Fjölnir - 04.07.1997, Síða 62
Ragnar Bragason Skrípasýningar-
Til vinstri: Hepston
kapteinn fangaði Clicko,
villimanninn úr frum-
skógum Afríku. og gerði
hann að sirkusdýri.
Myndin er tekin um 1930
þegar Clicko dansaði
afríkanska dansa með The
Ringling Bros. sirkusnum.
Til hægri: ómar Ragnars-
son fangaði Gísla á Upp-
sölum með sjónvarps-
myndavélinni sinni og
gerði hann að fjölmiðla-
persónu.
hún séu í raun og veru algjörlega mannleg. Heill
iðnaður hefur skapast í kringum þennan ótta
kvenna. Til sölu eru rakvélar, vaxmeðferðir og
fleira svo konan geti „af-skrípað“ sjálfa sig áður
en hún fer út á meðal „siðaðra".
Hægt er að finna tengingu gömlu skrípasýn-
inganna við nektarsýningar og klámmyndir þar
sem þú horfir óviljugur en gagntekinn á beraðan
ruddaskap. Hvaða strákgerpi man ekki eftir að
hafa setið þétt í stofusófa heima hjá einhverjum
félaganum og horft stjarfúr á amerisk klámskrípi,
hátt rökuð á nára, í ævintýralegum stellingum
undir dynjandi stefi pornóbassa. Síðan þegar
kreditlistinn fór að læðast upp á skjáinn læddist
einn og einn á klósettið undir fölsku yfirskini.
Gægjuhættinum þar með fullnægt.
islewsK sKripí
Undir eðlilegum kringumstæðum ættu Islending-
ar ekki að vera hneykslunargjarnir. Hetjur okkar
þjóðar og forfeður voru nauðgandi, ælandi og
myrðandi skítseiði sem á milli þess að dæla út úr
sér þungmeltum kveðskap hjuggu auma húskarla
í spað og fróuðu sér í sárið. Af þess konar afþrey-
ingu eimir enn. Austurstræti breytist í eina alls-
herjar skrípasýningu á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Þar reynir hver og einn að vekja sem
mesta athygli á sjálfúm sér með því að hrópa,
dansa, æla, berja, myrða og nauðga og hegða sér
sem villimannslegast í anda forfeðranna.
En finnast sönn skrípi á íslandi? Vegna
smæðar þjóðarinnar er erfitt að fylla hvern undir-
flokk. Þar fyrir utan er forvitninni / gjægjuhætt-
inum fljótt fúllnægt því frávikum er á örskömm-
um tíma nauðgað í fjölmiðlum.
Gaui utli er eitt besta dæmið um íslenskt
skrípi enda nær ósvikið. Frægðina hlaut hann
undir formerkjum feita mannsins. En það sem
gerir Gauja að minna skrípi en til dæmis Robert
Earle Hughes (einn þyngsti maður sem uppi hef-
ur verið, 580 kg, og var jarðsettur í kassa utan af
píanói) er að Robert auðgaðist á því að vera í
góðum holdum. Gaui litli hefúr aftur á móti
öðlast sína frægð af því að afskrípa sjálfán sig og
með því að gangast við fegurðarfordómum nú-
tímans. Persónulega fannst mér Gaui litli mun
svalari gaur áður en hann var afskrípaður og er ég
viss um að fleiri eru á sama máli.
Það hlýtur að vera einhver minnimáttar-
kennd í okkar blessuðu þjóðarsál sem hvetur
okkur til að sýna styrk okkar á alþjóða vettvangi.
Við þurfum að vera fallegust, sterkust og á allan
hátt besr. Jon Páll heitinn og Magnús Ver eru
fulltrúar sterka mannsins. Báðir hafa hlotið titil-
inn Sterkasti maður heims og því 100% skrípi.
Fegurðarsamkeppnir og vaxtarræktarsýningar eru
einkar góð dæmi um nútíma skrípasýningar.
Þvengmjóar spóaleggjaspírur á sundbolum eða
olíubornir steratuddar geta ekki talist til venju-
legra mannvera svona samanborið við 99% þeirra
sem líta á sjálf sig í spegli eftir sturtuferð.
Síðan mætti taka fýrir eina ofúrkonu sem
kannski fellur ekki undir gömlu skilgreininguna
en er skrípi á nútímamælikvarða. Það er súper-
feministinn og Dagsljósar-kvendið Kolfinna. Hún
vekur losta hjá karlkyns áhorfendum sínum (og
einstaka kvenmanni) en um leið hræðslu og
skelfingu. Ofúr-feministinn er ómeðvitað skrípi í
augum almúgans.
Risar
Fj
62
ölnir
timarit handa
islendingum
sumnr '97
Oftirmenn og Konur
Ég veit ekki hvort það sé tilviljun en sá undir-
flokkur sem auðveldast er að fylla eru ofúrmenn
og konur. Án þess að fara út í skilgreiningar í
anda Nietzsche og misskilda hugmyndafræði
hans á arfhreinum ofúrmanni, þá er þetta sá
flokkur sem virðist þéttsetnastur af einhverjum
orsökum.
