Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Page 45

Fjölnir - 04.07.1997, Page 45
Hallgrímur Helgason Sjálfstraust íslendinga (Jsi^ ja... og gaf orðunum „brennandi áhugi“ alveg nýja merkingu í tali um Njálu. Ég gat ekki annað en valdið manngreyinu nokkrum vonbrigðum þegar ég leiddi hann inn í salinn að sýna honum mál- verk af nöktum körlum og konum í mis-áber- andi langt komnum samförum. „Well...Not very Icelandic I must say,“ sagði skröggur og hló vandræða- lega. „Well...We do that in Iceland too,“ hefði ég þá átt að segja. Þegar orðið ÍSLENSKUR er skrifað of stórum stöfiim fyrir framan orðið listamaður ertu kominn í lopapeysuna með lax í hönd: Hvernig málar maður með grafinn lax í hendi? Verður ekki einhver sósa úr því, graflaxsósa? Þú ert kominn í gamla vistarbandið og getur í mesta lagi ofið þér ein- hverja bandamannasögu úr því. Listamenn í landkynningu eru vinnuhjúin á bænum ferðamálaráðs. Eða hvernig líst okkur á Ameríska daga í Perlunni? Hvernig hljómar bandarísk landkynn- ing? Og hverjir fara þangað til að máta kabboj- hatta, skoða barbí og borða barbí-kjú og drekka kók? Berið þá landkynningu saman við nýjustu ákafa-myndina með Bruce Wilus eða nýjasta diskinn með Beck. I hvoru liggur meiri „land- kynning"? Besta og eina raunverulega landkynningin eru einstaklingar sem hafa eitthvað heiminum að bjóða. Þeir sem hafa náð að búa til sín eigin sólarlög. Engar myndir eftir Erró voru notaðar á Loftleiðakynningunni í New York '65. Valdimar Crímsson var ekki látinn sýna vítaskot á Feneyjar- bíenalnum '95. Björk var ekki kölluð til á HóFlAR-dagana íTokyo '88. Gus Gus-hópurinn var ekki sendur í Peking-óperuna '97. Laxness var ekki látinn lesa upp á íslandskynningunni í tengslum við Ólympíuleikana í London '48. 9. Leif ur eklci nlweg nóqu Heppinn Ólafur Racnar CrImsson stendur á rútuplani í Búðardal, í opinberri og bjartri heimsókn í Dali, og segir okkur og fréttamanni sjónvarps frá 17. júní-skeytinu sem hann fékk frá Cunton: Banda- ríkjamenn eru tilbúnir að taka þátt í hátíðarhöld- unum árið 2000 til minningar um landafundi Leifs heppna, mannsins sem var 500 árum á und- an sinni samtíð og hélt sína veturlöngu Islands- kynningu meðal frumbyggja Norður-Ameríku árið 1000, við mynni Karlsár, ef marka má rann- sóknir Þorsteins skálds Eruncssonar, þar sem nú stendur byggðin í Bástúnum, og því ekki langt frá því galleríi þar sem löngu síðar var haldin annarskonar og öllu vafasamari fslandskynning. Ólafur Ragnar fagnar boði Clintons og hnykkir á með því að reisa verði veglega við minningu „þessa Dalamanns sem á sínum tíma fann það land sem nú hefúr um hríð gengið undir nafninu Ameríka". Hve dásamlega tekur ekki forseti vor hér til orða! Hve dásamlegt sjálfstraust geislar af orðun- um „sem um hríð hefúr gengið undir nafninu Ameríka“! f þessum orðum liggja yfirburðir þjóð- ar sem er kannski smá en varð nú samt sem áður fýrst til að nema landið undir voldugustu þjóð heimsins. I orðunum liggur eiginlega eignarhald okkar á þessu landsvæði. Sá á fúnd sem finnur. Vínland er okkar. Við bara leyfúm Könum að vera þar nokkra hríð, og svosem í lagi þó þeir vilji kalla það Ameríku svona rétt á meðan. Við fær- um bara nafnið í upprunalegt horf þegar þar að kemur, líkt og gert er þegar svona sveitarfélög sameinast. Hér var kannski á ferð eitt létt mismæli í munni forsetans í miðjum fréttatíma sjónvarps. En það var „freudian