Fjölnir - 04.07.1997, Síða 92
1 6P i
Ófyj (j+ ð ciA íivi (ð a.
Magnea J. Matthiasdóttir
Kaupmannahöfn — Danmörku
Sigurður Árni
Sigurðsson
París — Frakklandi
...ég var sumsé að velta þessu fyrir mér
Hugsi ég til íslenskra
vatnslitamynda, eru þær
betri en aðrar vatnslita-
myndir og íslensk
portrett 70% hreinni en
önnur.
Með kveðju
Sigurður Arni
P.S...Öllum silungunum
sem stökkva í sólskininu
niður við Pottinn í
Brunná og bragðast svo
vel grillaðir í smjöri.
Date: Tue, 17 Jun 1997 17:33:46 +0100
(W. Europe Standard Time)
From: magnea@liiper.dk
Subject: Menningararfinn
MIME-Version: 1.0
To: fjolnir@fjallkonan.is
Kæri ritstjóri og Fjölnismaður!
Auðvitað brennur mér í muna að senda
menningarhvatningu til þjóðarinnar á þjóðhátíð-
ardegi Bandaríkjamanna! „Menningararfmn hann
á sinn djöful að draga,“ eins og Hafnarskáld
minnar kynslóðar söng (rámur) hér í denn og
skaut þarmeð Jónasi og Inga T. ref fyrir rass, þó
Bárur og Þrestir flykkist einmitt þessa dagana
heim að fögru landi ísa í sumarfríinu. Það veitir
víst ekki af að uppræta allan menningararfa úr
beði ættarlauka — eða var það öfugt, á að út-
rýma laukunum til að arfinn fái að vaxa og
dafna? — Hvað veit ég, orðin hálffirrt hér í
danskri flatneskju og landbúnaðarstefnu, ekki
annað á hreinu en að það beri víst að forðast
eiturúðun til að grunnvatnið spillist ekki.
Hvað skyldi hafa komið fyrir dönsku þjóðina
síðan Jónas var og hét, eða jafnvel bara frá því að
Benny the Creat stofnaði hljómsveitirnar í Stínu?
Einhver eiturúði hlýtur að hafa sest í þjóðar-
grunninn, því innblásturinn er ekki beinlínis á
hverju strái. Þótt suðrið sæla andi kannski þýðum
vindum hér og nú saknar maður iðulega íslenska
roksins að hreinsa útúr sálarkirnunum.
Sendi línu bráðum!
Magnea.
ps. Hvernig gekk annars þjóðhátíðin hjá ykkur
þarna heima? Ég bar mig ekki einu sinni eftir að
vita hvort Islendingafélagið hér framdi sína árlegu
grillveislu á Amagerströnd...
M.
Date: Wed, 18 Jun 1997 19:03:16 +0100
(W. Europe Standaæd Time)
From: magnea@hiper.dk
Subject: Mál og menning?
MXME-Version: 1.0
To: fjolnir@fjallkonan.is
Sæll aftur!
Það er illt í efni, mér dettur bara ekki í hug
eitt einasta gullkorn eða perla til að miðla þjóð
minni á þessum merku tímamótum — þeas. við
þessa endurvakningu hins sanna Fjölnisanda —
því varla ætlið þið að vekja Fjallkonuna aftur til
dáða með vafasömum lífgunaraðferðum, eins og
prinsinn vakti Mjallhvíti til lífsins en var ritskoð-
að úr samtímaheimildum þeirra daga af siðprúð-
Auglýsíng
. G A L L E R i .
LhorniðJ
Gallerí Horniö er hentugur vettvangur
íyrir minni listsýningar.
Allar nánari upplýsingar gefur Ólafur Engilberts
sími 5153862 & .5525659
Gallerí Hornið0- djúpstæð og lifandi myndlist
um sagnasöfnurum. Eða hvað? Annars trúi ég
auðvitað öllu upp á þig...
