Heimilisritið - 01.08.1955, Page 30
gagna frá Palestínu kemur
greinilegar í ljós, ef það er sett
í samband við útbreiðslu Ne-
anderthal-mannsins, sem nefnd
var að framan, þar sem tekið
var fram, að Neanderthal-fund-
ir yrðu æ sjaldgæfari eftir því
sem lengra drægi frá vestri til
austurs. Það er og merkilegt að
veita því athygli, að sýnishom
þau, sem fundizt hafa í Austur-
Evrópu, og enn austar, sýna viss-
an skyldleika við nútímamann-
inn, en þann skyldleika er ekki
að finna í þeim sýnishornum,
þar sem fram koma fyllri sérein-
kenni. í ljósi sönnunargagnanna
frá Palestínu, þá ber nú að skilja
þetta, ekki sem sönnun þess, að
um sé að ræða ummyndun Ne-
anderthal-tegundarinnar í átt til
„nútíma“-mannsins, heldur má
öllu frekar telja það bendingu
um, að eftir því sem við nálg-
umst meir upprunastað tegund-
arinnar í austri, þá miði mynd
hennar að því að gefa frekari
sönnun um ætterni, sem er frá-
brugðið ætterni Neanderthal-
mannsins. A. m. k. með tilliti til
kyneinkenna, ef ekki jafnframt
til aldurs, svara þau til fyrra
þróunarstigs, eða síður gjörfrá-
brugðins, en fram kemur hjá
hinni fullþroskuðu Neanderthal-
tegund Vestur-Evrópu.
Frá Asíu til Ameríku
MEÐ framkomu Cro-Magnon-
mannsins á Evrópu-sviðinu við
lok íslandar, þegar Neandarthal-
maðurinn hvarf, koma fram ný
viðhorf um rannsóknir á mann-
inum. Þegar við athugum þessa
hávöxnu, uppréttu tegund, með
nútíma-mynd hauskúpu og apd-
lits, nútíma-kjálka, útbúinn
höku og nútíma-heila, þá erum
við ekki lengur að fást við mann-
kynið sem heild, heldur spurn-
inguna um uppruna nútíma-kyn-
flokka. Það er rétt, að lítið er
enn vitað um það, hvernig og
hvar homo sapiens sem slíkur
kom fyrst fram, en áður en unnt
er að gera því viðfangsefni veru-
leg skil, verðum við að vita
miklu meira um það, hvemig,
hvenær og hvar hin ýmsu af-
brigði eða kynstofnar hominis
sapientis hófu fyrstu tilveru
sína.
Enda þótt venjulegt sé, og
hentugt, að telja Cro-Magnon-
manninn, almennt séð, sérstak-
lega til ofanverðrar síðari stein-
aldar, þá eru til viðbótar Cro-
Magnon-manninum í ströngum
skilningi þess orðs, ». m. k. þrjár,
og e. t. v. fleiri, tegundir, sem
greina má milli meðal leifa af
beinagrindum frá þessu tíma-
bili, og verður að rannsaka þær
með tilliti til viðfangsefnisins
28
HEIMILISRITIÐ