Fjölnir - 30.10.1997, Side 26

Fjölnir - 30.10.1997, Side 26
Hafa skal það sem sannara reynist Prófmál um höfundarrétt myndlistarmanna fyrir Héraðsdómi „Hvað er lista- maður sem vinnur aðeins verkin sín og síðan ekki meir. Hann er ekki neitt. Og efþetta er rétt, er þá ekki eðlilegt að líta á allt um- stangið í kringum verkin sem hluta af verkinu sjálfu? Þegar maður sér síðan manneskju éta upp eftir manni allt sem maður gerir, heilsa öllum sem maður heilsar, segja sömu hlutina og maður sjálfur er vanur að segja, viðra skoðanir sem maður hefur sjálfur lagt hart að sér við að koma sér upp —þá er fótunum einfaldlega kippt undan manni. “ Fj 26 olnir timarit handa islendingum hOUSt '97 Persónuleiki minn hefur verið kóperaður Segir myndlistarmaður sem stefnt hefur fyrrverandi sambýliskonu sinni fyrir að hafa tekið upp eftir sér tilsvör, framkomu og afstöðu til manna og málefna Athyglisvert prófmál er nú rekið fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur þar sem myndlistarmaður stefnir fyrrverandi sambýliskonu sinni fyrir brot á höfúndarréttarlögum. Maðurinn telur konuna hafá tekið upp eftir sér ýmis persónuleikaein- kenni svo sem tilsvör, framkomu, afstöðu til manna og málefna og jafnvel kæki og stæla og nýtt þetta síðan til að koma sjálfri sér áffam í myndlistarheiminum. Að sögn Knúts Bruun, lögmanns Myndstefs, höfúndarréttarsamtaka myndlistarmanna, er hér athyglisvert prófmál á ferðinni, ekki síst fyrir dómskerfið í landinu. „Þótt lög um höfúndarrétt fjalli ekki beint um þau atriði sem stefnt er út af vonumst við til að dómurinn taki mið af þróun myndlistar undan- farin ár og áramgi og viðurkenni með dómi sínum þessa þróun og nauðsyn þess að vernda skilyrðislausan rétt myndlistarmanna á sköpun sinni,“ sagði Knúmr í samtali við Fjölni. Þar sem hér um sérstætt mál að ræða, sem án efa mun hafa víðtæk áhrif í framtíðinni, féllst stefnandi á að skýra sína hlið málsins fyrir lesend- um Fjölnis. Hann vildi þó ekki láta nafns síns getið og bar því við að orðstír hans hefði skaðast nóg eftir aðfarir fyrrverandi sambýliskonu sinnar og að hann gæti einfaldlega ekki hætt á að reka þetta mál fyrir opnum tjöldum. „Ég hef horft upp á manneskju komast upp með að kópera persónuleika minn algjörlega svo mér hefúr fúnd- ist ég vera hálfgerð eftirmynd sjálfúr. Þetta hefúr skiljanlega grafið undan sjálfstraustinu hjá mér. Ég treysti mér því einfaldlega ekki í opin réttar- höld. Ég held að fólk hljóti að skilja þetta,“ sagði myndlistarmaðurinn, sem hér eftir verður kallað- ur Þórarinn C. KvniHirt lcowu að nordan_____________________ Að sögn Þórarins hóf hann sambúð með Dillu (þetta er ekki rétt nafn sambýliskonunnar) fyrir fjórum árum. Hann var þá 38 ára gamall og þegar búinn að koma sér þokkalega fyrir í mynd- listarheiminum í Reykjavík. Dilla var hins vegar 27 ára gömul og nýútskrifúð úr Myndlista- og handíðaskólanum. „Hún vissi ekkert í sinn haus. Ég meina, hún var meira að segja að norðan," segir Þórarinn C. til útskýringar á aðstöðumun þeirra hjónaleys- anna í upphafi sambúðarinnar. „Ég hafði tekið þátt í samsýningu á Nýló og fengið úthlutað sýn- ingartíma tveimur árum eftir að við tókum sam- an. En það er ekki aðalatriðið. Málið var að ég hafði unnið hörðum höndum við að marka mér bás innan myndlistarheimsins, komið mér í kynni við rétta fólkið, fúndið út hvemig landið lá og allt það. Hún var hins vegar algjör nýgræðing- ur. Ég man til dæmis einu sinni eftir að ég fór með hana á opnun á Kjarvalsstöðum og þá rauk hún blaðskellandi á Tolla fyrstan manna og ég þurfti að draga hana laumulega burt til að verða mér ekki til skammar. Ef ég hefði ekki gefið henni innsýn í þennan heim væri hún í dag að sýna í Eden eða Þrastarlundi. Hún hefði aldrei komist þangað sem hún er nema vegna mín.