Heimilisritið - 01.01.1956, Page 31

Heimilisritið - 01.01.1956, Page 31
Rannsóknardómarinn þagnaði stundarkorn. „Nú vildi ég aðeins fá að vita, hvort félaga yðar var kunnugt um, að Brúgger verksmiðjueig- andi dvaldist á þessu fjallahó- teli?“ „Hann vissi það jafn lítið og ég. Það var tilviljun, að við kom- um í þetta hérað. Verksmiðju- stjórinn mæt'ti okkur, og Huber lét í ljós við mig lörtgun sína til þess að gera út af við gamla manninn. Ég réð honum frá því. Hann kallaði mig raggeit, og þá fylgdi ég honum eftir. Við sát- um fyrir ókunna manninum, sem Huber sagði að myndi á- reiðanlega koma til baka. Það, sem eftir kom, vitið þér.“ ,,Að mestu leyti. Hvað mörg- um skotum hleypti Huber af?“ „Fjórum skotum. Verksmiðju- eigandinn féll þegar 1 stað til jarðar og hreyfði sig ekki meir.“ Það kom kökkur í hálsinn á Schmied. „Nú er nóg komið. Leyfið mér að fara.“ Dr. Pfluger þrýsti á hnapp, og Schmied laut höfði djúpt þenkj- andi. * Taugaveiklun Stúlka nokkur, scm var afar slæm á taugum, lét telja sig á að fara til sálfræðings. Eftir fyrstu komu liennar lét hann hana fá langan lista um það, hvernig hún skyldi haga sér, og sagði henni að koma aftur eftir viku eða svo. Fjórtán dögum seinna hringdi hann til hennar og spurði, hvers vegna hún kæmi ekki, eins og ákveðið hafði verið. „Kæri læknir,“ sagði hún, „þér gáfuð mér stranga skipun að forðast allt fólk sem fer í taugamar á mér og ég þekki engan, sem fer meira í taugarnar á mér en þér.“ ----o----- Á veitingahúsi rakst sálfræðingur á einn af kvensjúklingum sín- um, scm var þar með manni sínum. „Gott kvöld, læknir," sagði hún, „Má ég ekki kynna þig fyrir manninum mínum — hann er cinn af þeim mönnum, sem ég hef sagt þér frá.“ JANÚAR, 1956 29

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.