Ég er reyndar búin að vera að velta þessu
fyrir mér um mál og menningu — og þá á ég
ekki við bókaforlagið, heldur bara orðanna
hljóðan. Hér veitti nefnilega ekki af að setja
málfar manna og fjölmiðla í ærlega málhreinsun,
en af því að Danir halda að þeir séu svo
skemmtilega anarkistískir eru þeir ekkert að eiga
við svoleiðis sparðatínslu. Þeir kíma í kampinn
yfir viðleitni Islendinga og Norðmanna að halda
málinu sínu nokkurn veginn óbrengluðu, horfa
og hlusta elsku sáttir á (danskar!) sjónvarpsauglýs-
ingar með ensku tali og eru búnir að fleygja á
haugana heilmörgum góðum og gildum dönsk-
um orðum fyrir erlendar slettur, sem þeir bera
fram „með sínu lagi“ og eru því margar hverjar
torskildar. Eitt af mínum uppáhalds hneykslunar-
efnum er þegar Kierkecaard var gefinn út hér um
árið í danskri þýðingu! Ekki eldri texti og tiltölu-
lega auðlæsilegur fyrir útlendinga, en óskiljanleg-
ur með öllu fyrir þjóðina. Er það ekki snautlegt?!
— Annars var ég í íslendingaveislu um daginn og
eitthvað að viðra mínar annarlegu málhreinsunar-
hneigðir, eins og ég á til svona í glasi, en fékk að
vita að þessi úrkynjun dönskunnar væri þó
skömminni skárri en íslensku námsmennirnir
sem streymdu hingað árlega með sína hrein-
tungustefnu og kynnu engin erlend orð, töluðu
bara um „jarðfræði" og „líffræði“ í staðinn fyrir
„geologi" og „biologi“. Ég drukknaði samstundis
í umræðunni (því örskoti síðar var hún farin að
snúast um eðli og innræti íslensku þjóðarinnar,
vammir hennar, skammir og skort á menningu
og almennri kurteisi), og kom ekki á framfæri
þeirri athugasemd sem mér fannst helst blasa við
— að ég hefði ekki verið að gagnrýna tungu-
málakennslu í framhaldsskólum (er hún eitthvað
farin að dala?), heldur hrósa málverndinni. — Ég
er samt enn á því, að þjóð sem missir málið sitt
hættir að vera þjóð og hjartað í mér talar þrátt
fyrir allt ennþá íslensku eftir sjö ára útivist. Ég
skal hins vegar viðurkenna, að hjartað í mér
fylgist ekki sérlega vel með nýyrðum málsins og
er orðið all „daterað" í sínu tungutaki, en það er
allt annar handleggur...
Já, ég var sumsé að velta þessu fyrir mér um
mál og menningu, en ætli það verði nokkuð
meira úr því — það er orðið svo gömul tugga.
Verð í sambandi,
Magnea.
Date: Fri, 80 Jun 1997 11:10:36 +0100 (W.
Europe Standard Time)
From: magnea@hiper.dk
Subject: Efni í Fjölni
MIME-Version: 1.0
To: fjolnir@fjallkonan.is
Góðan daginn, enn eina ferðina!
Þetta er ægilegt ástand, ég verð víst að fara að
horfast í augu við að ég hevri ekki fremur til
íslenskra menningarvita nú en fyrri daginn. Það
er að verða útséð um, að ég geti sent ykkur efni í
blaðið i tæka tíð og jafnvel ekki hérna megin við
aldamót! En þó að hugmyndafátæktin hái mér í
skrifiim, verð ég að játa, að ég hef hugsað óvenju
mikið heim til Islands síðan ég fór að velta fyrir
mér menningarhvetjandi efni í Fjölni, svo
kannski hefur þetta ekki verið alveg til einskis,
ha? Ég hef meira að segja „surfað“ (segir nokkur
maður „brimað"?) á Islendingaslóðum og hlustað
á útvarpsfréttirnar á Netinu. Einstaklega hagnýt
þjónusta, núna á þessum síðustu sæber-tímum.
