Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.1948, Síða 22

Læknablaðið - 15.12.1948, Síða 22
128 LÆKNABLAÐIÐ seinfærari en nú er orðið, enda er nú orðið alsiða, að boða fundi í útvarpi. En fari aftur á móti svo að einhver fundarmanna krefjist þess að þetta sé ekki lögmætur aðalfundur Læknafélags Is- lands, þá finnst mér óhjákvæmi- legt að taka það til greina. — Breytir það í raun og veru engu um dagskrá fundarins eða fund- arhaldið, öðru en því, að þetta kallist aukafundur Læknafélags Islands og hin lögskipuðu að- alfundarstörf verða þá ekki tek- in fyrir, en þau eru aðeins nokkrar kosningar. Vil ég þá leyfa mér að nema hér staðar til þess að heyra undirtektir manna og biðja Pál V. Kolka héraðslækni að stjórna umræðum um þetta atriði ef einhverjar kunna að verða og Ólaf Bjarnason lækni rita þær. (Enginn hreyfði andmælum). Vil ég þá leyl'a mér að setja þcnnan aðalfund Læknafélags Islands. Verður það þá fyrsta verk hans að kjósa starfsmenn. Er það gömul hefð að kjósa þá samkvæmt uppástungum, til flýtisauka, og vænti ég að ekk- ert sé því til fyrirstöðu að haldið sé uppteknum hætti í því efni. Vil ég því leyfa mér að stinga upp á þessum mönn- um: Páli V. Kolka, héraðslækni, sem aðalfundarstjóra, en Þórði Þórðarsyni, sem vara-fundar- stjóra og aðalritara Ólafi Bjarnasyni og vararitara Hauki Kristjánssyni. Óska ég að fundarmenn sam- þykki þessa menn til starfa sinna með lófataki. Næsta verk mitt er þá sú sorglega skylda að minnast þeirra stéttarhræðra, sem lát- izt hafa frá því síðasti aðal- fundur var haldinn. En óvenju stórt skarð hefur verið í hópinn höggvið að þessu sinni, og margir fallið í valinn af lands- kunnum merkismönnum. Þessir liafa látizt og tel ég þá í þeirri röð, sem þeir Iiafa látizt: 1. Guðmundur Guðmundsson fyrrverandi héraðslæknir frá Stykkishólmi. 2. Sigvaldi Kaldalóns fyrrv. héraðslæknir. 3. Guðmundur Hannesson pró- fessor heiðursforseti félags- ins. 4. Þórður Sveinsson, prófessor. 5. Valdimar Steffensen 0. Jens Ag. Jóhannesson. 7. Kristján Arinhjarnar, hér- aðslæknir. 8. Kristján Jónasson. í). Halldór Stefánsson, 10. Gunnlaugur Claessen dr. med. yfirlæknir. 11. Steingrímur Matthíasson, fyrrv. héraðslæknir. Allir þessir læknar voru fé- lagar . L. I. 12. Þá hefur og einn ísl. læknir látizt, sem alltaf hefur starfað

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.