Heimilisritið - 15.06.1952, Qupperneq 42
laust? Það var að minnsta kosti
gaman ... þá var ég ekki leiðin-
legur, eða hvað?“
„Ég hata þig!“
Svo tók hann einnig um hina
hönd hennar og sagði blíðlega:
„Þú veizt vel, að ég elska þig
.. rlitla, ósvífna, yndislega norn-
in þín!“
„Ég hata þig! Ég fyrirgef þér
aldrei!“
Richard heyrði varla síðustu
orðin, því þeim var hvíslað afar
lágt í eyra hans ... og hún gat
ekki heldur sagt meira, því
hann lokaði munni hennar með
kossi. *
SNEIÐ TIL TENGDASONAR
Til skamms tíma átti Winston Churchill tengdason, sem hann
þoldi ckki í návist sinni. Maðurinn, sem var leikari, vissi þetta og
reyndi á allan hátt að koma sér í mjúkinn hjá Churchill, án nokk-
urs árangurs. Til dæmis sagði hann eitt sinn upp úr þurru, í fínni
veizlu heima hjá tengdaföður sínum: „Efvcrn heldurðu að sagnarit-
arar muni telja mcsta stjórnmálamann okkar tíma?“
,,Mussolini,“ svaraði Churchill þegar í stað.
Allir viðstaddir urðu auðvitað dolfallnir yfir svarinu, og tengda-
sonurinn stamaði: „Hvers vcgna Mussolini?"
„Það cr ofur skiljanlegt," svaraði Churchill og fitlaði rólega við
vindilinn sinn. „Hann er sá cini af okkur, sem var svo skynsamur
að skjóta tengdason sinn.“
MYRKRAVERK
Enskur auðmaður, sem hafði mjög sérkennilega kt'mnigáfu, lét útbúa
eitt herbergi í húsi sínu þannig, að allt sneri öfugt. Stólar, borð, gólf-
teppi og allt, sem samkvæmt vcnju er á gólfinu, voru negld föst í loft-
ið — allt á höfði — og dyrnar, gólflistar og þrepskildir voru uppi við
loftið. Á miðju gólfi stóð geysistór ljósakróna upp f loft.
Mesta skcmmtun hans var sú, að fylla gesti sína svo að þcir sofnuðu,
flytja þá inn í þetta herbergi og leggja þá við hliðina á ljósakrónunni.
Þegar þeir svo vöknuðu um morguninn, stóð hann við gægjugat og
athugaði viðbrögð þeirra. Eftir fyrstu hræðsluópin, gripu fómardýrin
venjulega heljartaki um ljósakrónuna. Sumir rcyndu að klifra upp
vcgginn með því að klóra sig upp spegla, málverk eða rafmagnsrofa.
Sagt er, að upphafsmaður þessa alls hafi dáið úr hláturkasti.
40
HEIMILISRITIÐ