Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 58

Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 58
háum spegli og virti fyrir sér mun sinn, sem allur var ataður varalit. „Þakka yður fyrir, ungfrú Towne. Mjög ánægjuleg aðferð til að fá niðurstöðu í málinu, og hún er þessi." Hann gekk yfir að kaffi- borðinu og tók upp kokkteilglasið. „Einhver drakk þennan Martini- kokkteil nýlega — dreggjar í glasinu, óbráðnaður ís í hristar- anum. Ungfrúin skilar af sér vara- lit sínum eins hæglega og dem- öntum sínum, eins og þið sjáið á vörum mínum." Hann lyfti glasinu upp að ljós- inu. „Það er ekki vottur af varalit á þessu glasi. Hún hafði ekki tíma til að þurrka af því. Það tekur of langan tíma að ná varalit af glasi." Hann þagnaði. „En ef ung- frú Lindquist, sem hefur virðing- arverðan viðbjóð á varalit, hefði drukkið hann........." Hann hrifsaði fimlega vindling- inn úr hendi hennar og hélt hon- um á lofti. Það var ekkert á hon- um. „Sjáið þið Enginn varalitur." „En ég kom aldrei hingað inn," sagði hún og þaut upp. „Ég sagði yður það. Ég er alltaf að segja yður það." „Ég veit það, ungfrú Lindquist, en kannske er það ekki satt. Ef til vill börðuð þér, og Cook hleypti yður inn. Ef til vill báðuð þér hann um að blanda handa yður einn Martini, til þess að þér fengjuð tíma til að ná í byssuna. Ef til vill skutuð þér hann, þegar hann setti niður hristarann. Ef til vill skelltuð þér svo drykknum í yður til þess að styrkja yður — og hlupuð svo eftir lyftudrengnum." „En þetta er bjánalegt. Það hef- ur verið Cook sjálfur, sem hefur drukkið hann." Trant brosti. „Ef Cook hefði drukkið hann sjálfur, væri ekki hægt að ásaka yður, það viður- kenni ég." „En hann gerði það, hann gerði það." „Nei, hann gerði það ekki, hann gerði það ekki." Trant leit á hana sorgmæddur. „Cook var annt um heilsu sína. Honum hefði aldrei dottið í hug að drekka áfengi, rétt á eftir penisillin-sprautu. Og ef hann drakk ekki úr glasinu og heldur ekki ungfrú Towne, hver annar........?" Trant fannst aldrei neitt sérlega gaman að því að koma upp um morð framið af fallegri stúlku. „Ég kenni næstum í brjósti um yður, Ingeborg," sagði hann bljóðlátlega. „Þessi langa ferð frá Skandinavíu — og svo miljóna- erfingi frá Texas. Amerískir doll- arar giftast amerískum dollurum. Þetta er svo tillitslaust." * 56 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.