Fjölnir - 04.07.1997, Qupperneq 98
„Stuttu eftir að ég
kom hingað út-
skrifuðu þeir einn
strák og hann er
kominn inn aftur.
Hann var ekkifyrr
kominn út en hann
sótti um atvinnu-
leysisbœtur.
Tveimur dögum
síðar var hann
búinn aðfá styrk
til að breyta skrif-
stofu á annarri hœð
við Laugaveginn í
íbúð. Hann átti
ekki íbúðina einu
sinni. “
Hvað er þetta annað en stjórnleysi? Maður sá
ekki tilgang í að gera neitt nema fá styrk.“
Og heldurðu að þér muni batna?
„Ég veit það ekki; ég vona það. Það kom
hérna í gær maður sem hefur farið á leiklistarhá-
tíðir út um allan heim og hefúr verið í allskonar
samnorrænum verkefnum og allt. En hann hefúr
ekki sótt um styrk í tvö ár. Ur því að hann gat
þetta þá hlýt ég að geta þetta líka. Eða það sagði
hann alla vega.“
Ertu bjartsýnn?
„Það er enginn vandi að vera bjartsýnn í
meðferð en ég er hræddur um að þetta verði
erfitt þegar ég kem út. Allir sem ég þekki eru á
kafi í styrkjum. Og það getur verið erfitt að halda
sér frá þeim þegar maður umgengst svona lið;
mórallinn er svo sterkur. Þó fólk sé ef til vill ekki
að sækja um fyrir framan nefið á manni þá getur
maður sogast inn í hugsunarháttinn og verið far-
inn að sækja um áður en maður veit af. Stuttu
eftir að ég kom hingað útskrifúðu þeir einn strák
og hann er kominn inn aftur. Hann var ekki fyrr
kominn út en hann sótti um atvinnuleysisbætur.
Tveimur dögum síðar var hann búinn að fá styrk
til að breyta skrifstofú á annarri hæð við Lauga-
veginn í íbúð. Hann átti ekki íbúðina einu
sinni.“
Hvað ædarðu að gera þegar þú kemur út?
,Ædi ég fari ekki bara í fisk úti á landi eða
eitthvað. Það er mælt með því; að klippa sig bara
út og fara að vinna. Ég er til í að gera það sem til
þarf. Ég vil ekki enda eins og sumir gömlu kall-
anna hérna sem hafa verið að sækja um styrki allt
sitt líf. Þetta er ekkert líf sem þeir hafa lifað. Þeir
hafa bara gert það sem eitthvert fólk úti í bæ
hefur ákveðið fyrir þá og svo einn daginn fá þeir
ekki neitt. Þeim finnst þeir hafa lifað til einskis.
Það er ömurlegt.“
Gunnar SmAri Egilsson
TAKTU EFTIR OG VERTU MEÐ
_____ allt þetta á einum stað __________
Vörur frá EMTEC-Europe Multimedi Technology
* BASF VHS mynd- og tónbönd - allar geröir
* BASF 8 mm - Hi 8 - VHS - SVHS f. tökuvélar
* BASF DAT 15-34-49-64-84-124 mín
* BASF ADAT og 8 mm - sér hönnun
* BASF 1/4” - 1/2” - 1” - 2” stúdíóbönd
* BASF Mínídiskar og CD-R geisladiskar
* BASF Betacam SP myndbönd
* BASF Digital myndbönd Mini - DVC
* BASF Disklingar - DOS og MAC
* BASF Bönd til afritunar - 4 og 8 mm
* QIC80 - ZIP - JAZ o.fl.
TILBOÐ
20 stk BASF disklingar
3,5"2SHD DOS forsníðnir
og CD * ROM diskur + 3 leikir
frá Microsoft f. Windows 95
Allt þetta á aðeins 1-190 kr.
Leytiö upplýsinga um geisladiskaframleiðslu,
fjölföldun myndbanda, kerfabreytingar o.fl.
MYNDBANDAVINNSLAN
Hátún 6b 105 R
Sími 562 1026 Fax 562 2630
Tólf reynsluspor
samtaka
óvirkra styrktarfíkla
Styrkjafíklar sem vilja losna undan fíkninni notast við tólf reynsluspor á leið sinni
til betra lífs. Þau eru byggð á reynslusporum AA-samtakanna og eru eftirfarandi:
1. Við viðurkenndum vanmótt okkar gagnvart styrkjunum og að okkur
var orðíð um megn að stjórna eigín lífi.
Þetta spor felur í sér viðurkenningu á því hversu mikil áhrif styrkirnir höfðu haft á líf
fíklanna, hvernig öll viðhorf mótuðust af þeim, hvernig tilfinningar fíklanna sveifluðust
með styrkjunum og hvernig úthlutunarnefndir höfðu smátt og smátt tekið yfir alla
stjórn á lifi þeirra.
