Heimilisritið - 01.01.1956, Page 18

Heimilisritið - 01.01.1956, Page 18
ert búin? Áttu von á gestum í kvöld . . . ég hafði annars ætlað mér að leggja á borð hérna frammi í eldhúsinu . . . LITLU VEIZLURNAR í eld- húsinu urðu tíðari og villtari. Það var augsýnilega ætlunin að gera mér það lióst, að Mímí tók engum vettlingatökum á svona hlutum. Mér fannst fyrir mitt leyti, að það væri fyrir neðan mína virðingu, að gjalda henni í sömu mynt, jafn barnaleg og hún var. í sannleika sagt var ég hinn reiðasti og mjög á- hyggjufullur. Ég var ekki í vafa um, að þessi fyrsta snurða, sem hlaupið hafði á þráðinn hjá okk- ur, myndi greiðast smám sam- an, en mér var farinn að finn- ast biðtíminn óþarflega langur. Það var einn af bridge-félög- um mínum, sem fann lausnina. „Væri ekki ráð að bjóða syst- ir minni með í næsta skipti þeg- ar við spilum,“ sagði hann. „Hún gæti mallað eitthvað fyrir okk- ur og lagað kaffi.“ „Ég verð nú að segja, að ég hefi getað séð fyrir ykkur sjálf- ur hingað til,“ sagði ég móðgað- ur. „Þó það væri, en það er nú ekkert, sem jafnast á við kven- mann í eldhúsinu. Og Elsa er fjári mydarleg stúlka, skal ég segja þér, jafnvel þó að ég sé bróðir hennar.“ Allt í einu rann upp ljós fyrir mér. Ó, jú, því ekki það? Hvers vegna að láta nokkuð óreynt? Næsta laugardag kom Elsa, sem ég þekkti ekki vitund, klukkutíma áður en spilafélag- arnir áttu að mæta. Hún var með fangið fullt af pökkum, og það leyndi sér ekki, að hún var mjög falleg stúlka. Hún var bláeyg og þrýstin á réttu stöðunum. Ég gerði mér grein fyrir því, að hún skildi á- standið fullkomlega, þegar hún bað mig um hníf og gekk út í garðinn og skar þar nokkrar rósir af runnunum, til þess að skeyta borðið með. Hún var lengi að dunda fyrir utan og hélt sig aðallega fyrir utan gluggana hjá Mímí. Þetta stóð heima. Það liðu ekki margar mínútur þar til Mímí kom fram í eldhús og fór að róta í skápum og skúffum í algjöru reiðileysi. „Hvaða turtildúfa er þetta, sem er að þvælast úti í garði?“ spurði hún hvatskeytlega. „Hver?“ spurði ég. „Nú, áttu við Elsu?“ „Hvaða Elsa er það?“ spurði hún hvasst. „Ein af vinkonum mínum,“ sagði ég kæruleysislega. „Ann- 16 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.