Heimilisritið - 15.06.1952, Side 27

Heimilisritið - 15.06.1952, Side 27
skátinn hefði hnýtt linúta á alla hans vöðva og gleymt að leysa þá aftur. „Nú, hvernig fór?“ spurði Brad. „Sveifstu eins og flugfisk- ur upp í jötuna til þessarar Ijós- hærðu hestamanneskju þinnar, eða hvernig reiddi þessu af?“ „Eg vil helst ekki á það minn- ast“, sagði Jerrv. „Pékkstu tilsögn í reið- mennsku hjá Morgan? Og liitt- irðu þar lítinn, svarthærðan reiðfant, sem lieitir Nancy?" „Eg svara báðum þessum spurningum játandi. En hvað þekkir þú til hennar, Brad?“ „Nú, mér þætti gaman að vita, hvort þú hefðir liitt hana og hvort þú hefðir „komið, séð og sigrað“?“ „Hvað áttu við?“ „O, ekkert sérstakt. Aðgættu nú hvernig liggur á farþegun- um“. „Með ánægju“, sagði Jerry og reis á fætur. „Ég held ég verði að reyna að komast að sem spor- vagnsstjóri svo ég geti staðið við vinnuna". Hann staulaðist inn í farþega- klefann, og þar sat hún, fögur sem tannkremsauglýsing. Jerry varð svo mikið um, að hann hneig niður í sætið við hliðina á henni. „Hvað eruð þér að gera hér?“ spurði hann. „O, ég ætla að skreppa í smá- flugferð“, svaraði hún. „Þér vor- uð alveg eins og Marzbúi, þegar þér komuð haltrandi út úr stjórnklefanum. Þér ættuð að reyna að ná í einhverja léttari vinnu — að minnsta kosti um stundarsakir. . .. Nú, en ég ætla í sumarleyfi til Portlands í Ore- gon. Eg hef hugsað mér að leika þar tennis og golf — ef til vill skrepp ég til Gearheart og baða mig í briminu“. „Nancy", sagði Jerry, „ég þekki flugmann, sem vill fús- lega koma í minn stað, svo að ég geti farið í sumarleyfi straw Við getum leikið saman tennis og golf og brimað í baðinu, eða hvað það nú var sem þér sögð- uð. Hið eina, sem ég vil ekki heyra nefnt á nafn, er reið- mennska. Niður með alla hesta!" „Og ég hélt að þér ætluðuð að ganga í riddaraliðið? Það gekk ekki lítið á fvrir yður, þegar þér komuð til okkar til að fá tilsögn í reiðmennskunni". „Eg veit, að yður þykir vænt um hesta Nancy. En mér myndi standa á sama, þótt ég ætti aldrei eftir að sjá hest framar". „Mér er eins farið“, sagði Nancy. „Eg vildi ekki gefa tí- eyring fyrir alla hestana í gerv- allri Kaliforníu". SUMARHEFTI, 1952 25

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.