Heimilisritið - 15.06.1952, Síða 30
Bak við hurðina
★
Sakamálasasa eftir PARCIVAL WILDE
Tekin úr bókinni „Great Murder Stories"
ÞAÐ virtist auðvelt, og það
var auðvelt. Annar lykillinn í
kippunni opnaði kjallarahurð-
ina, og Benni var kominn inn í
húsið. Það var dimmt — afar
dimmt — og hann stóð kyrr á
meðan augun voru að venjast
myrkrinu. Svo læddist hann á-
fram, þumlung fyrir þumlung,
að stiganum og upp á aðalhæð-
ina.
Hér var dálítil skíma, Benni
þrýsti sér upp að þilinu og hugs-
aði ráð sitt.
Þetta var nokkuð, sem hann
hafði enga reynslu í. Sérgrein
hans var á allt öðru sviði. Hann
var að upplagi og af ást á list-
inni snillingur í að beita penn-
anum, svo hann var jafnan riss-
andi ef hann hafði nokkuð til að
rissa með og á. Og hann var sér-
fræðingur í að búa til undir-
skriftir, sem ekki var hægt að
finna neitt að nema með ná-
kvæmustu rannsóknum.
Þessi gáfa hans varð ábata-
söm fyrir ófyrirleitnari menn,
sem leiðbeindu honum — og
iguldu nú ófyrirleitni sinnar bak
við lás og slá:
Benni hafði komizt hjá hand-
töku, en hann hafði misst sam-
starfsmenn sína. Og nú var hann
á vonarvöl og átti ekki málungi
matar, og þar eð hann var ein-
föld sál, vonaði hann að geta
ráðið bót á bágindum sínum á
einfaldan hátt. í húsi Robisons,
hafði honum verið sagt í undir-
heimunum, var ógrynni dýr-
gripa. Þar var t. d. myndasafn,
sem fyllti margar kistur.
Að vísu var húsið útbúið full-
komnustu öryggistækjum gegn
innbrotum, en um það hafði
Benni ekki minnsta grun. Hann
hlakkaði yfir því í huga sér, að
hann hefði komizt inn, án þess
nokkur yrði þess var.
Angandi vindlalykt lagði til
hans frá skrifstofu í námunda
við hann. Nú var næst að ráð-
ast á íbúana með skammbyss-
28
HEIMILISRITIÐ