slip“. Gamla góða sagan um Lucky Leif er eitt af mörgum atriðum sem gefa okkur sjálfstraust, sem gera okkur að meiri þjóð en hinum gúbbalöndunum sem við erum að slást við á hinum hlálegu Smáþjóðaleikum. Við fúndum Ameríku. Við skráðum sögu norrænna konunga. Við varðveittum tungu víkinganna. Við notum ennþá stuðla og höfúð- stafi. Við einir þjóða getum lesið rúnir. Við eig- um The Geyser. Við eigum Nóbelmann. Við eigum flestar alheimsdrottningar á síðustu tíu ár- um. Við eigum flesta alþjóðlega skákmeistara. Við einir Evrópuþjóða utan Breta eigum aktífa alþjóðlega poppstjörnu. Við eigum kvikmynda- mógúl í Hollywood. Við eigum menn á Everest. Og við eigum bráðum geimfara. Við áttum meira að segja einn Bandaríkjaforseta. (Ronald Reacan var að þremur fjórðu úr Húnaþingi og Skaga- firði, að sögn þeirra góðu manna sem drekka sitt morgunkaffi í Eden í Hveragerði.) Og hér er höfðatalan óþörf með öllu. Sé hún hinsvegar kölluð oss til hjálpar er öll samkeppni fýrir bí. There ain't no competition. Þá verðum við að leita lengra effir samanburði. Þá emm við ekki að tala um neina Smáþjóðaleika heldur Geimþjóðaleikana. Þá erum við hreinlega herra- þjóð heimsins: Með langflesta heila miðað við höfðatölu. En í þessum orðum Ólafs Ragnars er einnig falið tragískt hlutskipti okkar. Við erum bestir en það veit bara enginn af því. Við fúndum Ameríku en það veit bara enginn af því. Og þó einhver vissi af því þá er það of seint núna. Það skipti svosem engu máli þótt við hefðum rekist á hana. Það breytti ekki gangi sögunnar. Bara nokkrir brjálaðir víkingar í sigliför. Svona er stundum okkar heimsfrægð. KristjAn JOhannsson lýsir því yfir ár eftir ár að „Pavarotti og þessir kall- ar“ séu alveg búnir að vera og hann sé sjálfúr líka miklu betri. Leifúr var ekki alveg nógu heppinn. Það vantaði herslumuninn. Það herslumunaði bara 500 árum. Erum við ekki dálítið eins og gamall kunn- ingi minn sem gengur um bæinn og bendir manni á allar þær hugmyndir sem hann fékk en aðrir stálu frá honum og framkvæmdu. „Sjáðu þennan bar þarna. Það var ég sem átti hugmynd- ina að honum, fýrir mörgum árum síðan. Nú rokgengur hann og þessir strákar eru að græða million bucks á honum, allir komnir á jagúar og bens.“ Ef talið berst að kvikmynd: „Já ég hitti leikstjórann á bar fýrir fimm árum og sagði honum frá handritshugmynd sem ég var með. Hann breytti bara nafninu. Annars er þetta allt frá mér sko...“ Og ef talið berst að Ameríku: „Já, það var ég sem fann þetta land fýrir langa löngu. Sjáðu svo þessa kana núna. Nú rokgræða þeir á tá og fingri, allir komnir á Kræsler og Bjúikk. Þeir breyttu bara nafúinu. Annars er þetta allt frá mér sko...“ Það er auðvelt að vera heppinn eftir á. Ameríkanar áttu hinsvegar óvænt útspil nokkrum kvöldum eftir viðtalið við Ólaf Ragnar, í fréttatíma Stöðvar Tvö. Það kemur sem sagt í ljós að þó við höfúm fúndið Ameríku þá fúndu þeir okkur löngu áður, voru mættir hér snemma á steinöld, uppí Borgarfjörð að tálga spjót úr jaspís. ► 7. 8. 9. lO. 12. 1A. 16. T7. 18. 19. 