Fjölnir - 30.10.1997, Side 29

Fjölnir - 30.10.1997, Side 29
Hannes Sígurösson Landnáma hin nýja Fundur í Listvinafélaginu í Reykjavík 1922. Fundarmenn frá vinstri: Þórarinn B. Þor- láksson, Jófríður Zoéga, Sigríður Zoéga, Jón Stefánsson og Steinunn Thorsteinsson. sömu hugmyndum, meðvitað eða ómeðvitað. Hannes Hafstein forsætisráðherra fól Þórarni að gera verk í tilefhi vígslu nýja fánans árið 1915 og þá málaði hann Dómkirkjuna og alþingishúsið (L.Í.) [mynd 3] þar sem táknið trónir efst, hátt yfír merki dönsku krúnunnar. Guð (sem stendur fyrir yfirskilvideg lög góðrar breymi) og þing (löggjöf manna) eru sýnd saman þar sem hið fyrra sveipar dulúð og það síðara skýrir út; milli sín spanna þau allar hliðar ríkisvaldsins. Lands- lagsmálverk Þórarins má skoða sem myndlíkingar þessara stofhana — Guð og þing ríkja yfir hverj- um læk og dal í landinu — í gegnum litatákn- kerfi sem byggist fyrst og fremst á þjóðfánanum, eins og greinilega kemur ffam í Landslagi hans (1900, L.í.) [MYND 4] sem rennur út í fjarskann með rauðum lit í forgrunni, bláum í miðju og hvítum í bakgrunni. Þessi samsvörun milli litanotkunar Þórarins og merkingar er ekki jafntilefnislaus og æda mættí. Fáninn var ekki aðeins talinn afar mikil- vægur í sjálfstæðisbaráttunni, heldur var hann ffá aldamótum eitt heitasta deilumálið manna á meðal á öllum þjóðfélagsstigum. Raunar lagði forstöðumaður Þjóðminjasafhsins, MatthIas Þórðarson, til strax 1906 að faninn skyldi byggður á fyrrnefndu litaskema og lagði í það sömu táknrænu merkinguna og nefndinl913, árið sem dönsk stjórnvöld viðurkenndu hann loks. Upphaflega þótti mönnum hins vegar að hönnunin ætti að vera hvítur kross á bláum grunni, hliðstætt og hjá Grikkjum, og það er þessi ffumlitur sem Þórarinn notar svo mikið að blá slikja — sem Kjarval kallaði „bláma lista- mannsins" á sinn tvíræða hátt — er yfir flestum verkum hans. Með því að leggja svo mikið upp úr þessari sérstöku litasamsetningu höfðar Þórar- inn óbeint til tilfinninga áhorfandans, hins vænt- anlega kaupanda, og færir fánann á táknrænan hátt inn í „raunsæislegar“ myndir af hjartfólgnum stöðum sem hann sýndi yfirleitt annaðhvort við dögun eða sólarlag, á þeim tíma dags þegar þessir litír koma best í ljós. Þetta eru líka þær stundir sem skáldin kusu nánast alltaf að lýsa. Náttúran er hjá þeim sýnd prúðbúin, sveipuð trúarlegri ffiðsæld og yfirleitt böðuð líknsömu hálffökkri sumarmorguns eða kvölds, og þeim var tíðrætt um mótíf — sem ekki tengdust reyndar fanan- um, að minnsta kosti ekki fyrr en málið varð eld- fimt snemma á þessari öld — á borð við skínandi hvíta jökla, blá fjöll í fjarska og gullna firði. Með því að velja sér ákveðna þjóðlega staði og þvinga fananum og skáldskaparhefðinni upp á náttúmna tókst Þórarni að afla hinni nýju listgrein meira álits og kynna þjóðinni landið á myndrænan hátt. Þar sem skáld bám trúlega talsverða ábyrgð á litunum sem valdir voru í fánann og þeirri táknrænu merkingu sem í þá var lögð má hins vegar líta svo á að Þórarinn sé að leiða okkur aftur til upprunans, skáldanna og loks náttúr- unnar sjálffar, þaðan sem þeir komu í upphafi. Á hvorn veginn sem við viljum líta það er saman- burðurinn milli fanans og gmndvallarlitaskema Þórarins ekki úr lausu lofti gripinn. Slík vísun tíl fánans er ekki eins áberandi í verkum Ásgríms Jónssonar, sem var níu