Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 15

Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 15
minnzt einu orði á ýmsa undar- lega hluti í fari hennar — eins og til dæmis það, að helmingur- inn af kunningjafólki henar átti aðgang að eldhúsinu hjá henni. ,.Heimili mitt skal ávallt standa opið öllum vinum mín- um.“ sagði hún oft. Ég hafði ekkert út á það að setja, svo framarlega sem ég væri talin til kunningjanna líka. En það er sennilega hægt að fyrirgefa eiginmanni það, að hann skuli verða langþreyttur á því. að finna ókunnugt fólk af báðum kynjum við borðið hjá konu hans, já, og jafnvel uppi í rúmi hennar. ,.Þú þarft ekki að láta svona, ég- veit ekki betur en að ég sofi hjá þér,“ sagði hún önugt eitt sinn, er ég hótaði að kasta út einhverjum rauðskeggjuðum náunga, sem kallaði sig listmál- ara. sem hafði hreiðrað um sig í rúminu hennar. ,,Og hann fær ekki neitt herbergi . . .“ Svona nokkuð hafði ég orðið að hlusta á og þola í hálft ár, þegar Mímí kom þjótandi inn til mín, eitt gleðibros og hróp- aði upp yfir sig, að nú hefði hún fundið húsið. Húsið? „Það er grænt, ástin mín. Það er rétt hjá mýrinni og það eru næstum því tvær íbúðir í því! Það einasta, sem er sameigin- legt, er eldhúsið. Komdu, við fáum okkur bíl og keyrum þang- að úteftir. Þú verður að sjá það!“ Það er mikill tímasparnaður að hlýða Mímí strax, og auk þess var ég orðinn forvitinn, svo að við fengum okkur leigubíl og ókum út í Utterslev-mýri. Húsið var beinlínis dásamlegt. f því voru sex herbergi, og það var auðvelt að láta mig hafa þrjú þeirra, og þá höfðum við bæði sérinngang, eins og hana hafði alltaf dreymt um. „Við lokum bara þessum dyr- um,“ sagði hún til útskýringar. „Þegar þú þarft að nota eldhús- ið getur þú gengið um forstof- una. Og þegar ég kem seint heim frá blaðinu, geng ég inn um garðstofudyrnar, beint inn til mín. Þá þarf ég ekki að vekja þig. Finnst þér þetta ekki dásamlegt?“ „Ég hefi ekkert á móti því að vera vakinn,“ sagði ég. „Til dæmis með heitum pylsum og einum pilsner. En ef til vill á ég líka að vera í fæði hjá sjálfum mér?“ Gráu augun í Mímí urðu græn. „Þú skilur ekki hvað þér er fyrir beztu. Hvað heldurðu að margir karlmenn myndu ekki öfunda þig! Þú færð alla kosti JANÚAR, 1956 13

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.