Heimilisritið - 01.01.1956, Page 40

Heimilisritið - 01.01.1956, Page 40
sctgði hann dauflega. .,,Þú skalt ekki hugsa um mig.” PÁLL hafði mikið fyrir því að snyrta sig og snurfusa næsta kvöld. Það var laugardagskvöld. Hann fór í bað í þvottahúsinu og á eftir rakaði hann sig við borðið inni í herberginu þeirra. Nú stóð hann nakinn að ofan fyrir framan spegilinn og var í óða önn að greiða sér. Allt í einu hætti hann að raula og sneri sér að Hinrik. ,,Þú veizt, að Jenny fer með mér á dansleikinn í knattspyrnu- félaginu." Rödd hans var háðs- leg. „Ég ætla að vona, að þú skiljir hvað það þýðir. Við urð- um sammála um að láta hana sjálfa velja, ekki satt? Nú er hún búin að velja, og nú skiptir þú þér ekki af henni oftar.'' Hann hló hranalega. „Annars máttu vera ánægður með að sitja ekki inni.'' Hann kinkaði kolli í áttina að byssunni. „Þú ert ekki alveg búinn að gleyma ...?'' Hinrik var of reiður til að geta svarað. Hann pakkaði saman óhreina fatnaðinum sínum, sem hann ætlaði með heim. Svo lædd- ist hann út eins og barinn hund- ur, tók hjólið sitt og hjólaði í burtu. Það var komið undir miðnætti þegar hann kom til baka. Sum- 38 arnóttin var töfrandi og inni í kjarrinu moraði allt í fuglum. Hann stóð sem snöggvast á veg- inum, en hugur hans var lokaður fyrir dásemdum næturinnar. SvO' fór hann með hjólið inn. Við kerruhússdyrnar stóð ein- hver dökk vera. Hann gat ekki dulið undrun sína. „Ert það þú, Jenny! Stendur þú hérna?" Rödd hans var hás. Hún greip í handlegg hans. „Já, Hinrik, ég frétti af því. ... Páll drakk sig fullan og gortaði . .. hann sagði að þú hefðir ætl- að að skjóta sig. ... Ó, ef þú hefðir vitað hvað hann var við- bjóðslegur . .." Hinrik draup höfði. „Já, en það er satt, Jenny. Hann er ekki að ljúga." „Nei, ég veit það. En hvers vegna .. .? Hvers vegna vildir þú gera það? Var það . . . mín vegna?" Hann kinkaði kolli þögull. „Ó, Hinrik, Hinrik!" Hún greip í strítt hár hans og hristi höfuð hans. „Hvers vegna hefurðu ekki sagt neitt, kjáninn þinn?" „Hvað átti ég að segja . .. ?" „Að þú elskir mig! Ég er búin að bíða lengi eftir því!" Hann þreif í hana og dró hana að sér og þrýsti hana fast. „Jenný, Jenný! Hlustaðu þá á mig: ÉG ELSKA ÞIG!" * HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.