Heimilisritið - 01.08.1955, Page 67
SPURNINGAR OG SVÖR.
(Framhald af 2. ká-pustðn).
sagt, að það væri frá þcr. Þá hefði hann
rennt grun í hvernig þér líður og kann-
ske bætt ráð sitt. Þar að auki er einmitt
svona ástatt á fleiri heimilum en þú
heldur, svo að ckkert hefði þurft að vitn-
ast um að þú hefðir skrifað það frekar
en cinhver önnur.
Og þctta gæti orðið þér svolítill létt-
ir, því sælt er sameiginlegt skipbrot.
Hins vegar verður þú að gera það upp
við sjálfa þig, hvort þú vilt heldur gefa
upp alla von og skilja við manninn, eða
sætta þig við orðinn hlut. Margar kon-
ur fyrirgefa mönnum sínum smá víxl-
spor. Þær vita að þær eiga í rauninni ást
hans — hann komi ævinlega til þeirra
aftur — og fórna ekki hamingju heim-
ilis og barna, heldur sýna hetjuskap og
stórmennsku og láta sem ekkert sé.
Hitt er annað mál, að ef hann er óþol-
andi á heimili og þú ert farin að hafa
ógeð á honum af cinhverjum ástæðum,
þá skal ég síðust allra verða til þess að
ráða þér frá að skilja við hann.
FYRRI UNNÖSTAR VÍKI!
Svar til „Önnu": — Ef þú ert trúlof-
uð manni, held ég í trúnaði sagt, kæra
mín, að þú ættir ekki að skrifast á við
fyrri unnusta þína, ef þú metur kær-
astann einhvers. Þú gætir til dæmis sagt
þessum, sem þú talar um — jafnvel
skriflega — að hann megi í fyrsta lagi
skrifa þér eftir að þú ert gift!
„ÓSKIRNAR RÆTAST . . . “
Svar til „A.M.— Ég hef mikla
samúð með þér og vildi að ég væri
megnug þess að rétta þér einhverja
hjálparhönd. Bréfið er líka svo áhrifa-
mikið og vel stílað, 02 réttritunin er
svo góð, að þú þyrftir ekki að fara í
nema lítilsháttar kvöldnámskeið eða
einkatíma og læra t. d. bókhald eða
hraðritun, þá fengirðu áreiðanlega skrif-
stofuvinnu við þitt hæfi ■— eins og þig
langar ril.
Varðandi skaðabæturnar vil ég bcnda
þér á að tala við forstjóra eða skrifstofu-
stjóra tryggingastofnunar ríkisins. Ef
þú flytur mál þitt svipað við þá og þú
gerir í bréfinu til mín, veit ég að þeir
sýna þér fulian og réttmætan skilning.
Þú gætir líka skrifað stofnuninni og gert
fyrirspurn.
HVER ER SJÁLFUM SÉR NÆSTUR
Svar til „Ausu': — Ég vona að þú
fyrirgefir þótt ég svari þér hérna, því
ég ábyrgist, að engan gruni, hver þú
ert. — Mér finnst hugsun þín ákaflega
falleg, en það er margreynt, að svona
hjálparstarfsemi reynist örðug eða ó-
kleif, jafnvel þótt ástvinir eigi í hlut. —
Þú spyrð, hvort þú eigir ekki að skipta
þér af máli, sem þér kemur ekki við,
og ég verð að svara því játandi í þessu
tilfelli, því ég hef enga trú á að þú hafir
annað upp úr krafsinu en óþarfa á-
hyggjur, einkum þar sem þið eruð ekki
bundin neinum tilfinningatengslum. Og
ef eitthvað er í manninn spunnið, tekur
hann sig á sjálfkrafa — kannske einmitt
engu síður ef enginn er að rexa í hon-
um, og hann fær sjálfur að rasa út og
átta sig í friði á alvöru lífsins.
Ef þér liggur eitthvað á hjarta og þu þarft
að ráðfœra þig við vin þinn um áhyggjur J>ínar
eða eitthvað slíkt, skaltu skrifa Evu Adams,
Heimilisritið, Garðastrœti 17, Reykjavík. Enginn
nema hún sjálf faer að sjá bréf þitt.
Eva Adams
HEIMILISRITIÐ kemur út mánaðarlega. — Útgáfa og afgreiðsla: Helgafcll,
Veghúsastíg 7, Reykjavík, sími 6837. — Ritstjóri: Geir Gunnarsson, Baldursgötu 9,
Reykjavík, sími 5314. — Prentsmiðja: Víkingsprent, Hverfisgötu 78, sími 2864. —
Verð hvers heftis er 10 krónur.