Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 10

Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 10
græni vörubíllinn hans ók upp að dyrunum, og þegar hún kom loksins auga á hann, steig létt andvarp frá brjósti hennar. Hún fylgdi Ben með augunum úr glugganum á veitingastofunni, og horfði á hann stíga léttilega út úr bílnum, líta stuttlega á hjólbarðana og ganga síðan að dyrunum. Hún þekkti hvert svipbragð hans og hverja hreyf- ingu — vissi hvernig hann myndi ganga inn, hengja húf- una sína á snagann, skyggnast um eftir henni, brosa, ganga að borðinu sínu og segja: „Halló, Sista!“ með djúpu og fallegu röddinni sinni. Hún gekk að skenkiborðinu til þess að ná í kaffi fyrir hann. Hann kom inn, hengdi húfuna á snagann og leit í kringum sig. En hann horfði beint framhjá henni. Hann þekkti hana alls ekki! Svo leit hann aftur í kring um sig, og nú kom hann þó auga á hana. En hann brosti ekki. Andlit hans stirðnaði upp, og það var eins og hann væri í vafa um hvort hann ætti að setjast við borðið sitt. Hún setti kaffibollann á borð- ið og lagði matseðilinn fyrir framan hann. Svo sagði hún: „Þú kemur seint 1 dag.“ Ben brosti. Það var þvingað bros. Svo sagði hann: „Hvað hef- ur þú eiginlega gert við hárið þitt, fegurðardrottning?“ Það vottaði ekki fyrir hrifningu í röddinni. „Ég fékk — ég lét liða það.“ Ben horfði beint 1 augu henn- ar og sagði: „Ég er ekki einn af þeim, sem læt snúa á mig, þó að bíllinn sé nýlakkaður. Ég lít meira á það, sem traustara er.“ Sista varð að flýta sér fram, áður en tárin brytust fram í augum hennar. Hún sneri sér snöggt við á háu hælunum og var næstum dottin um sína eig- in fætur, þegar dyrnar skullu á eftir henni. Hún þvoði andlit sitt og leit á sig í speglinum. Svo tók hún pappírshandklæði og nuddaði af sér varalitinn og augnabrúnalitinn. Hún rótaði taugaóstyrk í vezkinu sínu þar til hún fann teygju, sem hún gat sett um hárið. Svo greiddi hún það þétt aft- ur og dró það saman í langa skottið, sem hún hafði alltaf gengið með. Þegar hún leit aft- ur í spegilinn, kom bros yfir varir hennar. Éegurðardottn- ing? Ó nei, hún var ekki annað en ósköp venjuleg stúlka, með fremur skemmtilegt andlit og freknur á nefinu og rautt hár, sem Ben kallaði koparlakk. Ætti hún að reyna að vera ein- 8 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.