Heimilisritið - 01.01.1956, Side 17

Heimilisritið - 01.01.1956, Side 17
svefnherbergi og háttaði sig, þögul eins og gröfin, til þess að vekja mig ekki. Svo lagðist hún við hlið mér í rúminu og vakti mig engu að síður, og enda þótt það geti verið mjög gott að vera vakinn á þennan hátt, kom það stundum fyrir, að ég varð súr í skapi. „Annað fólk háttar á sama tíma sagði ég eitt kvöldið. „Er það nauðsynlegt að þessi Pont- us komi hér á hverju kvöldi og haldi þér á ,,kjaftatörn“?“ „Hann þarfnast mín,“ sagði hún hrærð. „Ástin mín, þú ert þó ekki afbrýðisamur út í Pont- us?“ Ég svaraði ekki, en sneri mér bara til veggjar í mótmæla- skyni. Afbrýðisamur? Auðvitað ekki! Ég skal játa það, að ég er ekki neinn Tarzan, heldur mjög hversdagslegur maður, en Pont- us er ekki einu sinni það. Það kann að vera, að hann líti vel út, og ég geri ráð fyrir því, að Stöku konum þyki hann aðlað- andi. En hættulegur fyrir Mímí? Nei! Það liðu fimm mínútur. „Af- brýðisamur?" endurtók ég. „Hann, sem er eins og sardína með brilljantín!“ „Ég ætla að biðja þig að minn- ast þess, að þú ert að tala um einn vina minna,“ sagði hún JANÚAR, 1959 „Sjálfsagt! Ef þú vilt muna það sjálf, að þú ert að tala við eiginmann þinn. Og sem maður þinn tek ég mér það leyfi, að segja þér, að þú ert ekki með öllum mjalla.“ „Það eru nú, sem betur fer, skiptar skoðanir um það. Ég get trúað þér fyrir því, að hjá sumu fólki er ég talin hafa mjög góða dómgreind." „Það er ekki hægt að segja, að afstaða þín til hjónabandsins beri vott um það,“ sagði ég. „Góða nótt!“ Þetta var inngangurinn að nýjum þætti í hinu svokallaða samlífi okkar. Mími hafði oft haldið því fram, að einn af kost- unum við hennar kerfi væri sá, að ef annarhvor aðilinn var með einhverja sérvizku eða í fýlu, þá gat hann dregið sig til baka, í stað þess að láta hinn þurfa að þola skapillskuna. í vikunni eftir lærðist mér að skilja, við hvað hún átti. Við komum og fórum alveg án þess að skipta okkur hvort af öðru, og ef við hittumst af einskærri óheppni í eldhúsinu, sem við höfðum sam- eiginlega, báðum við hvort ann- að afsökunar með mikilli yfir- borðskurteisi. Fyrirgefðu, en ætlaðir þú að nota pönnuna? Hefurðu nokkuð á móti því, að ég fái hana lánaða, þegar þú . 15

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.