Það leitar oft á mig sú hugsun, að næsta
menningarbylting — og þá á ég við til uppbygg-
ingar menningar en ekki niðurrifs hennar, eins og
sú í Kína — verði og sé reyndar að gerast á Net-
inu. Menn geta á svipstundu náð til gríðarlegs
fjölda fólks, og svei mér, ef fólk er ekki aftur farið
að skrifast á, þótt það sé ekki langt síðan bréfa-
skriftir voru dæmdar útdautt listform vegna yfir-
burða símans. Það líður kannski ekki á löngu,
áður en gefið verður út úrval úr Email einhvers
framliðins stórskálds, jafnvel í mörgum bindum.
Og innanum alla sölumennskuna em athyglis-
verðir hlutir og fulltrúar nokkurn veginn allra
listforma. En þegar heimurinn verður sjálfkrafa
svona lítill og samskiptin svona hröð, og þegar
sífellt fleiri hætta að þvælast um heiminn í vinnu-
ferðum eða jafnvel niður í bæ á vinnustaðinn, fer
þá fólk ckki að verða kröfuharðara um hvað það
vill sjá og upplifa í frístundum? Verður þá ekki
mikilvægara að leggja áherslu á hið sértæka —
allt sem er sérstakt eða einstakt í borgum eða
löndum, frekar en að hrúga upp alls konar
„alþjóðlegum" fyrirbærum, MacDonalds- og
PizzaHut-stöðum, Holiday Inn hótelum, gríðar-
legum verslanahöllum og öðru þess háttar? Vilja
menn ekki frekar fara á útimarkað en í Kringl-
una? — En kannski á þetta ekki við um Island,
þar sem veðráttan er nú eins og hún er...
Ég gáði að gamni mínu að íslenskri menn-
ingu á einni af stærstu leitarvélunum og fékk 13
tillögur, þar af sjö ljósmyndasíður, tvær eignaðar
einhverjum útlendingum sem nefndu Island í
framhjáhlaupi og afganginn um bókmenntir,
meðal annars sölusíðu fyrir íslendingasögurnar.
En svo var hann þarna líka, hann Bragi minn
Ólafsson, og sýnishorn af ljóðunum hans, og það
hlýjaði mér óneitanlega um hjartaræturnar svo ég
hætti að vera í fylu!
Ætti ég kannski að skrifa hugvekju um ísland
á Netinu (eða heitir það „Alnetið“ núna?) og
menningarátak í því sambandi? Varla að ég nenni
því...
Bestu kveðjur,
Magnea.
Date: Mon, 83 Jun 1997 11:11:58 +0100
(W. Europe Standard Time)
From: magnea@hiper.dk
Subject: Suörið sæla
MXME-Version: 1.0
To: fjolnir@fjallkonan.is
Suðrið sæla andar engum þýðum vindum þessa
stundina —- það er dottið í það, nema rigningin
úti stafi af heimþrá.
Þessa stundina hugsa ég um fátt annað en
blóðberg og lyng!
M.
ps. Ef þig langar að vita eitthvað um danska
menningu, þá gætirðu reynt að heimsækja:
http://www.kulturnet.dk/
Ekki svo að skilja að ég haldi að það hafi
neitt uppá sig, en þeir hafa linka til annarra
landa: Frakklands, Þýskalands, Svíþjóðar og
Kanada...
Islensk stefnuyfirlýsing frá 4. febrúar unt
viðlíka starfsemi er hins vegar 3 línur á:
http://www.stjr.is/framt/alit04v3.htm
Say no more.
M.
Date: Mon, 83 Jun 1997 81:15:46 +0100
(W. Europe Standard Time)
From: magnea@hiper.dk
Subject: Með fjaðrabliki...
MIME-Version: 1.0
To: fjolnir@fjallkonan.is
Kæri ritstjóri!
Skilaðu kveðju frá mér til þjóðarinnar og
segðu henni að skella sér beina leið á Netið!
Annað bjargar varla menningarirfinum...
Enn og affur og alltaf bestu kveðjur,
Magnea.