Heimilisritið - 01.01.1956, Page 4
rogast m©3 alla bögglana. Hann
setur ekki út á klæðaburð hennar
í áheyrn ókunnugra. Hann held-
ur ekki áfram að lesa, þegar tal-
að er til hans. Hann neitar ekki
að taka til hendinni heima fyrir.
Hann ákveður ekki, hvert þau
skuli fara sér til skemmtunar, án
þess að ráðfæra sig við konu
sína fyrst. Hann stagast ekki sí
og æ á því, að aðrar konur geri
allt betur en hún. Og hann álítur
ekki, að hjónabandið ógildi mikil-
vægasta orðið í öllum orðabók-
um að því er varðar framkomu
mannsins gagnvart konunni:
kurteisL
Oft truflast samlyndið á heim-
ilinu við máltíðir. Hvað sem þú
annars gerir, þá gættu þess að
vera ekki einn af þeim eigin-
mönnum, sem gleypa í sig allt
það bezta á kvöldborðinu, með-
an konan er enn frccmmi í eldhúsi
að sýsla við eftirréttina eða kaff-
ið. Vertu ekki of ástúðlegur á al-
mannafæri. Láttu ekki sem þú
hafir einkarétt á dagblaðinu eða
útvarpstækinu. Segðu ekki vafa-
samar sögur í áheyrn konu þinn-
ar. Reyndu ekki að spila mikinn
mann, talaðu ekki stanzlaust
sjálfur •—■ hvorki heima né að
heiman. Og gerðu ekki lítið úr
konunni þinni við vini þína og
kunningja, ef þú vilt, að hjóna-
bandið blessist.
Má vera, að konan þín sé ekki
sú gáfaðasta né skemmtilegasta
í heimi, en þegar almennt rabb
eða alvarlegar umræður ber á
góma, getur hún vissulega séð
um sig hjálparlaust. Ekki einasta
gagnvart ókunnugum, heldur
einnig gagnvart þér, ef þú bara
hlustar. Þú myndir verða undr-
andi á, hversu heillandi konan
þín getur verið, ef þú bara veittir
henni óskipta athygli.
Hættulegasti óvinur fullkomins
samlyndis hjóna er vanræksla.
Vertu hugulsamur, góður og til-
litssamur. Og, þú manst eftir af-
mælisdögum og slíku? Það er
ágætt. En hvemig með smágjafir
stöku sinnum af engu sérstöku
tilefni? Blóm, ilmvatn, bækur?
Presturinn sagðist hafa einungis
eitt ráð að gefa þeim hundruðum
brúðhjóna, sem hann hefur gift:
,,Munið, að hjónabandið krefst
ekki einungis samheldni, held-
ur líka gjafar. Ef þið, hvem dag
í hjónabandinu, gerið eitthvað
smávægilegt fyrir ektamakann —
færið konunni blóm, eða hafið
mat, sem eiginmanninum fellur
vel, þá mun ástin, sem sameinaði
ykkur, endast eins lengi og þið
lifið".
FYRIR HANA
ÞAÐ TOK mig næstum þrjú ár
að vakna til vitundar um mikil-
2
HEIMILISRITIÐ