Læknablaðið - 15.12.1948, Blaðsíða 24
130
LÆKNABLAÐIÐ
þangað var formanni félagsins
sérstaklega boðið og óskaði
hann eftir að mega láta Jóhann
mæta í sinn stað, til þess að
íélagið hefði þar þó umboðs-
mann. 1 annað sinn á fundi nor-
rænna starfandi lækna, sem
haldinn var í Stokkhólmi dag-
ana 6. og 7. sept. 1947, og loks
á aðalfundi brezka læknafélags-
ins, sem haldinn var i Cam-
bridge nú i sumar og var fyrsti
vísindalegi fundurinn í því
félagi eftir síðustu heims-
styrjöld. Mætti.þar einnig fyrir
okkar hönd Karl Strand læknir.
Brezka félagið var svo rausnar-
legt að það bauðst til að kosta
uppihald fulltrúanna meðan á
fundinum stóð.
Loks er þess að geta, að nú
eru staddir suður í Sviss, tveir
læknar, þeir Kristinn Björns-
son yfirlæknir og Óskar Þórðar-
son, sérl'r. í barnasjúkdómum,
og hafa þeir lofað að vera full-
trúar Læknafélags Islands á
fundi Alþjóðalæknafélagsins,
scnr halda á í Genf nú næstk.
september. Þeir fulltrúar okkar,
sem hér eru staddir, munu því
sjálfir gefa hér fundinum
skýrslu um störf þeirra í út-
löndum í þágu félagsins. Vænti
ég þá að Sigurður Sigurðsson,
berklayfirlæknir taki fyrst til
máls, en því næst prófessor
Jóhann Sæmundsson og loks
Páll Sigurðsson ritari félagsins,
sem gefur skýrslu um tildrög
og stofnun Alþjóðafélagsins og
frá stofnfundinum í París, en
þann fund sótti liann ásamt
Þórði Þórðarsyni, þáverandi
form. L. B.
Ég vil strax taka það fram að
stjórn félagsins er ákaflega
þakklát þessum mönnum öll-
um, sem af mikilli ósérplægni
hafa lagt á sig vinnu fyrir fé-
lagið og sumir talsverð fjárút-
gjöld.
Þ. 12. ágúst 1946 skrifaði
landlæknir stjórn félagsins og
sendi henni um leið samrit af
bréfi, er hann hafði sent öllum
héraðslæknum. — Efni bréfs-
ins til héraðslæknanna var það,
að kvarta undan því, hve mikil
vanskil væru á skýrslum frá
nokkrum héraðslæknum. Ósk-
aði landlæknir aðstoðar stjórn-
ar félagsins til þess að reyna
að kippa þessu í lag.
Stjórnin taldi sjálfsagt að
verða við þessum tilmælum
landlæknis og reit því þ. 20.
ág. 1946 öllum héraðslæknum
nokkur eggjunarorð, þar sem á
þá var skorað að reka af sér
slyðruorðið í þcssum efmun svo
ekki yrði þeim um kennt hve
síðbúnar heilbrigðisskýrslur
landsins oft vilja verða.
Eins og áður var sagt sendi
stjórnin þetta bréf öllum hér-
aðslæknum, þar sem landlæknir
hafði ekki nafngreint þá héraðs-
lækna, sem honum þóttu brot-
legir og var því látið rigna jafnt
yfir réttláta og rangláta.
1 nóvember 1946 barst stjórn