Fjölnir


Fjölnir - 04.07.1997, Blaðsíða 58

Fjölnir - 04.07.1997, Blaðsíða 58
fífs^ösnHj Hún leit beint í augu mín og lagði hend- urnar saman á borðið, þannig að fingurnir læstust saman. „Auðvitað vissi ég ekki að það væru álög fyrr en núna. Þetta útskýrir allt. Þú ert í álögum." „Hvernig undarlegu?" „Eins og að þung rykug gluggatjöld sem hafa ekki verið þvegin árum saman hangi úr loftinu." „Kannski eru það ekki álög. Kannski það sé bara ég,“ sagði ég og brosti. Hún brosti ekki. „Nei, það ert ekki þú,“ sagði hún. „Segjum að þú hafir rétt fyrir þér. Segjum að það séu álög. Hvað get ég gert?“ „Ráðist á aðra brauðbúð. Strax. Núna. Það er eina leiðin.“ „Núna?“ „Já. Núna. Meðan þú ert enn svangur. Þú verður að ljúka því sem þú átt ólokið.“ „En það er mið nótt. Er brauðbúð opin?“ „Við finnum einhverja. Tokyo er stór borg. Það hlýtur að vera að minnsta kosti ein Teitur Þorkelsson SVR Það er gott að sitja í biðskýlum SVR. Ég sit allan daginn. Flestir halda að ég sé á leiðinni eitthvað, muni taka næsta vagn. Dægradvöl Ég sit á kantsteininum og læt öngul- inn síga niður í gegnum ristina. Ilmur hans fyllir holræsin. Þegar leið fimm hefúr ekið tvisvar framhjá, bímr rott- an á. Þá á að kippa snöggt í gimið og láta það síðan renna niður. Hún drepst seinna. Velkomin í húsdýragarðinn Viðbrögð við hita er þema mánað- arins að þessu sinni. Nokkur börn úr sjötta bekk B í Melaskóla eiga heiðurinn af listaverkinu Felix Catus calefleri en Guðbjöm Han- sen, líffræðikennari þeirra, aðstoð- aði þau við hugmyndavinnu og tæknilega útfærslu. Þeim sem hafa áhuga á að fylgjast með ferlinu til enda er bent á að klappstóla má nálgast í afgreiðslunni. Þar eru einnig seldar veitingar. Inni í klefanum gefúr á að líta venjulegan bröndóttan húskött. Gestum er gefinn kostur á að þrýsta á rauða hnappinn sem veld- ur því að klefinn byrjar smám saman að hitna og innan klukku- stundar verður lofthitinn kominn yfir 200°C. Gestir geta fyigst með því hvernig kötturinn ókyrrist smám saman og ærist síðan gjör- samlega. Að lokum mun hitinn valda því að Iíkami dýrsins þornar upp og fellur saman. brauðbúð sem er opin alla nóttina.“ Við settumst inn í gömlu Corolluna mína og fórum um götur Tokyo, klukkan hálfþrjú að morgni, leitandi að brauðbúð. Þarna sátum við, ég með hendurnar á stýrinu, hún í siglingafræðingssætinu, bæði skoðandi götuna eins og hungraðir ernir í leit að bráð. Teinrétt í aftursætinu, löng og stíf eins og dauður fisk- ur, lá sjálfvirk Remington haglabyssa. Skotin skrjáfúðu þurrlega í vasanum á stormblússu eiginkonu minnar. Við vorum með tvær svart- ar skíðahettur í hanskahólfinu. Af hverju konan mín átti haglabyssu vissi ég ekki. Eða skíðahettur. Hvorugt okkar hafði nokkru sinni farið á skíði. En hún útskýrði það ekki og ég spurði ekki. Hjónalífið er undarlegt, fannst mér. Þó við værum þannig fúllkomlega útbúin, gátum við samt ekki fúndið brauðbúð sem væri opin. Ég keyrði gegnum mannlausar göt- urnar, frá Yoyogi til Shinjuku, til Yotsuya og Akasaka, Aoyama, Hiroo, Roppongi, Daika- nyama og Shibuya. Tokyo að nótm til var fúll af allskyns fólki og verslunum, en engum