“ Nú getur það varla talist brot á höfundarrétti að lntra af'samferðamönnum sínum: „Nei, kannski ekki. Enda stefni ég henni fyrir meira en þetta. Fólk verður þó að skilja sétstöðu myndlistarmannsins. Smndum heldur fólk að við búum bara til einhver myndverk og svo sé allt búið. En það er ekki svo. Við emm ekki með fyrirtæki á bak við okkur, ekkert bákn. Við þurf- um sjálf að skapa okkur nafn, koma okkur í réttu samböndin, fylgjast með öllum hræringum í list- inni en ekki síður í öllu því sem er í kringum hana. Og ég get spurt: Hvað er listamaður sem vinnur aðeins verkin sín og síðan ekki meir. Hann er ekki neitt. Og ef þena er rétt, er þá ekki eðlilegt að líta á allt umstangið í kringum verkin sem hluta af verkinu sjálfú? Þegar maður sér síð- an manneskju éta upp eftir manni ailt sem mað- ur gerir, heilsa öllum sem maður heilsar, segja sömu hlutina og maður sjálfúr er vanur að segja, viðra skoðanir sem maður hefúr sjálfúr lagt hart að sér við að koma sér upp — þá er fómnum einfaldlega kippt undan manni. Fólk verður að átta sig á að ffumleiki og sérstaða er það sem myndlistarmaðurinn vinnur með. Hann gemr því ekki gengið um gömrnar vitandi af hreinni og klárri eftirmynd á vappi einhvers staðar í bæn- um. Heldurðu að Tarantino hefði sýnt Pulp Fiction ef einhver annar hefði þegar verið búinn að frumsýna nákvæmlega eins mynd?“ Stolwar aetningar___________________________ En nú er Dilla varla nákvœm tftirmyndþín? Fyrir það fyrsta eruð þið ekki afsama kyni. „Það skiptir engu máli. Auðvitað erum við bæði manneskjur, en hvað með það? Em ekki allir manneskjur? Það er ekki þetta sem maður er að vinna með sem listamaður heldur það sem aðgreinir mann frá öðrum. Og þegar ég vakna upp við það einn daginn að ég hef enga sérstöðu lengur, hvað er ég þá? Alla vega ekki listamaður, það get ég sagt þér.“ Geturðu nefht cLemi um þau persónuleikaeinkenni sem þú telur Dillu hafa stolið frá þéri „Já, helling. Ég var til dæmis vanur að segja um Braca Asceirsson að hann sæi ekki sýningarn- ar fyrir sjálfúm sér. Þegar ég var á Kaffi List um daginn heyri ég Dillu þruma þessu yfir salinn. Og fa þennan líka viðurkenningarhlámr fyrir. Hvað átti ég að gera? Ég gat ekkert gert. Ég varð að taka þessa setningu og henda henni. Og ef ég hefði ekki verið þarna á Kaffi List og heyrt þetta, er öruggt að ég hefði misst þetta út úr mér ein- hvers staðar og ef einhver þeirra sem voru á Kaffi List þetta kvöld hefðu heyrt mig segja þetta hefði sá álitið mig vera að kópera Dillu. Og þetta er bara eitt lítið dæmi. Ég er til dæmis vanur að gera svona með hendinni ef mig líkar eitthvað illa. (Þórarinn C. sveiflar hægri hendinni skáhallt upp og til hægri og setur upp svip sem lýsir áhuga- leysi). Um daginn var ég í bíl fyrir utan Sólon og fylgdist með Dillu gera nákvæmlega þetta þegar hún var að ræða við einhvern blaðamann, ekki einu sinni heldur þrisvar. Það var eins og þetta væri eitthvert andskotans vörumerki hjá henni.“ En getur þú í raun stefnt DiUu fyrir að apa upp eftirþér takta og tilsvör? Geti Björk ekki með sómu rökum stefht helmingnum af öUum smástelp- um í Reykjavík? „Nei, það er allt annað mál. Björk er ffæg. Ef einhver tekur upp taktana hennar þá er það gott mál. Ég er ekki ffægur, þó ég hafi verið búinn að koma mér upp þokkalegri stöðu innan myndlist- arheimsins þegar ég kynntist Dillu. Ef mínir takt- ar em ofnotaðir þá hverf ég fjöldann. Það sem styður Björk í frægðinni getur gert út af við mig. Tökum dæmi: Hvað heldurðu að hefði gerst ef allir ungir menn í París hefðu fengið sér yfirskegg eins og Dau þegar hann var að koma undir sig fótunum? Hann hefði þurft að raka sig og finna upp á einhverju nýju. En þegar hann var orðinn frægur þurfti hann ekki að óttast neitt. Ef einhver hefði safúað svona skeggi hefði fyrsti maðurinn sem sá hitti sagt: Nei, erm kominn með Dali- skegg?