Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.1948, Side 27

Læknablaðið - 15.12.1948, Side 27
LÆKNABLAÐIÐ 133 vakin var athygli á vaxtabréf- um deildarinnar og eindregið mælzt til þess að Læknafélag Is- lands legði nokkurt fé fram til kaupa á þeim. Stjórn félagsins keypti því 15 ára vaxtabréf Stofnlánadeildar- innar fyrir 10 þúsund krónur að nafnverði. Bera reikningar félagsins þetta með séi\ Landlæknir skrifaði stjórn félagsins bréf þess efnis að hon- um hefði verið tjáð að verið væri að reisa stúdentagarð í Árósum í Danmörku og ýms Norðurlönd mundu tryggja sér með fjárframlögum herbergi í garðinum. Kostnaður af einu slíku her- bergi mundi verða 7 þús. krón- ur danskar í eitt skipti fyrir ÖU. — Taldi landlæknir að sér finndist vel við eiga að íslenzkir læknar gengjust fyrir því að tryggja íslenzkum stúdentum herbergi í hinum fyrirhugaða garði. Ætti þetta sérstaklega vel við, jjar sem við þennan há- skóla væru tveir velmetnir prófessorar íslenzkir læknar. Stjórnin leitaði hófanna um þetta hjá ýmsum læknum hvort þeir vildu nokkuð leggja af mörkum í þessu skyni, því auð- vitað var þetta því aðeins fram- kvæmanlegt að læknar legðu fram fé með frjálsum samskot- um. Ekki gat til mála komið að sjóður félagsins gæti nokkuð skipt sér af slíku máli. Undir- tektir lækna þeirra, er við leit- uðum til voru þannig að þeir tóku málinu, vægast sagt, mjög fálega. Var það' einkum horið fram, sem sjálfsagt hefur við mikil rök að styðjast, að slíkt herbergi myndi aldrei verða notað af læknastúdentum held- ur þá af stúdentum í öðrum námsgreinum svo sem hús- mæðrafræðslu eða því um líku, sem læknastéttinni væri óvið- komandi. Jafnframt var á það bent, að félaginu stæði nær að kaupa herhergi í íslenzka stúdenta- garðinum, ef það vildi sýna af sér einhverja slíka rausn. Tilkynntum við svo land- lækni að við treystum okkur ekki til þess að gera frekara í málinu. Hinn 23. ágúst 1947 áltu stjórnir Læknafélags Islands og Læknafélags Reykjavíkur með sér sameiginlegan fund og var fundarefnið að ræða um við- horf gagnvart væntanlegum samningum við stjórn Al- mannatrygginganna mn lækn- ingastarfsemi. Voru allir á einu máli um það að mjög væri nauðsynlegt, að allir læknar landsins stæðu sem fastast sam- an í því máli og enginn skær- ist úr leik og færi að semja fyr- ir sig upp á eigin spýtur. Var því samþvkkt að stjórn Læknafélags Islands ritaði öll- um starfandi læknum innan félagsins og varaði þá við að gera nokkra samninga við Al-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.