Fjölnir - 30.10.1997, Side 50

Fjölnir - 30.10.1997, Side 50
Jón Viðar Jónsson Hversu djúpt á Borgarleikhúsið á sökkva? „Ekkert þeirra nýju leikrita, sem hafa veríð frumsýnd í Borgarleikhúsinu jrá síðustu áramót- um, hafa markað tímamót í nokkrum skilningiy flest, ef ekki öll, hafa valdið miklum von- brigðum. “ furðanlega að klóra sig út úr vandanum, fyrsta spölinn a. m. k. Hún átti að sönnu ekki margra kosta völ, en tók þann skásta, enda þáverandi formaður félagsins, Sigurður Karlsson, langreynd- ur í leikhúspólitíkinni. Þó að eðlilegast hefði ver- ið að auglýsa stöðu leikhússtjóra að nýju, var slíkt allt of mikið hættuspil; til þess var of líklegt, að enginn hæfur umsækjandi gæfi sig fram. Þá hefði verið verr farið en heima setið og niðurlæging félagsins orðið alger. Miklu hyggilegra var að draga aftur fram umsóknabunkann og kanna hvort einhverjir þeirra, sem sóttu á móti Viðari, væru ekki tilkippilegir að hlaupa í skarðið. Til allrar hamingju fyrir Leikfélagið reyndist einn umsækjendanna viðræðuhæfur og vel það. Þúrhildur Þorleifsdöttir er kappsfúllur og metn- aðargjarn leikhúsmaður, sem hefúr áður sótt um stöður leikhússtjóra, bæði þjóðleikhússtjóra og leikhússtjóra L.R., án árangurs. Meðal leikhúss- fólks er hún umdeild; í þeim hópi á hún sér bæði einlæga aðdáendur og svarna andstæðinga. Hún þarf auðvitað ekkert að vera verri fyrir það, og fáir munu bera brigður á, að hún sé dugnaðar- forkur með mikla reynslu og alhliða leikhúsþekk- ingu. stjórn er umfram allt fólgin í því að koma mann- legum sannindum dramatísks skáldskapar til skila með eins einföldum, en áhrifamiklum hætti og leikhúsinu er frekast unnt. Þegar verst lætur hefúr hún nánast kaffært verkin með ofhlæði í leik- mynd og búningum, litskrúði og ljósagangi, eins og gerðist í sviðsetningu hennar bæði á Pétri Gaut og 13. krossferðinni eftir Odd Björnsson. í sýningum hennar hafa afar sjaldan sést áhrifá- mikil og stórbrotin leiktilþrif, ég get aðeins kallað fram í huga mér örfá dæmi um slíkt og hneigist þá fremur til að þakka það leikurunum sjálfúm en stuðningi leikstjórans. Engu að síður er Þór- hildur traustur stjórnandi og orðlögð fyrir að halda uppi góðum vinnuaga í hópnum. Hún hefúr á starfsferli sínum fengið mörg góð tækifæri og tekist á við leikrit af öllu tagi, þó að klassíker- arnir skipi ekki mjög veglegan sess á verkaskrá hennar. Það er ekki að raunalausu sem ég hef orð- lengt hér um listrænan feril Þórhildar. Mér virðist sem sé að frammistaða hennar í Borgarleikhúsinu síðustu tvö og hálft misseri endurspegli bæði kosti hennar og takmarkanir sem listamanns. En áður en ég kem að því, er rétt að taka upp þráð- „Það var happaráð hjá Þórhlldi að fela Kristínu Jóhannesdóttur Dómínó eftir Jökul Jakobsson. Kristín kaus allt aðra leið en áður hafði verið farin; lagði aðaláherslu á tragi- kómík verksins í stað hinnar duldu og ívið melódramatísku lífs- angistar sem réð ríkjum í fyrrl uppfærslu þesslr. Þersónurnar birtust þarna sem tilfinningasljóar og grunnfærnar strengja- brúður, fastar í neti yfirborðsmennsku og alvöruleysis, ófærar um að mynda lifandi tengsl hver við aðra. var það svona sem mannlegt líf horfði við Jökli Jakobssyni?" Fj 50 olnir timarit handa islendingum hciust '97 Ytri s-tilfqersla og augnagleði Ég hef fylgst allvel með leikstjórnarferli Þórhildar frá því hún vakti fyrst athygli með sýningum Alþýðuleikhússins