2. Við fórum að trúa að oeðri kraftur, móttugri okkar eigin vilja, gœti gert
okkur heilbrígð að nýju.
Hér fær styrkjafíkillinn von, hann sér hvernig aðrir fíklar hafa náð tökum á lífi sínu með
því að halda sig frá styrkjaumsóknum og heyrir að þeir gerðu það ekki með vilja sínum
einum heldur samtakamætti og samhjálþ samtaka óvirkra styrkjafíkla.
3. víð tókum þú ókvörðun að lóta vilja okkar og líf lúta handsleíðslu Cuðs
— samkvœmt skilningí okkar ó honum.
Þetta er mikilvægt spor. Hér reynir styrkjafíkillinn að treysta styrkjalausu lífi og sætta
sig við það eins og það er. Ef hann leggur sig fram lærir hann að styrkjalaust líf er
gjöfulla og fyllra en líf fjötrað í styrki, umsóknir og úrskurði úthlutunamefnda.
4. Við gerðum rœkíleg og óttalaus reikningsskil í lífi okkar.
[ þessu spori skrifar styrkjafíkillinn niður alla styrki sem hann hefur sótt um, hvaða
brögðum hann beitti við umsóknirnar og hvaða áhrif styrkirnir og umsóknir um þá
höfðu á samskiþti hans við annað fólk.
5. Við jótuðum afdróttarlaust ffyrir Cuði, sjólfum okkur og trúnaðarmanni
yfirsjónir okkar.
Hér horfist styrkjafíkillinn i augu við fjórða sporið og sýnir það trúnaðarmanni sínum.
Þótt flestir séu fullir skammar þegar þeir byrja þetta spor þá fylgir því undantekninga-
laust léttir að viðurkenna fyrir öðrum hver maður er og hvað maður hefur þóst vera.
6. við vorum þess albúin að lóta Cuð lœkna allar okkar skapgerðarveilur.
Hér gerir styrkjafíkillinn sig tilbúinn að losa sig við ágirndina, letina, öfundina og aðrar
veilur í karakternum sem annaðhvort ýttu á hann að sækja um styrki eða grófu um sig
í sál hans þegar hann var orðinn helsjúkur styrkjafikill.
7. Við bóðum Cuð i auðmýkt að losa okkur við brestina.
[ þessu sþori biður styrkjafikillinn Guð um að losa sig við þær veilur sem hann horfðist í
augu við í sjöunda sporinu.
8. Við skróðum mísgjörðir okkar gegn nóunganum og vorum fús til að
bœta fyrir þœr.
Hér skráir styrkjafíkillinn niður öll brot sín gagnvart náunganum; hvernig hann hall-
mælti þeim sem sóttu um sömu styrki og hann, hvernig hann teygði sig eftir styrkjum
sem í raun hefðu betur verið komnir í höndum annarra og hvernig hann sniðgekk fólk
sem honum þótti vænt þar sem samneyti við það gaf honum ekki færi á frekari
styrkjum.
9. víð bœttum ffyrir brot okkar míllílíðalaust, svo framarlega sem það
soerði engan.
[ þessu sþori bætir styrkjafíkillinn fyrir brotin sem hann skráði i áttunda sporinu en
gætir þess að yfirbót hans komi fólki ekki í bobba — það er til dæmis hæþin yfirbót að
játa fyrir úthlutunarnefndarmanni að maður hafi sofið hjá honum aðeins til þess að
auka líkurá styrk.
10. Við íðkuðum stöðuga sjólfsrannsókn og þegar út af bar víðurkenndum
víð yfírsjónír okkar undanbragðalaust.
I þessu spori reynir styrkjafíkillinn að halda í þann árangur sem hann hefur náð. Ef
honum verður hált á svellinu og hann fer að leiða hugann að styrkjaumsóknum játar
hann það fyrir sér strax svo þessi hugsun nái ekki að vefja upp á sig.
11. Víð leituðumst við með bœn og hugleiðslu að styrkja vitundarsam-
band okkar víð Cuð — samkvœmt skilningi okkar ó honum — og bóðum
um skilning ó þvi sem okkur var fyrir bestu og mótt til að framkvœma
það.
Þetta er framhald þriðja sþorsins. Hér reynir styrkjafíkillinn að efla traust sitt á styrkja-
lausu lífi og þjálfa sig f að taka því eins og það er.
12. víð fundum að sö órangur sem nóðíst með hjólp reynslusporanna var
andleg vakning og þess vegna reyndum við að flytja öðrum styrkja-
fíklum þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lifi okkar og
fstarfi.
Þetta spor leiðir til áframhaldandi þroska persónuleikans og leggur þá kvöð á styrkja-
fikla sem náð hafa einhverjum bata að hjálþa þeim sem enn þjást — en þessi kvöð er
jafnframt trygging fyrir áframhaldandi bata.