Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 60

Heimilisritið - 01.01.1956, Síða 60
Það var hans sök, að hún lá hér úti t skógi, að þau urðu sjálf að afla skinn- anna í loðfeldinn hennar. Hún starði á hann gégnum rökkrið, cins og hún ætl- aði að neyða hann til að opna augun. En hvarmar hans bærðust ekki, og hann hélt áfram að anda hægt og rólega. Hatrið reis í brjósti hennar, greip um kverkar hennar. Hann var óvinur hcnn- ar. Hvapfeitur skrokkur hans stóð í vegi hcnnar, svo að hún komst ckki heiman úr skógarhöggsbænum og út í heiminn. Ef hún hefði ekki gifzt hon- um, hefði líf hennar orðið einhvers virði. Látum hann kveljast, látum hann kveljast, tautaði hún við sjálfa sig. Nú leit hún aftur á Viktor og reis upp á annan olnbogann og benti hon- um að koma. Viktor leit á lækninn, eins og hann væri hræddur. Hann hreyfði sig ekki fyrr en hún benti hon- um í annað sinn. Þá kom hann skríð- andi á fjómm fótum og reyndi að fara hljóðlega. Nú geðjaðist henni ekki að honum. Hann var hræddur við mann- inn hennar. Hann bar virðingu fyrir Lew, eins og allir bæjarbúar bám virð- ingu fyrir eina lækninum sínum. Viktor settist hjá henni og krosslagði fæturna. Rósa lyfti höfðinu upp af bak- pokanum og lagði það á læri Viktors. Hún gaf manninum sínum gætur. Augu hans vom hálfopin. Já, þú mátt kveljast, sagði hún við hann í hugan- um, þú mátt kveljast. . . . Hana hafði langað til að kaupa sér silfurrefafeld í Chicago. Hún hafði viljað ganga búð úr búð, þangað til hún fyndi þann, sem henni líkaði. Hún hafði viljað búa á glæsilcgu hóteli. . . . En læknir bæjarins, virðulegasti borgari hans, hafði ekki efni á því. Þegar hún bað hann, hafði hann svarað: „Ég get það ckki, Rósa. Ekki í ár. En Elgur veit um rnörg bifurbú. Hann heldur því leyndu, en hann mundi veiða nógu marga í kápu handa þér. Og Indíán- arnir skulda mér peninga. Þeir mundu súta skinnin fyrir mig. Og Blome klæð- skeri hefur ekkert borgað mér árum saman. Hann saumar kápuna fyrir þig, hvaða snið sem þú vilt. Hann er góður klæðskeri, og verður feginn að borga mér á þann hátt.“ Hver einasta fjölskylda í bænum skuldaði manninum hennar peninga, en hún hafði ekki efni á að skreppa til Chicago, ekki einu sinni til Minnea- polis. Hún varð að sætta sig við einn veturinn enn án nokkurrar tilbreyting- ar, af því að hann var of ragur td að heimta borgun. Hann tók gæs fyrir greiðslu, eða skíðisfaðm. Hann gat ekki heimtað greiðslu, af því að hann vissi, að hann var enginn læknir. Og hann var cnginn læknir. Hún vissi það, þótt bæjarbúar vissu það ekki, að hann var bæði heimskur og klaufskur. Þegar hún heyrði um bifurbúin hans Elgs, hafði hcnni dottið snjallræði í hug. ; . . Hún sá, að maðurinn hennar opn- aði augun og starði á hana. Hún rétti upp höndtna og snerti vanga Viktors, strauk hann þangað til hann gleymdi óttanum við manninn hennar og fór að strjúka andlit hennar. Hendur hans skulfu, og hún fann blóðið fossa í æð- um hans, þar sem hnakki hennar snerti læri hans. Maðurinn hennar var hræddur við allt — hræddur við hana, hræddur við sjúkdómana, sem hann varð að fást við í starfi sínu, hræddur við sinn eigin vanmátt. Og Viktor var líka hræddur, við sjálfan sig, við hana, við manninn hennar. En það skipti engu máli. Hann gat ekkert gefið henni, hvort sem var. Og honum gat hún fyrirgefið margt, 58 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.