20. en svaraðu mér þessu, RáðhHdur Ingadóttir: Af hverju stundar þú myndlist? „Einhver tjáningarþörf er til staðar, sem gefur lífsfyllingu og tilgang. „Til að halda áfram ferðalögum mínum frá því að ég var barn. Þessi ferðalög áttu sér stað í draumum og þegar ég var ein, t. d. í sandkassanum, eða þar sem ég lá úti og mændi uþþ í himininn." Hvað hefur aðallega mótað list þína? (bannað að vísa til listrænna áhrifavalda og íslenskrar náttúru) „Geometrían, alheimurinn og æska mín." Hvernig hefur list þín mótað umhverfið? „Að mjög litlu leyti, helst með því að einhver er í fötunum em ég lét gera í vetur eða með því að hugur fólks hvarflar örstutta stund eitthvert annað en það hafði gert ráð fyrir þegar það fær dreifiþréfin min." Hver er eftirminnilegasta stundin á ferlinum? „Þegar ég eignaðist þörnin mín og foreldar mínir dóu." Ef þú værir lokuð inni í herbergi í tíu ár og mættir mála það, hvaða lit myndir þú velja? „Ljósþlátt." Nefndu fimm bækur/greinar sem opnuðu þér nýjan skilning á listum. „Parzival eftir von Eschenbach, Sun Space eftir Olive Whicher, Hyperspace eftir kaku, Rediscovering Colour eftir H.o. Proskauer, The Vortex of Life eftir Lawrence Edwards." Hvað einkennir góða myndlist? „Það sama og einkennir önnur góð verk." Af hverju á það besta í íslenskri myndlist fullt erindi við umheiminn? „Það besta, versta og allt þar á milli í islenskri myndlist á fullt erindi við umheiminn vegna þess að ísland er hluti af umheiminum." Hvernig hefur vægi myndlistar aukist undanfarinn áratug? „Ég efa að vægi myndlistar hafi aukist síðasliðinn áratug en vægi hennar hefur breyst. Það helsta sem hefur orðið þennan áratug er að landamæri hafi hrunið. Landamæri okkar í geimnum og á sama tíma landamæri lífeðlisfræðinnar sem sjá má t. d. á klónunartækninni. Mörkin hafa færst jafnt inn sem út. Myndlist hefur breyst í samræmi við þetta og vægi hennar líka." Hver er höfuðstyrkleiki þinn? „Það að ég er ekki of bundin af myndlist sem slíkri." Tilgreindu þrjár ástæður fyrir sýningarhaldí þínu sem ekki liggja í augum uppi. „Sýningarnár eru verkin mín." Skíptir almenningshylli þig máli? „Ef að það væri verið að hylla mig fyrir eitthvað sem ég ætti skilið þá myndi það sjálfsagt skipta mig máli. En þar sem almenningshylli er gjarnan byggð á röngum forsendum þá held ég að hún sé ekki eftirsóknarverð." Hvað er mest gefandi við það að vera myndlistarmaður? „Það að fá að halda áfram ferðalögunum sem minnst er á í svari við fyrstu spurningu." Að hve miklu leyti lifir þú á listinni (og hvernig bitnar það á þínum nánustu)? „Að mjög litlu leyti. Þegar ég var búin að starfa við list í 12 ár hafði ég haft rúmar sexhundruð þúsund upp úr krafsinu. Ég er í 50 prósent kvöld-, nætur- og helgarvinnu auk myndlistarvinnunnar. Þetta skapar stundum mikið álag fyrir okkur öll í fjölskyldunni." Ef þú fengir 70 milljónír fyrir að búa ekki til myndlist, tækir þú boðlnu? „Það væri auðsótt mál þar sem ég álít mig aldrei búa neitt til." A hvern hátt hefur myndlistin gert þig að heilsteyptari manneskju? „Ef ég er heilsteypt manneskja þá er ég ekki viss um að myndlistin hafi gert mig það." Á hvern hátt hefur myndlistin treyst þjóðfélagsstöðu þína? „Myndlistin hefur ekki treyst þjóðfélagsstöðu mina." Hvar sérðu sjálfa þig eftir 20 ár? „Á Mount Everest." Hvernig sérðu framtíð myndlistarinnar fyrir þér? „Mörk myndlistar eru alltaf að verða ógreinilegri, aðferðamúrarnir eru svo að segja fallnir. Myndlistin hefur verið sSmofin öðrum miðlum lengi og það mun vafalaust aukast í náinni framtíð. Viðfangsefnin munu fylgja því sem á sér nú stað í öllum vísindum." Hvernig viltu að þín verði minnst? „Ég vil ekki láta minnast min á neinn ákveðinn máta." F j ö 1 n i r sumar '97 45

x

Fjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.