Fjölnir - 30.10.1997, Page 52

Fjölnir - 30.10.1997, Page 52
Jón Viðar Jónsson Hversu djúpt á Borgarleikhúsið á sökkva? „Það er aftur á móti — eins og dœmin sanna — beinn vegur til glötunar að fela starfsfólkinu slík völd, að það geti haldið stjóm leik- hússins í heljar- greipum, finnist því hún ganga gegn einkahagsmunum þess. Slíktjyrir- komulag býður ein- ungis upp áfleiri hneykslismál afþví tagi, sem við urðum vitni að í fyrra, og þá listrœnu stöðn- un, sem hefiir sett alltofskýrt mark á starfBorgar- leikhússins. “ ofurvaldi gamalgróins klíkuskapar. Jafnvel þótt Leikfélagið liggi lágt um þessar niundir, er ósennilegt, að henni hafi tekist það baráttulaust. í dagblöðum fyrr í sumar var skýrt frá því, að átök hefðu orðið milli leikhússtjóra og stjórnar L.R. um verkefnaval komandi leikárs; stjórnin hefði sem löngum fyrr séð þann kost vaenstan að veðja á gömul kassastykki, jafnvel ættuð affan frá Iðnó- tímanum, til að bæta hina biksvörtu fjárhags- stöðu félagsins, en leikhússtjórinn þá sett mönn- um stólinn fyrir dyrnar. Nú eru slík átök nánast daglegt brauð í leikhúsi og myndu ekki teljast fjölmiðlamatur, væru blaða- og fréttamenn ekki af skiljanlegum ástæðum venju fremur forvitnir um allt sem gerist að tjaldabaki í Borgarleikhús- inu. Þó að fréttin muni ekki hafa fengist staðfest með ótvíræðum hætti, verður hún að teljast líkleg vísbending um ástandið innan leikhúsveggjanna. fltekillgsnitiœll PórHíldar En nýbreytni í leikstjóraráðningum vegur því miður ekki nógu þungt gagnvart þeim hróplegu mistökum, sem verkefnavalið hefúr einkennst af, eftir að Þórhildur tók við stjórnartaumum. Vitanlega var fráleitt að ráðast í fyrirtæki sem „íslenskt leikár“ með jafn litla kjölfestu og raun ber vitni. Það hefúr í sannleika sagt verið sorglegt að sjá allri þessari fagmennsku eytt í leikskáld- skap, sem er í besta falli lítilfjörlegur, í því versta óboðlegur. Akkillesarhæll Þórhildar sem leikhús- stjóra hefúr þannig reynst sama eðlis og leikstjór- ans: hún hirðir of lítið um listgildi textanna, hið mannlega inntak leikverkanna (ég myndi nota orðið „bókmenntalegur" þætti mér ekki líklegt, að það yrði notað gegn mér til útúrsnúnings). Hún einblínir svo á miðilinn sem slíkan, að hún horfir fram hjá því, sem að lokum skiptir máli, og vanmetur um leið þorra almennings, sem sækir ekki leikhús dl að horfa á léleg „stykki“ í áferðarfögrum umbúðum. Vera má, að einhverjum finnist álitamál, hvort átt hefði að flytja Ástarsögu 3 og Völundar- hús Sigurðar Pálssonar. Fyrir mitt leyti sá ég fatt í sýningunum, sem talist gæti ótvíræður listrænn ávinningur fyrir leikhúsið, en hafi höfúndarnir sjálfir læn af þeim eitthvað, sem gæti orðið þeim til framdráttar síðar og skilað sér í betri verkum frá þeirra hendi, þá ánu þær vissulega rétt á sér. „í hlnu póstmóderníska verki Kristínar Ómars- dóttur, Ástarsögu 3, er hvorki að finna drama- tíska spennu né djúp- stæða persónurýnl — enda slíkt sjálfsagt ekki í póstmódernum anda — sem lelðir til þess, að samsklptl lelkaranna tveggja hvors við annan og við persónurnar, sem þelr eru að túlka, verða aldrei mjög áhugaverð." Alltaf er miklu til þess kostandi að hlúa að efnis- fólki á skáldabekk, og þá verður oft og einatt að taka áhættu, sem enginn veit með vissu hvort á eftir að borga sig. Hitt er svo annað mál, að L.R. er um þessar mundir lítt í stakk búið til að stunda