Heimilisritið - 01.08.1955, Blaðsíða 66
Þau sátu þegjandi um stund,
og svo spurði hann:
„Þú ert vonandi ánægð með
lífið, Linda?“
„Já, það er ég.“
Litla hljómsveitin fór að spila
vals, og allt í einu stóð hann upp
og hneigði sig fyrir henni. Svo
dönsuðu þau hægt út á gólfið í
takt við lágværa tónlistina, og
hann titraði af ástríðu, er hann
hélt ungu, fallegu stúlkunni í
faðmi sínum á ný. Hann varð að
beita allri stillingu sinni til þess
að þrýsta henni ekki ofsalega að
sér, og þegar músíkin hætti,
sleppti hann henni skyndilega.
„Það er hætt að rigna,“ sagði
hann stuttlega, „og nú legg ég
til að við fáum okkur svolítið
frískt loft.“
Þegar þau voru kominn inn í
bílinn leit hann framan í hana.
„Við skulum skreppa í hálf-
tíma ökuför út úr borginni,“
sagði hann. „Það er upplyfting
í því fyrir þig.“
„Já,“ sagði hún þreytulega.
„En ekki lengur en hálftíma.
Agnes vonast eftir mér.“
Um leið og hann ætlaði að
fara að renna frá gangstéttar-
brúninni, hrópaði hún allt í einu:
„Nei, þarna kemur Agnes!
Bíddu við, Maurice! Eg verð að
tala við hana.“
Hún opnaði dymar og steig út.
„Er nokkuð um að vera?
„Þú ert búin að vera svo voða-
lega lengi, Linda,“ sagði gamla
barnfóstran. „Ég varð að koma
og sækja þig. Það er símskeyti
til þín heima í hótelherbergi. Við
verðum 'að flýta okkur.“
Linda rétti Maurice höndina.
„Ég verð þá að kveðja og
þakka þér fyrir,“ sagði hún.
„Leiðinlegt að ekkert gat orðið
úr bíltúrnum.11
Hann var orðinn fölur, og
augun gljáðu.
„Bless,“ sagði hann stuttur í
spuna. Svo ók hann burtu án
þess að líta aftur.
Ráðning á júní-krossgátunni
LÁRÉTT: i. skelegg, 7. ólseig, 12.
klökk, 13. lukka, 15. AA, 16. skraut-
leg, 18. la, 19. trú, 20. gal, 22. ala, 24.
lin, 25. narr, 26. vanur, 28. kinn, 29.
ar, 30. óa, 31. hvá, 33 aa, 34. Na, 35.
reykgrímumar, 36. es, 38. eg, 39. óku,
40. sr. 42. at, 44. yndi, 45. arinn, 48.
æður, 49. tau, 50. núa, 52. áir, 54. USA,
55. tt, 56. ráðagóðar, 59. au, 60. totur,
63. daunn, 65. rofana, 66. rýrðist.
LÓÐRÉTT: 1. skatna, 2. el, 3. lök,
4. ekra, 5. GK, 6. Grunnvíkingur, 7. ól,
8. lull, 9. ske, 10. ek, 11. grannar, 12.
karar, 14. alinn, 16. súrlyndur, 17. gliðn-
aður, 20. gró, 21. la, 22. au, 23. aka,
26. vagga, 27. rausn, 31. hró, 32. ámu,
35. reyttur, 37. snatt, 38. ein, 41. rær,
42. ausan, 43. traust, 46. Ra, 47. ná,
51. úðun, 53. iðar, 57. áta, 38. auð 61.
of, 62. Ra, 63. dý, 64. Ni.
64
HEIMILISRITIÐ