Heimilisritið - 01.08.1955, Qupperneq 24

Heimilisritið - 01.08.1955, Qupperneq 24
NÚ SKULUÐ þér heyra, Maísí og ég — Maísí, það er konan mín — höfðum miklar fyrirætl- anir á morgni tímans. Það var þegar ég gekk í lögregluskólann. Við áttum aðeins eitt barn þá — Maríu litlu; svo það var auðvelt að gera háfleygar fyrirætlanir. Og það gerðum við líka. Maísí var stolt af litla búinu okkar, og hún var líka framgjöm. Oft sagði hún: „Þegar þú hefur lok- ið námi, Jói, og ert orðinn mik- ill og frægur leyniþjónustumað- ur, þá skulum við sannarlega spara, svo að við getum flutt upp í sveit. Maísí litla á ekki að al- ast upp í rennusteinunum eins og þú og ég. Hún á að verða stór og sterk úti í guðsgrænni nátt- úrunni.“ Ég lofaði Maísí, að þegar ég hefði sparað saman fimm þús- und dollara skyldum við kaupa svolítið land úti á Jersey. Þar skyldum við ala upp kjúklinga og eignast hóp af börnum. „Hóp af börnum, Jói“, hrópaði hún hamingjusöm, „hve mörg? Hvað heldurðu að við höfum efni á að eignast mörg?“ Hún var svo falleg og glöð og ég þrýsti henni að mér. Ég elsk- aði hana svo innilega á þeirri stundu, innilegar en ég hafði nokkurn tíma elskað hana. '„Mörg“, sagði ég, „óendanlega mörg. Og minnsta kosti einn strák. Ég vil ekki vera eini han- inn í hreiðrinu, innan um tómar stelpur11. Þér getið verið vissir um að við vorum hamingjusöm þá. Ung og hamingjusöm, uppfull af trú á framtíðina. Hvað eru fimm þúsund, þegar maður er ákafur í að bretta upp ermamar, og vonbrigðin hafa ekki kaffært mann ennþá. Það er smáræði, og maður verður fljótur að vinna sér þau inn. Ég var samvizku- samur og hafði áhuga á starfinu. Ég leit ekki við mútum. og reyndi ekki að olnboga mig á- fram. Þeir kölluðu mig „Jóa heiðarlega“, og ég var stoltur af því. Það liðu tíu ár, áður en ég var hækkaður í tign. Tíu erfið ár. En það kom þó að því að ég yrði hækkaður, og við vorum hamingjusöm. Þegar hér var komið, höfðum við eignazt þrjú böm, og við þörfnuðumst peninganna, sem ég fékk við hækkunina. Jói litli, sá yngsti, var veikbyggður; og Maísí var heldur ekki lengur í fullu fjöri. Hún hafði heldur ekki hlíft sér þessi ár. En þrátt fyrir allt áttum við svolítið í banka, þrátt fyrir börn- in, veikindi og léleg laun. 22 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.