tilrauna- og ræktunarstarfsemi með slíku kappi. Hefði verkum Sigurðar og Kristínar verið raðað upp innan um önnur, sem voru líklegri til að takast vel og jafnvel ná vinsældum, hefði flutningur þeirra verið hafinn yfir alla gagnrýni. Um leikhússtjórn, sem setur tvö slík verk innan um tvo misheppnaða söngleiki, verður sagt það eitt, að hún er slegin algerri blindu. Fj 00 •• T * olmr timarit handa íslendingum haust '97 TrúnaðarslH; með Leílcfélaginu og Borgiwni Um pólitíska hlið Borgarleikhússmálsins hefúr mikið verið ritað og rætt og ekki allt til þess fallið „Hið Ijúfa líf Benónýs Ægissonar er söngleíkur með mjög veikburða efnisþræði og persónusköpun á algeru klisju-stígi og sýnist, þegar þetta er skrifað, naumast ætla að verða mjög fótlúið, þegar göngu þess lýkur.” að varpa á hana skýru ljósi. Eins og ég gat um hér í upphafi, verður ekki annað ráðið en alger trúnaðarslit hafi orðið með Reykjavíkurborg og L.R. eftir Viðars-málið. Á þeim tíma, sem er liðinn síðan, hafa borgaryfirvöld varpað allri ábyrgð á leikhúsrekstrinum á herðar L.R. og mun fúlltrúi Reykjavíkurborgar í leikhúsráði hafa fengið þau fyrirmæli að skipta sér sem minnst af honum. Borgarstjóri hefúr aðeins kveðið skýrt upp úr með eitt: að L.R. fái ekki aukinn styrk úr borgarsjóði. Af hálfú Borgarinnar hefúr að öðm leyti ekkert verið gert til að kynna stöðu leikhúss- málsins fyrir leikhúsfólki eða almenningi í land- inu. Aldrei hefúr verið kallað effir hugmyndum frá fagmönnum utan I..R. um breytta tilhögun leikhúsrekstrarins. Vel má vera, að á bak við þetta aðgerðaleysi liggi einhver pólitísk rök, sem borgarstjóri kýs að leggja ekki á borðið. Engum dettur í hug, að Ingibjörg Sölrún CIsladöttir viti ekki fúllvel, að þær 140 milljónir, sem Borgin leggur L.R. til, hrökkva engan veginn til að reka leikhús, sem á að geta veitt Þjóðleikhúsinu verðuga samkeppni. Til lengri tíma litið getur Reykjavíkurborg ekki heldur skorast undan ábyrgð sinni á rekstri leik- hússins. Hún byggði það á sínum tíma; hún verður einnig að finna leiðir til að reka það. Ef borgarstjóri telur L.R. ekki treystandi fyrir rekstri leikhússins, á hann að ganga hreint til verks og knýja fram viðunandi lausn. Sé borgarstjóri að bíða eftir því að L.R. örmagnist undan skulda- byrði sinni og komi að fyrra bragði krjúpandi að fótum hans til að biðja um náð, er ljóst hvað slíkt kostar: hægfara dauða allrar leikstarfsemi í hús- inu. Það er algerlega óviðunandi að búa við slíkt og borgarstjóra er sem æðsta stjórnanda Borgar- innar skylt að finna einhverja fera leið til að koma starfsemi leikhússins á fastan gmnn. Því má aldrei gleyma, að Reykjavíkurborg hefúr alltaf lagt og leggur enn leikhúsinu til of lítið fé. Þó að L.R. hafi ekki haldið vel á spilunum efúr að það fluttist í Borgarleikhúsið, getur Reykja- víkurborg ekki látið sem hún eigi enga hlutdeild í vanda þess. Það er hins vegar mikil einföldun að kenna núverandi borgarstjórnarmeirihluta um all- an ófernaðinn, eins og sjálfstæðismenn hefðu ver- ið eitthvað líklegri til að sýna L.R. meiri rausnar- skap og taka myndarlegar á málum leikhússins. Þeir talnaleikir, sem valinkunnir menn tóku að stunda á síðum dagblaða upp úr áramótum til að sanna þetta, vom heldur brosleg iðja, lítilfjörlegt pólitískt þref að íslenskum hætti. Sumir halda því fram, að Borgarleikhúsið sé einfaldlega of stórt fyrir okkur; nær