um miðjan áttunda áratuginn. Mér er ekkert launungarmál, að ég hef aldrei haft sérstakt dálæti á henni sem leikstjóra og fáar sýningar hennar hafa hrifið mig verulega. Þór- hildur hefur jafnan látið í Ijós mikla andúð á öllu sem ber keim af hefðbundnu „raunsæi" eða „natúralisma"; maður hefúr stundum haft á til- finningunni, að hún líti beinlínis á það sem æðstu köllun sína að hreinsa íslenskt leikhús af öllu slíku. Að því leyti er hún sporgöngumaður ýmissa evrópskra kenningasmiða og leikhús- manna, sem hófú fyrst upp raust sína um síðustu aldamót og hafa sett margvíslegan svip á leikhús okkar tíma. Hún leggur mikið upp úr líkamlegri tjáningu leikenda, enda ballettlærð í upphafi, og sækist mjög eftir ytri stílfærslu og ýmiss konar augnagleði á sviðinu. Mörgum þóttu fyrstu sýningar hennar — einkum Krummagull og Skollaleikur Böðvars Cuðmundssonar — bera með sér ferskan blæ inn í leikhúsið, en lítið var eftir af þeim ferskleika í síðusm sýningu hennar, Völ- undarhtísi Sigurðar PALSSONAR í Borgarleikhúsinu í vor. Að minni hyggju er helsti veikleiki Þórhildar sem leikstjóra sá, að hún hirðir of sjaldan um að kafa nógu djúpt ofan í textann og kalla fram hið besta í leikendum sínum. Það er eins og hún hafi aldrei áttað sig almennilega á því, að góð leik- inn, þar sem ffá var horfið í sögunni. Leikfélag Reykjavíkur er sem sagt búið að reka Viðar Egg- ertsson með dramatískum hætti — málið er víst enn fyrir dómstólum — og almenningur veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Þá gerist það, að stjórn L.R. kallar Þórhildi á sinn fúnd. Af viðræðum þeirra fara ekki sögur, nema lyktir verða þær, að Þórhildur slær til, leggur heiður sinn sem leikhúsmanns að veði fyrir velgengni félagsins og gengur galvösk til liðs við það. Ymsir starfsbræður hennar hefðu óefað hikað við að stíga slíkt skref, en Þórhildur virðist líta svo á, að þetta sé stóra tækifærið hennar til að setja mark sitt á íslenska leiklistarsögu. Hún gengur ekki heldur gruflandi að því, að hún hefúr öll tök gagnvart Leikfélaginu sem þarf sárlega á henni að halda, þó ekki sé nema til að kveða í kútinn gagnrýnendur sína, sem margir eru hatrammir og eiga sumir jafnvel greiðan aðgang að æðsm stjórn Reykjavíkurborgar. Leikrrtín wonbrigði á „islenslcM leílcári" Hvernig hefúr henni svo tekist til á því eina og hálfa ári, sem hún hefúr gegnt embættinu? Hefúr hún sýnt fram á þá stjórnunarhæfileika, það frumkvæði, þá yfirsýn og þá dómgreind sem góður leikhússtjóri þarf að búa yfir? Bæði og. Að vísu hafði hún mjög skamman tíma til að undir- búa síðasta leikár, þ. e. veturinn 1996-'97, en áætlanir Viðars Eggertssonar voru að sjálfsögðu allar látnar fjúka. Það auðveldaði Þórhildi á hinn bóginn leikinn, að hún gat lagt megináherslu á afmælisárið sjálft frá síðustu áramótum, og til undirbúnings þess hafði hún gott svigrúm. Hér stóð Þórhildur þó strax frammi fyrir ákveðnu vandamáli: hvernig átti að greina þena eina ár frá öðmm? Það skipti hana miklu að geta svarað því á sannfærandi hátt, og í þeim tilgangi greip hún til bragðs, sem hefúr áður verið notað í Borgarleikhúsinu (á fyrsta starfsvetri L.R. þar), og boðaði „íslenskt ár“. Afmælisárið skyldi sem sagt allt helgað íslenskri leikrimn. Flestir myndu æda, að enginn heilvita leikhússtjóri efndi til slíks fagnaðar nema hann ætti í skúffúm sínum nóg úrval góðra nýrra verka. Því miður hefúr