“ Pergówuleikinw er listqweHc En myndlist snýst varla um eintóma steela, tilsvör og takta ogþað að þekkja rétta fólkið. Ekki geturðu lagt eftiröpun á þessu aðjöfhu við það að einhver falsi eftir þig málverk? „Ég mála ekki málverk, fyrirgefðu." Ja, eða myndverk þá. „Afhverju ekki? Hvert er framlag Oscars Wildes til listarinnar? Er það persónan eða verkin? Og ég er að taka dæmi af manni ffá síðustu öld. Hvernig heldurðu að þetta sé í dag? Sástu þáttinn um KristjAn Guðmundsson í sjónvarpinu um daginn? Hvort var sá þáttur um persónuna eða listaverkin? Þú verður að átta þig á að þetta er óaðgreinanlegt í dag. Ef þú segðir mér frá manni sem býr á sveitabæ austur á landi og málar úti í hlöðu ffá morgni til kvölds, er ég viss um að ég geti sagt þér við hvað hann væri að fast. Ef þú nefnir annan sem býr á Njálsgömnni, fer oft á Kaffi List, þekkir Pétur Arason í Faco og er í gallafömm ffá toppi til táar, þá get ég líka sagt þér hvað hann er að gera. Sem minnir mig á eitt, heldurðu að ég hafi ekki séð Dillu í Levi’s-dressi á Laugaveginum í fyrradag. Pældu í því? Þegar ég kynntist henni hélt hún að engir væm í Levi's nema einhverjir Hallbjarnar HjARTARSONAR-fan. Þetta var svo helvíti mikið eitthvað að norðan.“ Það kemur fram í stefhunni að þú krefst lögbanns á 124 tölusett atriði sem DiUu verður meinað að segja, gera eða framkvama. Meðal annars að neita þvi að taka þátt í samsýningum ef nokkrir nafii- greindir myndlistarmenn eru meðal sýnenda, að biðja gesti á opnunum um örlitla slettu afSprite út í rauðvínið sitt, að heilsa Bjarna Pórarinssyni með því að segja maestro, maestro og margt fleira sem leikmanni kann aðþykja smáatriði sem litlu máli skipta... „...bíddu nú hægur. Hver ætti að meta list- rænt gildi listaverka nema listamaðurinn sjálfúr? Ekki viltu bera öll Kjarvalsmálverk fyrir dómara og láta hann úrskurða um listrænt gildi þeirra. Ef honum finnst sum þeirra lítils virði, á þá að leyfa Pétri og Páli að kópera þau að vild? Það er ein- mitt um þetta sem málið snýst. Á ég rétt á minni eigin sköpun eða gemr hver og einn hrifsað það til sín sem hann kærir sig um? Ég veit allt um mikilvægi þessara hluta. Ég var í mörg ár að vinna að þeim og þegar ég hef verið svipmr þeim skil ég enn betur hvað þeir höfðu að segja." jjdd öfuwd___________________________________ Nú er DiUa að opna sinu fyrstu einkasýningu efiir þrjár vikur en þú hefur ekkert sýnt stðan á samsýn- ingunni í Nýlistasafhinu fyrirfimm árum. Getur verið að þetta hafi hafi áhrifá ákvörðun þína um að stefha henni? „Hvað meinarðu?" Ég á við hvort það geti verið að það hafi hafi áhrif á þig að hún virðist njóta nokkurrar velgengni á meðan feriU þinn virðist vera í Ltgð? „Ég var með verk í galleríi Hlust í sumar, svo ég skil ekki alveg hvað þú ert að gefa til kynna. Þótt ég hafi ekki sýnt mikið að undanförnu þá er ekki þar með sagt að ég sé ekki að vinna að minni list.“ En getur verið að einhver metingur miUiykkarfyrr- um sambýUnga hafi hafi einhver áhrif á stefhurut? „Nei, þetta er fúllkomlega prófessíónelt mál og kemur ekkert persónulegum tilfinningum við.“ Hvað hyggstu fyrir ef þú tapar málinu fyrir Héraðs- dómi? „Þá áffýja ég til Hæstaréttar og þaðan út til Strassborgar ef með þarf. Ég er að berjast fyrir tilvist minni sem listamanns og ég gefst ekki upp. Fyrir mér er listín lífið," sagði Þórarinn C. að lokum. ■

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.