brauðbúðum. Tvisvar rákumst við á lögreglubíla. Annar lá í skjóli við veginn og reyndi að vera lítt áberandi. Hinn fór hægt fram úr okkur, skreið framhjá, hvarf að lokum. í bæði skiptin svitn- aði ég í handarkrikunum en ekkert raskaði einbeitingu eiginkonu minnar. Hún var að leita að brauðbúðinni. í hvert skipti sem hún hreyfði sig, skrjáfúðu kúlurnar í vasanum eins og hveitihismi í gamaldags kodda. „Gleymum þessu“, sagði ég. „Það eru eng- ar brauðbúðir opnar á þessum tíma. Maður verður að skipuleggja svona fyrirfram, annars.“ „Stöðvaðu bílinn!“ Ég steig á bremsurnar. „Hér er staðurinn", sagði hún. Búðirnar meðfram götunni voru með gluggahlerana niðri og mynduðu myrka, þögla veggi báðum megin við götuna. Rakara- stofuskilti hékk í myrkrinu eins og snúið, kalt glerauga. Það var skært McDonalds ham- borgarakeðjuskilti tvö hundruð metra frá okkur en ekkert annað. „Ég sé enga brauðbúð", sagði ég. Orðlaust opnaði hún hanskahólfið og dró út límbandsrúllu. Með hana í hendinni steig hún út úr bílnum. Ég fór út mín megin. Hún kraup fyrir framan bílinn, reif hluta af lím- bandinu af rúllunni og setti yfir bílnúmerið. Síðan fór hún aftur fyrir bílinn og endurtók aðgerðina. Það var æfð nýtni við hreyfingar hennar. Ég stóð á gangstéttinni og starði á hana. „Við tökum McDonalds-staðinn“, sagði hún, eins svöl og hún væri að segja hvað væri í matinn. „McDonalds er ekki brauðbúð", benti ég á. „Hann er eins og brauðbúð,“ sagði hún. „Stundum verður maður að gera málamiðlun. Förum.“ Ég keyrði upp að McDonalds og lagði á bílastæðinu. Hún rétti mér haglabyssuna sem var vafin í teppi. „Ég hef aldrei skotið úr byssu á ævi minni“, mótmælti ég. „Þú þarft ekki að skjóta úr henni. Haltu bara á henni. Allt í lagi? Gerðu það sem ég segi þér. Við göngum inn og um leið og þeir segja „Velkomin á McDonalds“ setjum við grímurnar á okkur. Skilurðu?“ „Já, en—“ „Síðan beinirðu byssunni að þeim og segir öllu starfsfólkinu og viðskiptavininum að hópast saman. Hratt. Ég sé um afganginn." „En—“ „Hversu marga hamborgara heldurðu að við þurfúm? Þrjátíu?" „Ég býst við því.“ Ég andvarpaði og tók haglabyssuna og dró hluta af teppinu af henni. Hún var þung eins og sandpoki og svört eins og myrk nóttin. „Þurfúm við að gera þetta?“ spurði ég hana og sjálfan mig. ,Auðvitað.“ Með McDonalds hatt á höfðinu, brosti stúlkan bakvið borðið McDonalds-brosi til mín og sagði: „Velkomin á McDonalds“. Ég hafði ekki búist við að stúlkur ynnu á McDonalds svo seint á nóttinni, þannig að mér brá eitt andartak. En aðeins eitt andartak. Ég áttaði mig og dró niður grímuna. Stúlkan gapti þegar hún sá skyndilega þennan grímu- klædda dúett birtast fyrir framan sig. Þjónustuleiðbeiningar McDonald’s sögðu augljóslega ekki til um hvernig ætti að bregðast við slíkum aðstæðum. Hún var byrjuð að mynda frasann sem kemur á eftir „Velkomin á McDonalds“ en munnur hennar virtist stífna og orðin vildu ekki út. Þrátt fyrir það, eins og sigðarmáni á morgunhimninum, var keimur af atvinnubrosinu enn við munn- vik hennar. Eins fljótt og ég gat, afklæddi ég hagla- byssuna og beindi henni í áttina að borðun- um, en einu viðskiptavinirnir