Fjölnir - 30.10.1997, Síða 47

Fjölnir - 30.10.1997, Síða 47
Verk eftir Matthías Bjarnason og Halldór Jónatansson á sýningunni „Ríkislist — myndlist undir handarjaðri ríkisvaldsinsu á Kjarvalsstöðum „Hin raunverulega þátttaka ríkisvaldsfns í listum er list- sköpun ínnan sjálfs ríkis- báknsins, listræn endur- sköpun kerfisins," seglr Hoyja Kafskari sýningar- stjóri „Ríkislístar '. Hluti af verkum Matthíasar Bjarnasonar á sýningunni. Til vinstri er umhverfisverk sem ekki hefur enn verið sett upp. Til hægri má sjá eitt smærra verka hans. Fjölnir hnust '97 47 segir Hoyja Kafskari, eistneskur listfræðingur og sýningar- stjóri, sem fengínn var til að velja verk á sýninguna. í byrjun næsta mánaðar verður opnuð á Kjarvals- stöðum sýningin „Ríkislist — myndlist undir handarjaðri ríkisvaldsins“. Sýning þessi er um margt sérstæð. Fyrir það fyrsta fékk Cunnar Kvaran, þáverandi forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, erlendan listfræðing, Eisdendinginn Hoyja Kafskari, til að velja verkin og setja upp sýninguna. íslenskir áhugamenn um myndlist munu því kynnast á sýningunni fersku sjónar- horni á íslenska myndlist. Og sjónarhorn Kaf- skari er ekki aðeins ferskt, það er ekki síður djarft. Þegar rennt er yfir nöfn þeirra sem eiga verk á sýningunni kemur í Ijós að þar er ekki að finna marga sem hafa gert myndlist að sínu aðal- starfi. Langstærsti hluti sýnenda eru embættis- menn og aðrir ríkisstarfsmenn sem hingað til hafa verið kunnir af flestu öðru en myndlistar- iðkun. „Fólk verður að átta sig á að tími ríkisstuðn- ings við aristókratískar listhefðir er löngu liðinn. Ffin raunverulega þátttaka ríkisvaldsins í listum er listsköpun innan sjálfs ríkisbáknsins, listræn endursköpun kerfisins. Sú staðreynd að ríkis- sjóður styðji við bakið á deyjandi listhefðum úti í samfélaginu breytir því ekki að innan ríkisgeirans hafa listræn sjónarmið og listrænar lausnir fúndið sér farveg. Þetta hefur getið af sér algjörlega nýjan vettvang fyrir listina, vettvang sem er síkvikur og lifandi, ekki síst hér á íslandi þar sem ríkisgeirinn er nógu víðfeðmur til að innan hans geti skapast breiður grundvöllur fýrir listsköpun," sagði Hoyja Kafskari í samtali við Fjölni. sent flugvélar á hverju vori til að dreifa áburði og fræjum á afgirt svæði á heiðinni. Galiinn er þó sá að bæði er þetta grýtt jörð þar sem gróður hefúr átt erfitt uppdráttar og svo hafa bændur sam- kvæmt samningi beitt fé á svæðið og það hefúr nagað þá sprota sem þó hafa náð að skjóta rómm. „Þessi maður er snillingur!“ segir Kafskari um Halldór og verk hans. „Ég man ekki eftir öðm verki sem hefúr snert jafnt við mér, þetta er ákaf- lega fallegt verk og með sterkum trúarlegum undirtóni.“ í sýningarskrá rekur Kafskari hvernig Hall- dóri tekst í verkinu að framkalla dæmisöguna um fræin er falla í grýtta og óffjóa jörð í óvænm sam- hengi. Hann notar flugvélar og önnur stórvirk tæki en eftir sem áður em það kindurnar sem leika veigamesta hlutverkið. Það verður að teljast meginframlag Halldórs með verkinu að takast að láta hið villta og ótamda í raun þjóna megininn- taki verksins. „Það er ekki nóg með að Jónatansson sýni okkur fram á að það em takmörk fyrir endur- mótun náttúrunnar af hendi mannsins, að það eru alltaf ákveðin grundvallarlögmál lífsins sem við ráðum ekki við, heldur snýr hann þessu við með því að nota kindur til þess að eyða þeim Tvúariegur glörningur ó Auðlcúlulieiði________ Eitt þeirra óvæntu nafna sem sjá má í sýningar- skránni er Halldór Jónatansson, forstjóri Lands- virkjunar. Framlag hans á sýningunni er gjörn- ingur sem hann hefúr staðið fyrir á Auðkúluheiði undanfarin fimmtán ár. Forsaga þessa gjörnings er sú að þegar Blönduvirkjun var í undirbúningi var ljóst að nokkurt flæmi af grónum úthaga færi undir uppistöðulón. Eftir samningaviðræður Landsvirkjunar við bændur, sem höfðu beitt fé á þessa haga, varð að samkomulagi að fyrirtækið greiddi bændunum skaðabætur en tæki auk þess að sér að rækta upp ógróið svæði á Auðkúluheiði, sambærilegt að stærð þeim úthaga sem glataðist. Undanfarin fimmtán ár hefúr Landsvirkjun því fáum stráum sem þó ná að spretta. Honum hefur því sjálfúm tekist að hemja náttúruna að þörfum verksins, þótt boðskapur þess virðist í fljótu bragði vísa í þveröfúga átt. Jónatanssyni nægir því ekki, frekar en öðrum miklum listamönnum, að segja eitt — hann verður að segja allt. Annað væru svik við listina og hæfileika hans til að greina og túlka þann heim sem hann lifir í,“ segir Kafskari. hátt og íþróttaáhugi getur af sér fleiri beinar út- sendingar frá kappleikjum í sjónvarpinu. En þessi einfaldleiki neyðir mann einmitt til að kafa dýpra í verkin. Og smátt og smátt rennur upp fyrir manni að Ólafsson er ekki að gefa mynd af veröldinni með þessum einföldu teikningum sín- um, heldur fyrst og fremst sjálfúm sér, sínum eigin sjónarmiðum. Eins og aðrir listamenn losn- ar hann aldrei undan sjálfúm sér. Þessir >■ StefAn Ólafsson, dósent í félagsfræði við Háskóla íslands, er með fimm verk á sýningunni. Þetta er sería af línuritum sem hann bini í bók sinni Hugarfar og hagvöxtur. Öll ritin sína samhengi efnishyggjulegra viðhorfa einstakra þjóða til lífsins samkvæmt skoðanakönnunum og vergrar þjóðarframleiðslu á íbúa í þessum sömu þjóð- löndum. „Þetta finnst mér skemmtilegasta verkið á sýningunni,“ segir Kafskari. „Ólafsson er lág- stemmdur í list sinni en undir hæversku yfirborð- inu sindrar kidandi húmor. Og þar leyndist líka hvass broddur.“ Á hnuritunum má sjá þjóðir táknaðar með punktum og ræðst staðsetning þeirra af niður- stöðum skoðanakannana annars vegar en þjóðar- framleiðslu hins vegar. Stefan hefúr síðan dregið línu eftir ritinu sem sýnir fylgni efnishyggjunnar og þjóðarframleiðslunnar. í fljóm bragði virðast ritín leiða líkur að því að efnishyggjuviðhorf þjóða geti af sér aukna þjóðarframleiðslu. „Það er einmitt þetta sem er svo heillandi við verk Ólafssonar. Við fyrsm sýn em þau að segja okkur eitthvað sem virðist vera sjálfsagður hlutur. Efnishyggja gemr af sér vöxt í hagkerfinu á sama
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Fjölnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.