árum yngri en Þórarinn, og næsm kynslóðar lista- manna, enda fánamálið horfið úr brennidepli þegar þessir listamenn hösluðu sér völl. Skáldin héldu engu að síður áffam að hafa sterk áhrif á málara, ekki aðeins úr fjarlægð, heldur iðulega gegnum náin persónuleg tengsl. Áriðl903 myndskreyttí Þórarinn t. d. Íslandsvísur Jóns Trausta, samstúdents síns ffá Kaupmannahafnar- árunum, en mörg þeirra kvæða urðu afar vinsæl, svo sem Draumalandið og Ég vil elska mitt land Og þá erum við komin að öðm atriði sem er jafnvel enn erfiðara að henda reiður á en litaffæði Þórarins — myndun andlegs bræðralags. Sam- heldni valdastéttarinnar byggðist á samþættingu pólitískra, efhahagslegra og menningarlegra stofh- ana og neti fjölskyldu- og skólatengsla, enda ákvörðuðust mennmnarforréttindi yfirleitt af uppruna. Þeir sem stunduðu nám á sama stað kynntust vel og sá kunningsskapur hélst vanalega effir að þeir höfðu fengið stöður heima á íslandi. Valdastéttin var ekki aðeins valdameiri en nokkur annar þjóðfélagshópur, heldur stóð hún öðmm framar í þekkingu og gem; hún var menntaðasti hluti þjóðarinnar. Það sakaði ekki að vera „leyni- legur“ meðlimur í þessu bræðralagi þótt menn fengju ekki sjálfkrafa áhrifastöðu. Bæði Sigurður og Þórarinn hlutu virðuleg embætti, sá fyrrnefndi var fyrsti forstöðumaður Þjóðminjasafnsins og sá síðari skólastjóri Iðnskóla íslands. En það sýnir þó hversu langt var ffá því að myndlist væri fullgild starfsgrein í byrjun að þeir þurffu að vinna fyrir sér með slíkum störfum. Allir fimm fulltrúar fananefndarinnar 1913 gegndu virðu- legum skyldum — Guðmundur Björnsson land- læknir, Jón Aðils sagnffæðingur og stjórnmála- maður, Ólafur BjöRNSSON ritstjóri, Matthías Þórðarson forstöðumaður Listasafhs íslands og Þórarinn — og hver þeirra var í forsvari fyrir einn hinna fimm stjórnmálaflokka. Þótt sumir menntamenn væm mikilvægari en aðrir þegar kom að ákvarðanatekt gat listamaðurinn sem aukameðlimur í bræðralagi þeirra samt lagt því lið með því að fjalla á tilfinningaríkan hátt um þau mál sem hæst bar á góma. Mikilvægast þeirra — nema í augum þeirra sem mökuðu krókinn undir dönsku krúnunni — var baráttan fyrir viðurkenningu á íslandi sem fullvalda ríki og þess vegna var svo rík áhersla lögð á eigin fána. Til að leggja drög að því var nauðsynlegt að sameina dreifða þjóðina og þjappa henni saman í nýja pólitíska og efnahagslega heild, og þá komu skáldin og síðar myndlistarmennirnir til skjal- anna og stilltu saman hugina og skópu henni sjálfsmynd. Þetta er vitaskuld mikil einföldun og ólíklegt er að nokkur hafi litíð þannig á málin á þeim tíma. En rétt er að minna á að bæði skáld og stjórnmálamenn kynm mjög undir óánægju al- mennings sem þróaðist ffá hatri á Dönum, sem kennt var um allt sem aflaga hafði farið í sögu landsins, til sannrar ættjarðarástar. Með því að tjá þessar andstæðu kenndir var hægt að hreinsa ímynd landsins og ljá henni jákvætt táknrænt gildi. Hárfi'n vísun Þórarins til fánans var hins vegar aðallega ædað að höfða til menntamanna, nánar tiltekið alþingismanna, og fyrir því var gild ástæða. Almenningur hafði varla til hnífs og skeiðar, hvað þá að hann hefði efhi á að kaupa málverk, og því varð Alþingi mikilvægasti smðn- ingsaðili listanna — listamaðurinn var bæði háð- ur því og skuldbundinn, einkum á mótunarárum sínum, meðan hann var að afla sér