ein-
um þessara bannsettra sumar-
leyfisbúgarða. Ég hélt að það
væri einn þeirra staða, þar sem
fagrar konur liggja meðfram
sundlauginni í ótrúlega litlum
baðfötum. Jú — sælinú! Þegar
ég liugsa um þann búgarð, furð-
ar mig á því, að ég skuli hafa
lagt stund á nokkurt það starf,
sem ég þarf að sitja við“.
„Það er nú gott og blessað“,
svaraði Jerry, „en þú hefur ekki
séð vinkonu mína þarna inni“.
„Nei, það hef ég að sjálfsögðu
ekki.....En ef þú vilt endilega
halda innreið þína í hestaheim-
inn, get ég af hendingu bent J>ér
á góðan stað uppi í Dalen, þar
sem þeir kenna hestum allt —
nema þá kannske að tala. Vera
má, að þeir geti líka kennt þér
að ríð'a, enda þótt ég efist um
það. „Reiðskóli Morgans“, þú
ættir að reyna hann“.
Hann benti á hljóðnemann.
„Og reyndu nú að gera eitt-
hvað. Við erum ekki á hestbaki
þessa stundina“.
Þeir komust út úr þokunni í
200 metra hæð og Brad lenti vél-
inni léttilega.
„Ég kem rétt strax“, sagði
Jerry og gekk aftur í og kom
alveg mátulega til að hjálpa Ju-
dith niður tröppurnar.
„Gleymið nú ekki að heim-
sækja mig“, sagði hún.
„Hvernig í ósköpunum ætti ég
að geta gleymt því“, svaraði
Jerry og leit á hana með aðdáun.
Þegar hún var farin, stundi
Jerry og flýtti sér síðan til Brads.
„Hvernig kemst maður til
„Reiðskóla Morgans?“ spurði
hann.
„Ég sá henni bregða fyrir“,
svaraði Brad, „og ég er ekkert
liissa á því, þótt þú fengir fyrir
hjartað“.
Hann sagði Jerry hvar leiðin
16
HEIMILISRITIÐ