hefði verið að sníða sér stakk efúr vexú, byggja minna og viðráðanlegra leikhús. En það er alltaf hægt að vera vitur eftir á; tilvera Borgarleikhússins er staðreynd sem við eigum að hafá vit og burði til að gera hið besta úr. Það er harla dapurlegt, að L.R. skuli frá síð- usm leikhússtjóraskiptum ekki hafe sýnt fiam á nokkra gem til slíks. Þar á bæ svara menn enn allri gagnrýni með almennum glósum um nei- kvæðni og niðurrif og virðast jafn óferir til heil- brigðra rökræðna sem raunhæfra framkvæmda. Hafi einhverjir vonast til, að L.R. myndi draga nytsama lærdóma af Viðars-málinu og „reform- era“ sjálft sig, hafa allar vonir um slíkt reynst tálsýnir. Félagið, eða öllu heldur leikhússtjórinn, bætti ekki heldur um fyrir sér með því uppátæki sínu nú síðsumars að hleypa inn í leikhúsið leik- hópi, þar sem hún var sjálf innanborðs ásamt varaformanni L.R. sem var forstöðumaður hóps- ins. Um sama leyti var öðrum leikflokki neitað um afnot af húsinu. Leikfélagsforystan hefúr samkvæmt þessu tvenns konar mælistikur á lofti, eina fyrir sjálfa sig og nánustu vini sína, aðra fyrir alla hina! Reynist það rétt metið hjá henni, að hún geti komist upp með þess háttar vinnubrögð án athugasemda eða mótmæla frá samtökum leikhússfólks — t.d. Bandalagi atvinnuleikhópa eða Leiklistarsambandi fslands — er verr komið fyrir þeim en margir hefðu trúað að óreyndu. ExH Leilcffélqg Reylgawilw»r Ef við að iokum lyfúxm aðeins huganum upp frá því kviksyndi, sem Borgarleikhúsið er nú að sökkva í, og reynum að horfa ffarn á veginn, blas- ir við sú spurning, hvernig starfsemi og stjórnun þess verði best hagað í framtíðinni. Frá mínum bæjardyrum séð er því fljótsvarað. Langeðlilegast er, að Borgarleikhúsinu verði ffamvegis stjórnað með líkum hætti og Þjóðleikhúsinu: það verði sett undir leikhússtjóra, sem beri faglega og fjár- hagslega ábyrgð gagnvart þeim effirlitsaðila, sem eigandi leikhússins setur, og hafi óskoruð völd í samræmi við þá ábyrgð. Þó að oltið hafi á ýmsu í Þjóðleikhúsinu hefúr þetta fyrirkomulag á heild- ina litið gefið góða raun, þar jafnt sem annars staðar. Með því er tryggt, eins og ffekast er unnt, að fagleg sjónarmið ráði ferðinni, jafnframt því sem leikhússtjóranum er búið nauðsynlegt aðhald innan frá. Starfsmenn eiga svo að sjálfsögðu að fa að tilnefna fúlltrúa í ráðgjafar- og stjórnsýslu- nefndir leikhússtjórninni til halds og trausts. Þannig hefúr einnig verið unnið í Þjóðleikhúsinu frá upphafi, og ekki vitað úl annars en um það hafi ríkt ffiður og sátt. Það er affur á móti — eins og dæmin sanna — beinn vegur úl glömnar að fela starfsfólkinu slík völd, að það geú haldið stjórn leikhússins í heljargreipum, finnist því hún ganga gegn einka- hagsmunum þess. Slíkt fynrkomulag býður ein- ungis upp á fleiri hneykslismál af því tagi, sem við urðum vitni að í fyrra, og þá listrænu stöðn- un, sem hefúr sett alltof skýrt mark á starf Borgarleikhússins. Geú Leikfélag Reykjavíkur ekki horfst í augu við þessa staðreynd og lagað sig að veruleikanum, verður það að átta sig á því, að núverandi hlutverk þess í sögu íslenskrar leiklistar er leikið á enda. Og þá er aðeins eftir að enda söguna að hætú Shakespeares og félaga: Exit Leikfélag Reykjavík- ur. ■

x

Fjölnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölnir
https://timarit.is/publication/985

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.