menntunar og hefja feril sinn. Þessar óvenjulegu markaðsaðstæður er erfitt að skilgreina. Þær eiga sér einfaldlega enga hlið- stæðu. Þar til á 6. áratugnum voru hér engin gallerí eða einkareknir sýningarsalir, og ekki er hægt að líta á Alþingi (þ. e. ríkið) bara sem menntahirð eða hefðbundinn velunnara listanna sem lét óskir sínar í ljós í smáatriðum, eins og þekktist á miðöldum. Ekki starfaði málarinn/ myndhöggvarinn heldur mitt á milli „opinbers vettvangs“ og „einkavettvangs“ hvað sölu lista- verka áhrærir. Á íslandi rann þetta saman því að afar mikið af listaverkum var inni á heimilum almennings, einkum effir 1940 þegar þjóðin tók að rétta úr kútnum og þurfti „eitthvað" á vegg- ina, en í öðrum löndum er þau einkum að finna í söfhum eða í eigu ákveðinna listaverkasafhara. Ekki gám listamenn heldur treyst algjörlega á Alþingi sér til framdráttar og haldið áffam að búa til myndir á færibandi þegar þeir vom einu sinni búnir að koma sér í mjúkinn hjá ríkisvaldinu. Listamaðurinn var álitinn náttúruleg rödd fólks- ins, sál þjóðarinnar, sá sem gat gert henni spegil- mynd af tilfinningalífi hennar. Ríkið greip inn í með því að færa listamanninum peningafórn fyrir hönd almennings þegar honum tókst að uppfylla þessar þarfir. Pólitísk skoðanamyndun áttí því greiða leið gegnum pentskúf málarans. Þegar Ásgrímur sótti t. d. um styrk 1903 til að halda áffam námi sfnu í Danmörku lét hann fylgja hjartnæma mynd. Eins og rætt var hér áður skipar landslag lítið rúm í íslendingasögunum og er kunnasta undan- tekningin nokkrar línur í Njáls sögu. Það er varla tilviljun að Ásgrímur valdi sér að fjalla um þenn- „ Gagnrýnandi Isafoldar sagði t. d um fyrstu sýningu listamannsins árið 1900 að „hr. Þór- arinn B. Þorláks- son, fyrsti islenski landslagsmálar- inn “, hefði hlotið fádœmagóð með- mœli frá kennur- unum sínum og vœri líklegur til þess að auka hróður „okkar“enn meira með afrekum sínum í framtíðinni. “ an hluta sögunnar, atvikið þegar Gunnar á Hlíðarenda ákveður skyndilega að snúa aftur heim þótt torvelt væri, effir að hann hafði verið gerður útlægur fyrir manndráp. Gunnar stökk af baki hesti sínum og mælti þegar hann horfði yfir héraðið: „Fögur er hlíðin svo að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg ríða heim aftur og fára hvergi." (fs- lendingasögur. Bragi Halldórsson o. fl. ritst. Svart á hvím, Reykjavík 1987, bls. 210). Ásgrímur sýnir Gunnar þar sem hann stendur við hlið hests síns, en bróður hans á baki, annar horfist í augu við skapadóm sinn, hinn er reiðubúinn að flýja. Lesandinn, sem gjarnan kunni stóra hluta bókarinnar utanað, skynjar hvörf í sögunni. Héðan í ffá hallar undan fæti fyrir hetjunni, Gunnar er loks drepinn og einnig Njáll ráðgjafi hans og synir hans þrír. í lýsingu Ásgríms sjáum við Gunnar stíga út úr gullöld íslendingasagn- anna til að boða þjóðinni ættjarðarást, kenna henni að fórna sér fyrir fósturjörðina. Áhorfand- anum er ædað að setja sig í spor Gunnars, virða fyrir sér íslenskt landslag og komast að sömu niðurstöðu og hann — að landið hans sé mikil- vægara en líf hans sjálfs. Rétt er að ljúka þessum hluta með því að taka fram að Ásgrímur hlaut styrkinn án þess að nokkmm mótbárum væri hreyft, 600 krónur. > Mynd 4: Þórarinn B. ÞorlAksson Landslag, 1910 Fjölnir haust '97 29

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.