íslendingar geta státað af tekjuhæsta aukaatriðis-
skrípi á þessari öld. Jöhann risi notaði uppruna
sinn í sýningum sínum og kom fram í fúllum
víkingaskrúða, svona í anda Egils heitins Skalla-
grImssonar. En Jóhann lét vera að kveða torrek
eða höggva mann og annan. Hann var afskaplega
lítil hópsál enda var Jóhann með sitt eigið tjald
við hliðina á sirkusnum þar sem hann var eina
skemmtiatriðið. í dag er börnum sem vaxa óeðli-
lega hratt haldið niðri með lyfjum (að sama skapi
er dvergum skipað í lengingar og flestir sendir til
gömlu Sovétríkjanna þar sem skrípi hafa verið
bannfærð undanfarna öld). Það er helst í Banda-
ríkjunum að stórt fólk sé hyllt í gegnum eina vin-
sælustu skrípasýninguna — NBA körfúboltann.
En erfitt er að bera NBA við íslenska hliðstæðu
— DBL deildina (eða hvað það nú heitir) — þar
sem meðalhæð manna er ekkert óeðlileg.
Willimewn
Villimenn hafa alltaf heillað áhorfendur. I gömlu
sýningunum voru villimennirnir yfirleitt inn-
fæddir Bandaríkjamenn sem á einhvern hátt voru
frábrugðnir líkamlega. Annaðhvort var þeim
áskapaður of mikill hárvöxtur eða einhverskonar
líkamleg afmyndun. Spilað var inn á fávisku
áhorfenda sem flykktust að til að sjá villimanninn
Krao — týnda hlekkinn frá svörtustu innviðum
Borneó eða Jo-Jo thé Dog-faced Boy. í dag hefúr
þessum flokki verið að mestu eytt. Þó er hægt að
finna dæmi í íslenskri fjölmiðlasögu um mann
sem auðveldlega fellur undir skilgreininguna um
villimanninn. Glsu heitinn Á Uppsölum var gerður
að ódauðlegu skrípi hér fyrir nokkrum árum.
TviKywjuwgar
Ekki hef ég rekist á eða heyrt af tvíkynja fólki á
íslandi fram að þessu enda væri forvitnispúkinn í
mér búinn að bjóða þeim sama aðila í partí með
það sama. En kannski mætti skipa kynskipting-
um í þann flokkinn og eigum við einhverja sem
hafa verið svo djarfhuga á síðustu árum. Popparar
og tónlistarmenn hafa spilað inn á tabú tvíkynj-
unganna í sinni sviðs- og fjölmiðlaframkomu
ekki síður hér á landi en erlendis. Páll Óskar,
landsins besti performer, spilar á þá strengina og
tekst svo vel upp að hann heillar bæði sápukúlu-
blásandi ungmenni og hrum gamalmenni. Eitt-
hvað sem Bowie og Jagger hefði ekki dreymt um
á villtustu árum sínum. Þetta er kannski eitthvað
séríslenskt? Fyrst ég er á popparaslóðum þá er
ekki annað hægt en að minnast á Björk „okkar“
Guðmundsdottur. Ekki það að ég geti sagt að hún
spili inn á sameinaða ímynd beggja kynja í sínum
poppheimi en árum saman áður en hún varð
„mjög sniðug og klár fúlltrúi þjóðarinnar“ var
hún úthrópað skrípi af eldri kynslóðunum. Að
endingu ætla ég að minnast á leikarastéttina sem
gefst fúllt lc}'fi til að klæða sig upp í föt hins
kynsins. Enda geta miðaldra heimilisfeður sofnað
í rónni yfir að í einkalífinu sefur Laddi hjá konum
þegar hann er búinn að afklæðast Elsu Lúnd gall-
anum.
Tíl umhugsuwar
Sífellt er tönnlast á að heimurinn sé að minnka
með aukinni samskipta- og fjölmiðlatækni. Þetta
er að ákveðnu leyti rétt, eða á þann hátt að stór
hluti mannkyns á möguleika á sömu upplýsing-
unum. En grunneining hvers samfélags er ein-
staklingurinn og stærðarhlutföll heimsins ráðast
aðeins af vitund hvers og eins þeirra sem hann
byggja. Það er aðeins með aukinni heildarhyggju
í þjóðfélaginu að sérstaða einstaklingsins minnk-
ar. Persónulega hef ég hingað til lagt meira upp
úr vitund einstaklingsins en heildarinnar en ég
geri mér samt sem áður fúlla grein fyrir að maður
lifir ekki í tómi, heldur er alltaf hluti af heildinni.
Því er mikilvægt að gera sér grein fýrir sérstöðu
sinni og meta sitt eigið sjálf út frá henni. Utrým-
ing frávika getur orðið að útrýmingu heildar-
innar.
Ragnar Bragason
Heímildir:___________________________________
Robert Bogdan: FREAK SHOW — Presenting
Human Oddities for Amusement and Profit, The
University of Chicago Press 1988.
Leslie Fiedler: freaks — Myths and Images of
the Secret Self, AnchorBooks 1978.
Daniel P. Mannix: freaks — we who are not as
Others, Re/Search Publications.