Heimilisritið - 01.08.1955, Side 12
að hún var tekin að velta því
fyrir sér, um hvað hann væri að
hugsa. Ætti hún að standa upp
og ganga út úr sólskýlinu áður
en hann kæmi að borðinu? —
Hann hlaut að ganga fast fram
hjá borðinu hennar, þar sem það
stóð við tröppurnar upp í sól-
skýlið frá baðströndinni. Nei —
hvers vegna ætti hún svo sem
að færa sig?
Það skipti svo sem ekki máli
lengur hvort þau hittust eða
ekki — það var einmitt ár liðið
frá því að þau skildu í þessum
mánuði. Nei, hún skyldi bara
sitja og sjá hvað skeði.
Hún var tilbúin að taka á móti
honum þegar hann kom upp á
skörina.
— Lydia! Það er gaman að
hitta þig aftur! Hann hló og lét
skína í hvítar, jafnar tennumar.
— Góðan daginn, Peter.
Hvernig líður þér?
— Ágætlega góða. Og ég þarf
sannarlega ekki að leggja sömu
spurningu fyrir þig, þú lítur dá-
samlega út. Eigum við ekki að
fá okkur glas saman í tilefni af
þessum óvænta fundi okkar?
Á meðan hann talaði hafði
hann krækt sér í stól og setzt
gagnvart henni. Það var Peter
líkt. Hann var alltaf svo örugg-
ur með sig. Það var eitt af því
í fari hans, sem hafði ergt hana.
— Hvað ert þú að gera hér í
Devonshire, Lydia?
— Hvað ert þú sjálfur að gera
hér?
— Ég — ég er í fríi.
— Það var þó undarlegt — ég
er líka í fríi.
Hann hló ánægjulega.
— Það er merkileg tilviljun
að við skyldum bæði velja sama
staðinn til að eyða helgarfríinu.
Hvenær komst þú?
— í gærmorgun, svaraði hún
og hugsaði: Ég fór hingað úteftir
af því að það var hingað, sem
við fórum í brúðkaupsferðina
okkar.
— Ég kom ekki fyrr en í gær-
kvöldi, sagði hann og hugsaði:
Það var heimskuleg viðkvæmni
af mér að vera nú að fara ein-
mitt hingað.
— Að hugsa sér að við skul-
um búa í sama gistihúsi, sagði
hún og reyndi að láta rödd sína
hljóma kæruleysislega, en fann
aftur þennan undarlega sam-
drátt í hjartanu. Hvers vegna
var hún svo heimsk að láta sér
verða hugsað til þess, sem var
liðið fyrir löngu?
— Við megum til með að halda
upp á þetta tækifæri, og við
skulum gera það, sagði Peter.
— Hvað vilt þú fá, Lydia?
— Gin og sítrónusafa — en
sjáðu um að við fáum ís með.
10
HEIMILISRITIÐ