Læknablaðið - 15.12.1948, Page 21
LÆKNABLAÐIÐ
127
Frá læknaþinginu 19.—21. ágúst 1948.
Skvrsla formanns L. í.
Magmisar Péturssonar.
Ég vil hefja mál mitt á því
að bjóða alla fundarmenn vel-
komna og einkum utanbæjar-
læknana.
Aður en ég set fundinn tel ég
mér skylt fyrir stjórnarinnar
hönd að leita álits viðstaddra
lækna um lögmæti fundarins.
'Svo sem öllum félagsmönnum
mun kunnugt, er svo til orða
tekið í 7. gr. félagslaganna að
aðalfundur sé lögmætur, ef
hann er löglega boðaður. Er þar
jafnframt ákveðið, að til hans
skuli boða skriflega með sex
vikna fyrirvara. Nú er það víst
að þessum bókstaf laganna lief-
ur ekki verið fullnægt, því
skriflega fundarboðið var ekki
sent út fyrr en 22. júlí eða
réttum 4 vikum fvrir hinn á-
kveðna fundardag. En hann var
tilkynntur i útvarpinu 8. og 9.
júlí eða sem næst sex vikum
fyrir ákveðinn fundardag. A-
stæðan, meðal annars, fyrir því
að stjórnin varð svo síðbúin að
koma út fundarboðinu var sú,
að hún hafði upphaflega ætlað
sér að hafa fundinn seinna, en
þá harst okkur fregn um það,
að Dr. Þorbjörn Þorláksson frá
Winnipeg ætlaði sér að vera á
ferð hér í sumar og mundi vera
fús til að halda fyrirlestur hér
á læknafundi. Fannst stjórninni
sjálfsagt að nota þetta tækifæri
til þess að njóta fræðslu þessa
kunna læknis, en hann hafði þá,
þegar eftir var grennslast, gert
sína ferðaáætlun þannig og
varð henni ekki breytt, að til
þess að geta notið fræðslu hans
urðum við að færa fundinn
nokkuð fram. Það tal'ði og fyrir
stjórninni í þessum efnum að
formaðúr þurfti óvænt að fara
til útlanda og dvaldi þar allan
júní-mánuð, einmitt þann tíma
sem stjórnin annars hafði ætlað
sér til undirbúnings fundarins.
Mér þykir sjálfsagt að skýra
frómlega frá ])essu svo ekki
verði hægt að átelja stjórnina
fyrir að hafa dulið fundarmenn
þessa eða ekki vakið athvgli
])eirra á því.
Stjórnin vill því bera það
undir fundarmenn hvort þeir
telji að skoða heri þennan fund
lögmætan aðalfund félagsins og
ef enginn hreyfir mótmælum
gegn því, þá mun stjórnin líta
svo á að fundarmenn séu henni
sammála um að ekki sé ástæða
til að fylgja hókstaflega þess-
um lagabókstaf, sem settur var
þegar samgöngur voru miklu