komið í ljós, að svo var ekki. Ekkert þeirra nýju leikrita, sem hafa verið ffumsýnd í Borgarleikhúsinu frá síðustu áramómm, hafa markað tímamót í nokkrum skilningi, flest, ef ekki öll, hafa valdið miklum vonbrigðum. Það er fljótgen að renna yfir listann; hann er ekki langur. Tvö verkanna, Fagra veröld Karls Ágústs Úlfssonar og Hið Ijúfa /z/Benónvs Ægis- sonar, em söngleikir með mjög veikburða efúis- þræði og persónusköpun á algeru klisju-stigi. Fagra veröldVXaur. ekki meira brautargengi hjá áhorfendum en hún verðskuldaði og Hið Ijúfa líf sýnist, þegar þetta er skrifað, naumast æda að verða mjög fótlúið, þegar göngu þess lýkur. Þetta kom sér því verr sem bæði verkin voru auðsæilega tekin í þeim aðaltilgangi að hala inn áhorfendur. Völundarhús Sigurðar Pálssonar, sem var síð- asta verkefúi síðasta leikárs, stóðst engan saman- burð við fyrra leikrit hans í Borgarleikhúsinu, Hótel Þingvelli, sem var mjög lipurlega skrifað sviðsverk. Það varð í sviðsetningu Þórhildar sjálfrar afar þyngslalegt; symbólík þess sveif utan og ofan við aUt kunnuglegt mannlíf og aðeins ein persónusköpun leiksins fól í sér vísi að einhverju áhugaverðu. Hún naut sín reyndar ágætlega í höndum Péturs Einarssonar sem hefúr á síðustu árum sótt mjög í sig veðrið sem leikari. Þá er ótalið hið póstmóderna verk KristInar Ómars- dóttur, Astarsaga 3, þar sem er beitt gamalkunnu bragði úr leikbókmenntunum: leikrit sett á svið inni í leiknum, sem í þessu dlviki leiðir til ein- hvers konar persónuklofnings hjá a. m. k. öðrum leikandanum. En þarna er hvorki að finna dramatíska spennu né djúpstæða persónurýni — enda slíkt sjálfsagt ekki í póstmódernum anda — sem leiðir til þess, að samskipti leikaranna tveggja hvors við annan og við persónurnar, sem þeir eru að túlka, verða aldrei mjög áhugaverð. Þó að ýmislegt sé vel orðað í textanum og sitthvað gleddi augað í sviðsetningu Auðar Bjarnadöttur, dugði það ekki til. Minnisstæðast úr sýningunni er einstæð ffammistaða Þorsteins Gunnarssonar í margvíslegum gervum kynferðislegrar amöbu sem kallaði ýmist fram tilfinningar viðbjóðs eða vorkunnsemi. Hnpparáð áórhíláar Sá þáttur hins „íslenska leikárs" Þórhildar og Leikfélagsins, sem best hefúr heppnast, er við- leitnin að endurlífga leikrit Jökuls Jakobssonar. Auðvitað hefði ekki þurff neinn slíkan ramma til að dusta rykið af þeim; samt fór vel á því að minna þannig á tengsl þeirra og gildi fyrir það sem menn eru að bjástra við nú. Sjálfúr hef ég lengi hamrað á því, að okkur sé skylt að sýna verkum Jökuls meiri sóma, láta reyna á þau við nýjar aðstæður, nýjan tíðaranda. Hvort þau búa yfir gildi, sem muni endast þeim til lífs um aldur og ævi, er allt annar handleggur og aukaatriði hér og nú; réttur þeirra felst í því, að Jökull var svo mikill tímamótamaður í íslenskri Ieiksögu, að ný kynslóð á að fá tækifæri til að kynnast bestu leikritum hans á sviðinu sjálfu og taka til þeirra sjálfstæða afstöðu. Það er fyrst nú sem þessi barátta mín ber umtalsverðan árangur; Stefán Baldursson hefúr t. d. talið nóg að láta leiklesa þrjú verkanna í eitt skipti. „íslenska leikárið" hófst í janúar sl. með frumsýningu Dómínós undir leikstjórn Kristínar Jöhannesdöttur. Því á að ljúka með Sumrinu '37 síðar í haust, einnig undir leikstjórn Kristínar. Það var happaráð hjá Þórhildi að fela henni þetta

x

Fjölnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.