voru ungt par — nemar, líklega — og andlit þeirra sneru niður að plastborðinu, steinsofandi. Höfúðin tvö og tveir jarðarberjamjólkurhristingar lágu saman á borðinu eins og avant-garde högg- mynd. Þau sváfú svefni hinna dauðu. Þau virtust ekki líkleg til að trufla aðgerðina okkar, þannig að ég sneri haglabyssunni aftur að afgreiðsluborðinu. Allt í allt voru þrír starfsmenn á staðnum. Stúlkan við afgreiðsluborðið, framkvæmda- stjórinn — náungi með fölt, egglaga andlit, líklega rétt að verða þrítugur — og nemandatýpa í eldhúsinu — þunnur skuggi af manni að vera, með ekkert á andlitinu sem hægt væri að lesa sem svip. Þau stóðu saman bakvið kassann, störðu inn í op haglabyssunn- ar eins og túristar að horfa niður í Inca-brunn. Enginn æpti og enginn hreyfði sig á ógnandi hátt. Byssan var svo þung að ég varð að hvíla hlaupið ofan á kassanum, fingurinn á gikkn- um. „Ég læt ykkur hafa peningana“, sagði framkvæmdastjórinn, rödd hans hás. „Þeir tóku þá síðast klukkan ellefú, þannig að það er ekki mikið eftir, en þið getið fengið það allt. Við erum tryggð." „Niður með hlerana og slökkvið á merk- inu,“ sagði eiginkona mín. „Bíddu aðeins", sagði framkvæmdastjór- inn. „Ég get það ekki. Ég verð gerður ábyrgur ef ég loka án leyfis." Eiginkona mín endurtók skipunina, hægt. Hann virtist ráðvilltur. „Það væri best fyrir þig að gera eins og hún segir“, varaði ég hann við. Hann leit á hlaup haglabyssunnar ofan á kassanum, síðan á konuna mína og síðan aft ur á byssuna. Hann gafst að lokum upp fyrir hinu óumflýjanlega. Hann slökkti á merkinu og ýtti á takka á rafmagnstöflu sem lokaði hleranum. Ég hafði auga með honum, hafði áhyggjur af því að hann myndi kveikja á þjófabjöllu en McDonalds virtist ekki hafa þjófabjöllu. Kannski hefúr engum dottið í hug að ráðast á slíkan stað. Það myndaðist mikill hávaði þegar hann lokaði hleranum, eins og tóm fata væri slegin með hafnaboltakylfú, en parið sem svaf við borðið var enn meðvitundarlaust. Þetta kallar maður góðan svefn: ég hafði ekki séð neitt líkt þessu í mörg ár. „Þrjátíu Big Mac. Við tökum þá með okkur," sagði konan mín. „Leyfið mér að láta ykkur fa peningana", bað framkvæmdastjórinn. „Ég læt ykkur hafá meira en þið þurfið. Þið getið fárið og keypt mat annarsstaðar. Þetta ruglar bókhaldið og—“ „Það er eins gott fyrir þig að gera eins og hún segir“, sagði ég aftur. Þau fóru þrjú saman inn í eldhúsið og byrjuðu að búa til þrjátíu Big Mac. Neminn steikti borgarana, framkvæmdastjórinn setti þá í brauðið og stúlkan pakkaði þeim. Ekkert þeirra sagði orð. Ég hallaði mér að stórum ísskáp, beindi byssunni að steikingarborðinu. Kjöthleifarnir voru í röð á borðinu eins og brúnar doppur, snarkandi. Sæt lyktin af steiktu kjötinu gróf sig inn í allar svitaholur líkama míns eins og sveimur af örsmáum skordýrum, sem leystust upp í blóðinu og fóru út í fjarlægustu horn, söfnuðust síðan saman innan loftþétts hungurhellisins, héldu sér fast í bleika veggi hans. Hrúga af hvítpökkuðum borgurum óx nálægt. Ég vildi hrifsa þá til mín og rífa í þá, en ég gat ekki verið viss um að slíkt væri í samræmi við markmið okkar. Ég varð að bíða. í heitu eldhúsinu byrjaði ég að svitna undir skíðagrímunni. McDonalds fólkið leit af og til á hlaup haglabyssunnar. Ég klóraði mér í eyrunum með litla fingri vinstri handarinnar. Mig klæjar alltaf í eyrun þegar ég verð taugaóstyrk- ur. Ég stakk fingri inn í eyra gegnum ullina, þar með hristist byssuhlaupið upp og niður og þeim virtist finnast það óþægilegt. Ég gat ekki misst skot úr henni óvart, þar sem öryggið var á, en þau vissu það ekki og ég ædaði ekki að segja þeim það. Konan mín taldi hamborgarana og setti þá í tvo litla innkaupapoka, fimmtán borgara í hvorn. ,Af hverju eruð þið að þessu?“ spurði stúlkan mig. ,Af hverju takið þið ekki bara peningana og kaupið eitthvað sem ykkur langar í? Til hvers að borða þrjátíu Big Mac?“ Ég hristi höfúðið. Konan mín útskýrði: „Okkur þykir þetta leitt. En það voru engar brauðbúðir opnar. Ef svo hefði verið, þá hefðum við ráðist á brauð- búð.“ Það virtist fullnægja forvitni þeirra. Að minnsta kosti spurðu þau ekki fleiri spurn- inga. Þá pantaði konan mín tvær stórar kók af stúlkunni og greiddi fyrir þær. „Við stelum brauði, engu öðru“, sagði hún. Stúlkan svaraði með flókinni höfúð- hreyfingu, eins og hún kinkaði kolli um leið og hún hristi höfúðið. Hún var líklega að reyna að gera þetta tvennt samtímis. Ég áleit mig hafa hugmynd um hvernig henni leið. Konan mín dró þá snæri úr vasanum — hún var vel útbúin — og batt þau þrjú við súlu eins vel og hún væri að sauma hnappa á treyju. Hún spurði hvort snærið meiddi þau og hvort þau þyrftu að fara á klósettið, en enginn sagði orð. Ég vafði byssunni inn í teppið, hún tók innkaupapokana og við fór- um út. Viðskiptavinirnir við borðið sváfú enn, eins og tveir djúpsjávarfiskar. Hvað hefði þurft til að vekja þau af svo djúpum svefni? Við keyrðum í hálftíma, fúndum tómt bílastæði við byggingu og lögðum bílnum. Þar borðuðum við hamborgara og drukkum kókið okkar. Ég sendi sex Big Mac niður í hellinn í maganum á mér og hún borðaði fjóra. Þá voru tuttugu Big Mac eftir í aftursæt- inu. Hungrið — hungrið sem hafði virst end- ast að eilífú — hvarf þegar dögunin kom. Fyrstu geislar sólarinnar lituðu óhreina veggi byggingarinnar fjólubláa og gerðu það að verkum að risastór SONY BETA auglýsinga- turn lýsti óþægilega skærri birtu. Bráðlega blandaðist hvinurinn frá trukkhjólunum á hraðbrautinni fúglasöng. Kanaútvarpið spil- aði kúrekatónlist. Við deildum sígarettu. Að því loknu hvíldi hún höfúðið á öxl minni. „Var samt nauðsynlegt að gera þetta?“ spurði ég. ,Auðvitað!“ Með djúpu andvarpi sofnaði hún uppvið mig. Hún var mjúk og létt eins og kettlingur. Orðinn einn teygði ég mig yfir brúnina á bátnum mínum og leit niður á sjávarbotninn. Eldfjallið var horfið. Slétt yfirborð vatnsins speglaði bláma himinsins. Litlar bylgjur — eins og silkináttföt sem sveifluðust í golu — skvetmst upp við bátshliðina. Það var ekkert annað sjáanlegt. Ég teygði úr mér í botni bátsins og lokaði augunum, beið eftir því að hækkandi sjávarföll bæru mig þangað sem ég átti heima. Arnar MatthIasson pýddi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Fjölnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.